Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Blaðsíða 6
Mikil fjölgun ferðamanna
n Brottfarir erlendra gesta nánast orðnar jafnmargar núna og allt árið 2011
U
m 64.700 erlendir gestir fóru
frá landinu um Leifsstöð í
september síðastliðnum og er
hér um að ræða langstærsta
septembermánuð frá upphafi í
fjölda þeirra. Um þetta er fjallað á vef
Greiningar Íslandsbanka og er vísað í
tölur frá Ferðamálastofu Íslands sem
ná yfir allar brottfarir frá landinu um
Leifsstöð. Þar kemur fram að í sept
ember í fyrra var fjöldi þeirra 51.600.
Þetta jafngildir því aukningu upp
á heil 25,4 prósent milli ára, sem er
heldur meiri aukning en verið hefur
á milli ára í mánuði hverjum það sem
af er ári.
„Brottfarir erlendra ferðamanna
eru nú komnar upp í 537.000 á
fyrstu níu mánuðum ársins, en á
sama tímabili í fyrra var fjöldi þeirra
458.100. Jafngildir þetta aukningu
upp á 17,2 prósent milli ára,“ seg
ir í frétt Greiningar Íslandsbanka.
Athygli vekur að í raun eru erlendir
ferðamenn orðnir álíka margir nú á
fyrstu níu mánuðum ársins og þeir
voru allt árið í fyrra, en þá voru þeir
540.100. Telur Greining Íslands
banka að líklegt sé að brottfarir er
lendra ferðamanna um Leifsstöð
verði að minnsta kosti 620 þús
und á þessu ári, en sú tala fæst ein
faldlega með því bæta við þeim
82.800 ferðamönnum sem fóru frá
landinu um Leifsstöð á síðasta árs
fjórðungi í fyrra. Ef aukningin á síð
asta fjórðungi í ár frá sama tíma í
fyrra verður hins vegar í takti við
það sem hún hefur að jafnaði ver
ið á þessu ári þá fer fjöldinn upp í
634 þúsund.
Íslendingar virðast einnig vera
farnir að halda í auknum mæli út fyr
ir landsteinanna. Alls héldu 32.300
Íslendingar utan í september síðast
liðnum samanborið við um 30.800 í
fyrra. Jafngildir þetta aukningu upp á
4,9 prósent á milli ára. n
6 Fréttir 10. október 2012 Miðvikudagur
Ú
tgerðarfélagið Samherji og
tengd fyrirtæki, er orðið
stærsta einstaka kerfisáhættan
í íslenska bankakerfinu hvað
varðar lánveitingar til ein
staka fyrirtækis eða fyrirtækjanets.
Þetta herma heimildir DV. Samherji
skuldaði um 75 milljarða króna í ís
lenska bankakerfinu í október 2008.
Öfugt við mörg af stærri fyrirtækjum
landsins, sem voru mjög skuldsett
fyrir hrun og tilgreind í rannsóknar
skýrslu Alþingis, hefur Samherji ekki
gengið í gegnum fjárhags og rekstr
arlega erfiðleika á síðustu fjórum
árum með tilheyrandi sölu á eignum
eða eigendabreytingum.
Þvert á móti hefur Samherji blás
ið í seglin og keypt upp sterk félög
og fyrirtæki sem lent hafa í fangi ís
lensku bankanna eftir hrunið. Þess
um fyrirtækjum hafa fylgt talsverð
ar skuldir sem þó hafa í einhverjum
tilfellum lækkað eftir að bankarnir
hafa yfirtekið félögin eða haft milli
göngu um selja þau. Meðal þessara
fyrirtækja má nefn Útgerðarfélag Ak
ureyringa, BergHuginn, 20 prósenta
hlut í Morgunblaðinu, tæplega 40
prósenta hlut í Jarðborunum og tæp
lega 40 prósenta hlut í Olís.
Tugmilljarða skuldir bætast við
Yfirteknar skuldir vegna Útgerðarfé
lags Akureyringa, sem Samherji keypti
af Brimi í fyrra, námu 10,9 milljörðum
króna. Þær skuldir eru við Landsbank
ann. Eiginfjárframlag Samherja í þeim
viðskiptum nam 3,6 milljörðum króna.
Þar bætast því tæpir 11 milljarðar við
skuldir Samherja.
Skuldir Olís nema á að giska á
milli 16 og 20 milljörðum króna. Hluti
skuldanna verður án efa færður niður
við eigendabreytingarnar á félaginu
en auk Samherja kemur skagfirska út
gerðarfélagið FISK Seafood, dóttur
félag Kaupfélags Skagfirðinga, inn
sem jafnstór hluthafi. Bæði fyrirtæk
in leggja Olís til milljarð í formi hluta
fjár. Við skuldir Samherja bætast að
minnsta kosti nokkrir milljarðar króna
vegna kaupanna á Olís.
Þá skuldaði BergurHuginn, út
gerðarfélagið í Vestmannaeyjum, sem
Síldarvinnslan, dótturfélag Samherja,
keypti fyrir skömmu, rúma sjö millj
arða króna. Samherji á tæpan helm
ingshlut í Síldarvinnslunni þannig að
þar bætast einnig við nokkrir milljarð
ar króna af óbeinum skuldum.
Jarðboranir, verktakafyrirtæki sem
Samherji keypti 36 prósenta hlut í í
byrjun ársins, skuldaði sömuleiðis
tæpa fimm milljarða í lok síðasta árs
þannig að þar bætast einnig í kringum
tveir milljarðar króna við skuldir Sam
herja, að því gefnu auðvitað að ekkert
hafi verið afskrifað af skuldum Jarð
borana.
Að lokum hefur Samherji keypt 20
prósenta hlut í Árvakri, útgáfufélagi
Morgunblaðsins, en skuldir þess fé
lags nema um milljarði eftir afskrift
ir liðinna ára. Þar bætast því um 200
milljónir króna við heildarskuldir
Samherja.
Mest keypt af Landsbankanum
Af þeim fimm fyrirtækjum sem Sam
herji hefur keypt að fullu leyti eða
hluta til eftir hrun eru þrjú sem nán
ast voru komin í fang Landsbank
ans, þess gamla eða nýja, vegna
skulda sinna við bankana. Þetta eru
Útgerðarfélag Akureyringa, Berg
urHuginn og Olís. Hin tvö félögin,
Árvakur og Jarðboranir, voru í keypt
af Íslandsbanka.
Fyrir hrunið 2008 var minnstur
hluti skulda Samherja við Lands
banka Íslands, það er að segja af við
skiptabönkunum þremur. Samherji,
og tengd félög, skulduðu Landsbank
anum ríflega 12,6 milljarða króna í
heildina. Skuldir Samherja við Glitni
námu hins vegar tæpum 35 milljörð
um og skuldirnar við Kaupþing tæp
lega 28 milljörðum króna.
Tengsl Samherja við Glitni og
miklar skuldir þess við bankann eru
kannski ekki skrítin þegar litið er til
tengsla forstjóra Samherja, Þorsteins
Más Baldvinssonar, við eigendur
Glitnis en hann var stjórnarformaður
bankans þegar hann hrundi haustið
2008. Þá var gamall viðskiptafélagi
Þorsteins, Jakob Bjarnason, hátt
settur starfsmaður hjá Kaupþingi
og mun hann hafa séð um mál út
gerðarinnar á þeim bænum. Jakob
þessi færði sig yfir til skilanefndar
Landsbankans eftir hrunið 2008 og
starfar þar enn. n
n Útgerðarfyrirtækið og tengd félög skulda um 75 milljarða króna
Samherji er StærSta
kerfiSáhætta ÍSlandS
Skuldir Samherja
n Skuldir Samherja og dótturfélaga
samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis.
Íslandsbleikja ehf. 738
Katla Seafood ehf. 20.886
Samherji hf. 9.759
Síldarvinnslan hf. 19.600
Framherji Sp/f 8.112
Framinvest Sp/f 207
Kaldbakur ehf. 1.126
Samherji hf. 8.469
Snæfell ehf. 3.566
Snæfugl ehf. 207
UK Fisheries Ltd. 2.346
Fóðurverksmiðjan Laxá hf. 136
SR-mjöl hf. 63
Samtals: 75.186
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Þvert á móti hefur
Samherji blásið í
seglin.
Fjárfestir og fjárfestir Samherji,
útgerðarfélagið öfluga, hefur fjárfest
mikið í atvinnulífinu á Íslandi. Fyrir-
tækið hefur keypt í að minnsta kosti
fimm öflugum og áberandi félögum
sem komin hafa verið að fótum
fram vegna skulda. Þorsteinn Már
Baldvinsson er forstjóri Samherja.
Aldrei fleiri Tæplega 65 þúsund gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í síðasta mánuði.
Um er að ræða langstærsta septembermánuð frá upphafi.
Út úr heimin-
um vegna
sveppaáts
Karlmaður á þrítugsaldri reyndist
vera algjörlega út úr heiminum af
völdum sveppaáts þegar lögreglan
á Suðurnesjum hafði afskipti af
honum á mánudag. Maðurinn
var staddur við hafnarvogina í
Keflavík þegar lögregla varð hans
vör. Hann reyndist vera í alvarlegu
vímuástandi og óviðræðuhæfur.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur
fram að lögreglumönnum hafi þó
tekist að greina af því sem hann
reyndi að segja að hann væri bú
inn að borða mikið af sveppum.
Maðurinn var færður á lögreglu
stöð og látinn sofa úr sér. Síðan
var tekin af honum skýrsla, þar
sem hann viðurkenndi sveppa
átið, og var frjáls ferða sinna að
því búnu.
Gistinóttum
fjölgaði mikið
Gistinætur á hótelum í ágúst voru
239.500 samanborið við 218.500
í ágúst 2011. Gistinætur erlendra
gesta voru um 89 prósent af
heildarfjölda gistinátta í ágúst en
gistinóttum þeirra fjölgaði um
11 prósent samanborið við ágúst
2011. Þetta kemur fram í tölum
sem birtar eru á vef Hagstofunnar.
Gistinóttum á hótelum fjölg
aði í öllum landshlutum nema
á Suðurnesjum. Á höfuðborgar
svæðinu voru gistinætur 149.000,
eða um 12 prósent fleiri en í ágúst
2011. Á Suðurlandi voru 33.500
gistinætur á hótelum í ágúst sem
er um 11 prósent aukning saman
borið við fyrra ár. Á samanlögðu
svæði Vesturlands og Vestfjarða
fjölgaði gistinóttum um 8 prósent,
á Norðurlandi um 7 prósent og á
Austurlandi um 5 prósent. Gisti
nóttum á Suðurnesjum fækkaði
hins vegar um 7 prósent milli ára.
Fimmtán ára
með skilríki
eldri manns
Lögreglunni á Suðurnesjum
var tilkynnt um að ungur piltur
væri að reyna að komast inn á
skemmtistað í umdæminu á öku
skírteini annars manns á dögun
um. Pilturinn sem um ræðir
reyndist vera fimmtán ára. Hann
kvaðst hafa fengið ökuskírteinið
lánað hjá manni sem hann þekkti.
Pilturinn, sem var ölvaður, var
færður á lögreglustöð og lát
inn bíða þar uns hann var sóttur.
Lögregla tjáði honum að ef hann
reyndi aftur að nota skilríki annars
manns til að villa á sér heimildir
yrði hann kærður.