Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Blaðsíða 22
É g er ungur og óreyndur aktívisti, sagði söngkonan Stefani Joanne Angelina Germanotta, eða Lady Gaga eins og heims- byggðin kallar hana. Hún var hrærð þegar hún tók við friðarverðlaunum LennonOno í Hörpu í gær og mætti einlæg til leiks. Margir voru spenntir að sjá hvort Lady Gaga mætti í full- um skrúða enda hefur klæðaburð- ur hennar oftar en ekki vakið mikla athygli. En það gerði hún ekki. Hún var hóflega förðuð í flæðandi kjól og smókingjakka og talaði hreint út um óbilandi friðarvilja sinn. Sú ákvörðun Yoko Ono, ekkju John Lennon, að veita Lady Gaga viðurkenninguna hefur vakið heims- athygli. Lady Gaga hlýtur viður- kenninguna vegna baráttu sinnar fyrir réttindum samkynhneigðra og transfólks. Við afhendinguna sagði Ono að Gaga hefði notað frægð sína til þess að vekja athygli á mörg- um mikilvægum málefnum, eins og alnæmi, líkamsvitund og fleiru. Ono minntist einnig á Jón Gnarr og óskaði þess að fleiri í valdastöðum hefðu hugrekki til að rugga bátnum og beita sér til góðs. „Núna vitið þið hvernig hún lítur út,“ sagði hún svo glettin við gesti á afhendingunni en Gaga hefur ekki oft komið fram án íburðar og mikils farða. Hrifin af Jóni Gnarr Lady Gaga er fædd árið 1986 og er af ítölskum ættum. Sem barn stund- aði hún nám við kaþólskan skóla og var farin að spila á píanó eft- ir eyranu um fjögurra ára aldurinn. Í ræðu sinni í Hörpu sagði hún frá því að hún væri alin upp á Manhatt- an við mikla ást foreldra sína. Hún hafi oft gengið að minnisvarða um John Lennon, hann hafi verið henni mikil fyrirmynd. „Síðan ég var fimm ára bjó ég fjórum húsalengjum frá Yoko, en það vissi ég ekki þá. Ég gekk eins oft og ég gat að minn- isvarða um John Lennon, dáðist að blómaskreytingunum sem heim- ilislausir endurröðuðu oft á mjög fallegan og hugmyndaríkan máta. Mér líkaði það sérstaklega vel þegar blómunum var raðað upp í friðar- merki. Ég fékk mér einmitt þetta tattú,“ sagði hún og sýndi gestum tattú af friðarmerki sem hún bar á úlnlið sínum. „Ég vil nota þetta tækifæri til að heiðra þá skuld- bindingu mína að vinna að friði,“ bætti hún við. Lady Gaga var sérstaklega hrifin af ræðu Jóns Gnarr og óskaði þess að í heiminum væru fleiri valdhaf- ar í líkingu við hann. En Jón Gnarr hélt í upphafi viðburðarins ræðu, íklæddur jedi-búningi, fjallaði um aktívisma sinn og notaði tækifærið og mótmælti hernaðarbandalagi Ís- lands og NATO, ræddi um baráttu samkynhneigðra fyrir mannréttind- um og fleira. Fíkniefnaneysla og fjölskylduerjur Um það leyti sem hún fékk sér húðflúrið sem hún sýndi gestum í Hörpu var hún uppgötvuð vegna hæfileika sinna. Hún fékk samning sem reyndar var rift stuttu seinna og það varð henni nokkuð áfall. Hún fór að vinna fyrir sér sem dansari og skemmtikraftur á svokölluðum burlesque-sýningum. Á sama tíma byrjaði Lady Gaga í fíkniefnum og lenti í miklum útistöðum við for- eldra sína, en hún hefur viðurkennt að hún hafi ekki talað við föður sinn á þeim tíma. Í viðtali við tímaritið OK sagðist hún þá hafa verið háð kóka- íni. „Ég hlustaði á lag með The Cure aftur og aftur á meðan ég tók heilu pokana af kókaíni.“ Það var ekki fyrr en faðir söngkonunnar skarst í leik- inn að hún hætti í dópinu. Nafnið Lady Gaga tók hún upp eftir að út- gefandi hennar líkti söngstíl henn- ar við Freddy Mercury, en hug- myndina fékk hann úr lagi Queen, Radio Ga Ga. Frá unglingsárum hefur hún samið slagara fyrir þekkta tónlistar- menn eins og Fergie, Britney Spears, The Pussycat Dolls og New Kids on the Block. Lady Gaga er ekki síst þekkt fyrir frumlega og flippaða tískuvitund en hún segist „lifa“ fyrir tískuna en fyrir- myndir hennar eru meðal annars Grace Jones og Andy Warhol. Sagðist drekka daglega Margt í lífi tónlistarkonunnar hefur vakið athygli fjölmiðla. Það má segja að grannt sé fylgst með lífi hennar. Í viðtali við Heat Magazine sagðist hún nýta frítíma sinn í að horfa á matreiðsluþætti í sjónvarpinu og læra nýjar uppskriftir. „Ég horfi alltaf á matreiðsluþætti þegar ég á lausa stund. Ég er orðin mjög góður kokkur af því að fylgjast með og læra af þessum þáttum. Sérgrein mín er ítalskir réttir,“ sagði hún. Hún sagðist þá oft hafa samband við æskuvinkonur sínar og þær hitt- ist, borði góðan mat og drekki vín. „Við hittumst reglulega og eldum góðan mat. Svo drekkum við sex eða sjö flöskur af rauðvíni og tölum um barnæsku okkar,“ sagði Lady Gaga. Á svipuðum tíma lét hún hafa eftir sér að áfengi léki stórt hlutverk í lífi hennar. „Ég geri það sem ég vil. Ég elska að drekka viskí og annað áfengi í vinnunni. Ég vinn svo hvort sem ég er þunn eða ekki. Þetta snýst um að fá innblástur,“ sagði hún. Hún sagðist til að mynda hafa samið lagið Just Dance á tíu mín- útum þegar hún þjáðist af timbur- mönnum. Lagið náði gríðarlegum vinsældum um allan heim og varð til þess að Lady Gaga varð súper- stjarna „Ég var mjög þunn. Ég samdi lagið á um tíu mínútum með pródúsentinum RedOne. Þetta var í fyrsta skipti sem ég var í Hollywood- stúdíói. Mjög flottu og stóru her- bergi með risa hátölurum,“ sagði hún um tónsmíðina. Fór í hart vegna söfnunar Lady Gaga hefur látið til sín taka í ýmsu mannúðarstarfi. Í Hörpu sagð- ist hún hafa verið einbeitt í vilja sín- um til þess að vinna að góðverkum og friði frá unga aldri. Hún hefur sýnt það í verki. Árið 2010 gaf hún hagnað af tónleikum sínum í New York til fórnarlamba jarðskjálftanna á Haítí. Ágóða sölu af vefverslun hennar lét hún einnig renna til söfn- unar fyrir Haítí. Aðeins klukkustundum eftir jarð- skjálftann og flóðbylgjuna árið 2011 í Tohoku í Japan tísti hún skilaboð- um um að hún hefði til sölu sérstök bænabönd. Allar tekjur af bæna- bandinu voru gefnar til fórnarlamba flóðbylgjunnar. Þær urðu gríðar- legar eða um 1,5 milljónir dollara. Lögfræðingurinn Alyson Oliver kærði Lady Gaga í júnímánuði og sagði hana hafa svikið undan sölu- skatti. Lady Gaga hafði sjálf efa- semdir um að ágóðinn hefði skilað sér að fullu og vildi opinbera rann- sókn á því hvernig fjármunum söfn- unarinnar hefði verið ráðstafað og að fólki sem hefði keypt armbandið yrði boðin endurgreiðsla. Lady Gaga kom stuttu síðar fram í MTV í Japan og safnaði fé fyrir jap- anska Rauða krossinn. Réðst gegn bandarískum stjórnvöldum Lady Gaga kom fram á útifundi í september 2010 þar sem hún mót- mælti harðlega reglum bandarískra stjórnvalda sem meina opinber- lega samkynhneigðu fólki að ganga í bandaríska herinn. Lady Gaga kom fram á útifundi í Portland í Maine-ríki sem beint var gegn tveimur öldungadeildarþingmönn- um repúblikana í fylkinu og mætti þá einlæg til leiks eins og hún gerði í Reykjavík. Hún var aldrei þessu vant ekki klædd furðufötum, held- ur í jakka og með bindi. Hún stakk upp á nýjum reglum sem beint yrði að gagnkynhneigðum hermönnum sem líður „óþægilega“ vegna samkynhneigðra hermanna í hern- um. „Nýju lögin heita „ef þér líkar þetta ekki, farðu heim“, sagði söng- konan en Obama afnam reglurnar eftir uppátæki hennar. Fræðir konur um HIV og eyðni Lady Gaga lagði baráttunni við HIV og eyðni lið á árinu 2011 og einbeitti sér að því að uppfræða ungar konur um hættu á smiti. Í samstarfi við Cyndi Lauper, gekk hún til liðs við MAC-snyrtivöru- fyrirtækið sem hannaði línuna Viva Glam. Allur nettó ágóði af sölu rann til HIV- og eyðnisjúkra. Lady Gaga safnaði 202 milljón- um dollarar með sölu á varalit í línunni Viva Glam. „Ég vil ekki að Viva Glam sé bara varalitur sem þú kaupir til styrktar góðu málefni. Ég vil að hann sé áminning þegar þú ferð út um að setja smokkinn líka í veskið.“ Lögð í einelti Á síðasta ári sagði Lady Gaga einnig frá einelti er hún varð fyrir í æsku og þakkaði stöllu sinni Beyoncé fyrir að hafa hjálp- að sér að vinna úr því. Hún sagði að tónlistarmyndbönd Destiny‘s Child hafi hjálpað sér mikið. Ein- eltið náði hámarki þegar skólafé- lagar hennar hentu henni í rusla- fötu og lokuðu fyrir. Í samtali við MTV sagði hún: „Ég hef aldrei sagt Beyoncé þetta en ég man eft- ir að hafa legið á sófanum heima hjá ömmu minni grátandi. Ég man að ég horfði á myndband með Destiny‘s Child og hugsaði: Beyoncé er stjarna – ég vil verða stjarna. Ég vil vera í sjónvarpinu.“ Segja má með sanni að draumur- inn hafi ræst. Breiðið út samkennd Í ár stofnaði hún samtökin Born This Way Foundation (BTWF) og hrinti af stað átakinu Body Revolution. Með átakinu vildi hún minna fólk á að það er fallegt, sama hvernig það lítur út eða hvaða stöðu það hefur í samfélaginu. Hún vill að átakið stuðli að hugrekki og samkennd. Samkenndina telur hún mikilfenglegt afl. „Breiðið út sam- kennd,“ sagði hún við gesti í Hörpu. Nýlega lét Lady Gaga taka myndir af sér á nærfötunum. Myndirnar birti hún á vefsíðu sinni, Little Mon- sters. Með ljósmyndunum fylgdi yf- irlýsing frá tónlistarkonunni: „Í dag tek ég þátt í líkamsbyltingunni til þess að hvetja til hugrekkis og sam- kenndar.“ Myndbirtingin kom í kjölfar mikillar umfjöllunar um holda- far Lady Gaga sem hefur bætt á sig nokkrum kílóum. Hún seg- ist lítt velta fyrir sér þyngdaraukn- ingunni. „Mér líður ekki illa yfir þessu, ekki í eina sekúndu,“ sagði Lady Gaga sem gerði það opinbert að hún hafi glímt við átraskanir, lystarstol og lotugræðgi frá fimmt- án ára aldri. n n Hefur glímt við átröskunarsjúkdóma frá unga aldri n Með friðarmerkið húðflúrað á úlnlið 10. október 2012 Miðvikudagur „Ég er ungur og óreyndur aktívisti Óhefðbundin og ein- læg baráttukona 22 Menning Lady Gaga tók í gær við viðurkenningu úr LennonOno- friðarsjóðnum í Hörpu. Hún er einbeitt og óhefðbund- in baráttukona sem hefur lagt fjölda mála lið síðustu ár. DV fylgdist með Lady Gaga á Íslandi og fór yfir feril hennar. Einbeittur vilji „Ég gekk eins oft og ég gat að minnisvarða um John Lennon,“ sagði Lady Gaga einlæg í Hörpu í gær. Hún hefur haft óbilandi hug til góðra verka síðan í æsku. Dáist að Jóni Gnarr Lady Gaga sagðist snortin af ræðu Jóns Gnarr, sem mætti í jedi- búning í Hörpu og ræddi um aktívisma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.