Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Blaðsíða 19
Æfing í sjálfstrausti
n Allt sem þú þarft er blað og penni
N
áðu í blað og penna og skrif-
aðu niður hversu mikið
sjálfstraust þú ert með á
skalanum 1 til 7. Einn merk-
ir að sjálfstraustið sé ekki neitt og
sjö merkir að sjálfstraustið sé full-
komið.
Horfðu svo á eftirfarandi lista og
veldu þrjú orð sem lýsa því besta í
fari þínu og þrjú sem lýsa því versta.
Ef þú ert rétthent/ur settu þá
pennann í vinstri hönd og skrifaðu
neikvæðu orðin. Settu svo pennann
í hægri hönd og skrifaðu jákvæðu
orðin. Ef þú ert örvhent/ur gerðu
þá hið andstæða. Prófaðu eftir
þetta að endurmeta einkunnina
sem þú gafst þér í byrjun.
Orðalistinn:
Trygg, umburðarlynd, metnaðar-
gjörn, metnaðarlaus, umhyggju-
söm, fálát, leynileg, kaldlynd,
kát, skapstygg, tillitssöm, hugs-
unarlaus, dónaleg, samstarfsfús,
óhjálpsöm, hugrökk, óákveðin,
áhugasöm, samúðarfull, sveigj-
anleg, þrjósk, langrækin, ein-
beitt, sparsöm, örlát, vinnusöm,
þakklát, löt, heiðarleg, auðmjúk,
óheiðarleg, hrokafull, afbrýðisöm,
hæversk, óþroskuð, einlæg, bjart-
sýn, svartsýn, stundvís, sjálfsör-
ugg, óörugg, óskipulögð, tilgerðar-
leg, oflátungsleg.
Flestir sem gera þessa æfingu
telja sjálfstraust sitt meira eftir að
hafa gert æfinguna en fyrir. Æf-
ingin er prófuð og reynd af sál-
fræðingnum Pablo Brinot.
kristjana@dv.is
Lífsstíll 19Miðvikudagur 10. október 2012
Láttu þér líða betur
Flestir sem íhuga vel
kosti sína og galla
eflast í sjálfstrausti.
Svala Lind
í Vogue
Fyrirsætur utan landsteinanna
gera það gott þessa dagana.
Fyrir sætan Svala Lind er í tísku-
þætti í portúgalska Vogue. Svala
Lind hefur búið um skamma
hríð í Lissabon þar sem henni
hefur gengið mjög vel og hef-
ur sítt og þykkt ljóst hárið vak-
ið mikla athygli en fyrirsætan
þykir ansi lík gyðjunni Brigitte
Bardot.
n Hanna Guðný skrifaði bók um skó n Vill vekja fólk til umhugsunar
Þ
etta er svona „coffee table“-
bók um skó. Um alls konar
skótýpur; strigaskó, flat-
botna skó og síðast en ekki
síst háa hæla. Svo eru aukakafl-
ar með ýmiss konar fróðleik, til
dæmis hvenær eigi að ganga í
háum hælum, hvernig eigi að velja
hælinn og prófið „Ertu skófíkill?“
og fleira,“ segir Hanna Guðný Ott-
ósdóttir, höfundur bókarinnar
Skórnir sem breyttu heiminum,
sem kemur út í vikunni.
Bókin er fræðandi með sagn-
fræðilegu ívafi en Hanna Guðný
segir hana þó fyrst og fremst eiga
að að vera skemmtilesningu sem
fólk getur flett fram og til baka.
Hún vill þó jafnframt vekja fólk til
umhugsunar um merkingu og til-
gang skófatnaðar og hvað hann
hefur breytt miklu í gegnum tíð-
ina. „Í bókinni er til að mynda fjall-
að um strigaskó sem breyttu körfu-
boltaleikjum í Bandaríkjunum,
klossa sem gegndu mikilvægu
hlutverki í kjarabaráttu verka-
manna og svo hæð hæla sem hafa
haft gríðarlega mikla merkingu, til
dæmis varðandi stéttaskiptingu í
gegnum tíðina.“
Ætlaði fyrst að þýða bók
Í formála bókarinnar kemur fram
að skór hafi alltaf verið stór hluti
af lífi Hönnu Guðnýjar og að skó-
áhugann hafi hún fengið með
móðurmjólkinni. Því skyldi engan
undra að hún greip tækifærið strax
þegar henni bauðst að skrifa um
skó.
„Ég hef alltaf verið mikill skófík-
ill sjálf, en þetta byrjaði þannig að
það kom til mín útgefandi og bað
mig um að þýða bók um skó. Þegar
við fórum að skoða hana betur þá
fannst okkur hún ekki henta á Ís-
landi þannig við eiginlega bara
ákváðum að skrifa nýja. Í ferlinu
mótaðist bókin og breyttist mikið
og endaði allólík því sem lagt var
upp með í upphafi.“
Mikil vinna að baki
Hanna Guðný hellti sér út í verk-
efnið og hélt það yrði lítið mál,
enda á heimavelli hvað málefnið
varðar. Annað kom þó á daginn
og hún viðurkennir það fúslega,
bæði fyrir blaðamanni og í formála
bókarinnar, að þetta hafi ekki ver-
ið auðunnið verk. Það tók hana
um eitt og hálft ár að vinna bókina
meðfram nokkrum öðrum störfum
sem hún sinnti á sama tíma. „Þetta
tókst allavega,“ segir Hanna Guðný
hlæjandi.
Hún viðaði meðal annars að sér
efni í bókina af netinu og úr öðrum
bókum sem hún bæði keypti og
fékk lánaðar á bókasöfnum. Þá var
hún í sambandi við íslensku skó-
fyrirtækin Kron og Gyðju vegna
kafla um íslenska skó í bókinni.
Skvísubók fyrir karla og konur
Hanna Guðný lagði upp með þá
hugmynd að að skrifa bók um skó
fyrir bæði kynin en það breyttist
þó aðeins í ferlinu og kvenskórnir
urðu fyrirferðarmeiri. „Það eru alls
konar strákaskór í henni líka, en
það gerðist ósjálfrátt þegar ég fór
að gera alla hina aukakaflana að
hún varð svolítið stelpumiðuð. En
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi, stelpur og strákar,
skófíklar sem aðrir.“ Hún bendir á
að aftan á bókinni standi: „Skvísu-
bók sem allar konur eiga að lesa og
karlar líka.“
En kom Hönnu Guðnýju eitt-
hvað á óvart við gerð bókarinnar?
„Eiginlega bara hvað það er til
ótrúlega mikið af flottum skóm.
Það hættir aldrei að koma manni
á óvart.“
„Ég hef alltaf
Skófíkill Hanna Guðný fékk
áhuga á skóm með móðurmjólk-
inni og greip tækifærið fegins
hendi þegar henni bauðst að
skrifa bók um skó. Mynd Sigtryggur Ari
Skvísubók Hanna Guðný lagði upp með
að skrifa bók um skó fyrir bæði kynin en
í ferlinu varð hún aðeins stelpumiðaðri.
Hún segir stráka þó líka geta haft gaman
af henni.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Heitt
í haust
Nett úr
Það er nauðsynlegt fyrir allar konur að
eignast lítið og nett úr til að hafa um
úlnliðinn. Bæði til að vita hvað tímanum
líður og til skreytingar. Til að breyta til er
hægt að skella fallegum armböndum á
sama úlnlið og úrið er á og gera þannig
meira úr því.
Töskur með hand-
fangi að ofan
Slíka tösku verða all-
ar konur að eignast
í haust, sérstaklega
í hlutlausum lit sem
gengur með öllu.
Grafískt mynstur
Fatnaður með grafísku mynstri er
áberandi í haust. Allar konur ættu að
geta borið það að klæðast einni slíkri
flík. Til að tóna niður litina er gott að
klæðast einlitri flík við, helst í sama lit
og dekksti liturinn í mynstrinu.
Áberandi
skartgripir
Skartgripir og fylgi-
hlutir með áferð eins
og skjaldbökuskel
eru vinsælir í haust.
Þeir fara vel, til dæmis
með öðrum gylltum skartgripum. Þá
er einnig mikið um áberandi skartgripi
með stórum steinum og litríkum.
verið skófíkill“