Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Side 11
Þ
etta mál er sérlega sársauka-
fullt og sorglegt fyrir mig og
hefur verið dómsmál síðan
árið 2011. Lögmaður minn
hefur ráðlagt mér að ræða ekki um
málið opinberlega meðan það er fyr-
ir dómi,“ segir Eggert Dagbjartsson,
íslenskur fjárfestir sem búsettur er
í Cambridge í Massachusetts-fylki í
Bandaríkjunum, um dómsmál sem
hann hefur höfðað gegn eignarhalds-
félagi Boga Pálssonar fjárfestis, Shd
Acquisition LLC, vegna viðskipta
þess með svefnrannsóknarfyrirtækið
Flögu í ágúst í fyrra.
Það sem kemur í veg fyrir að Egg-
ert geti kært málið til lögreglunnar í
Bandaríkjunum er sú staðreynd að
bandarískur banki var ekki aðili að
viðskiptunum. Samkvæmt banda-
rískum lögum kemur þessi stað-
reynd í veg fyrir að opinberir aðil-
ar í Bandaríkjunum geti rannsakað
málið og hugsanlega ákært hlutað-
eigandi eftir atvikum. Sömu sögu má
því segja um mál Arion banka gegn
Boga.
Vinir og samstarfsmenn til
margra ára
DV greindi frá inntakinu í stefnu
Arion banka gegn Boga Pálssyni
í sama málinu á mánudaginn var
og hefur nú stefnu Eggerts gegn fé-
lagi Boga undir höndum. Mál Egg-
erts gegn Boga er rekið fyrir dómi í
borginni Denver í Colorado-fylki í
Bandaríkjunum. Eggert er einn af
hluthöfum Flögu, sem í dag heit-
ir Sleep Holdings LLC, og hefur átt
hlut í félaginu frá árinu 2000 og setið
í stjórn þess frá sama tíma. Hann hef-
ur átt 44 prósenta hlut í Flögu síðast-
liðin ár. Inntakið í stefnu Eggerts er
að Boga hafi borið að veita honum
upplýsingar um sölu á eignum Flögu
þar sem hann hafi bæði verið hlut-
hafi í félaginu og stjórnarmaður.
Bogi og Eggert höfðu því unnið
saman um margra ára skeið en Bogi
hafði verið stjórnarformaður Flögu
frá árinu 2005. Auk þess eru þeir
sagðir hafa verið góðir vinir fram að
viðskiptum Boga með eignir Flögu í
fyrra.
Blekkingar og fjársvik
Stefna Arion banka gegn Boga gekk
út á að Bogi Pálsson hefði svikið og
blekkt bankann í ágúst í fyrra þegar
hann keypti tæplega 12 milljóna
dollara skuldir Flögu af bankanum
fyrir 4 milljónir dollara. Þremur vik-
um seinna seldi hann eitt af dóttur-
félögum Flögu fyrir 16 milljónir
dollara, fjórum sinnum hærra verð.
Bogi hafði gert samning við bank-
ann í árslok 2008 í tengslum við fjár-
hagslega endurskipulagningu Flögu
en samkvæmt honum átti hann að
vinna að því fyrir hönd bankans að
selja eignir Flögu uppi í skuldirnar
við Arion banka og eða endurfjár-
magna félagið. Bogi greindi bankan-
um hins vegar frá því að ekkert gengi
að finna kaupanda að eignum Flögu,
sumarið 2011, eftir að hann hafði
hafið samningaviðræður um kaup
bandaríska svefnrannsóknarfyrir-
tækisins Natus á einu af dótturfélög-
um Flögu, Emblu.
Þann 25. ágúst 2011 skrifaði Bogi
undir samning við bankann um kaup
á skuldum Flögu fyrir fjórar milljón-
ir dollara. Þremur vikum síðar seldi
Bogi Emblu til Natus fyrir 16,1 millj-
ón dollara, rúmlega 12 milljón dollara
munur var því á kaupverðinu á skuld-
um Flögu og söluverðinu á þessu
eina dótturfélagi. Bogi upplýsti Arion
banka hins vegar aldrei um viðræð-
urnar um söluna til Natus þrátt fyr-
ir að hann hefði átt að gera það sam-
kvæmt samningnum sem hann hafði
undirritað við bankann. Bankinn tel-
ur að Bogi hafi gert þetta til að hagnast
persónulega á viðskiptunum. Arion
krefst þess í stefnunni að samningi
bankans við Boga um kaup á skuld-
um Flögu frá því í ágúst 2011 verði rift
á þeim forsendum að um fjársvik hafi
í reynd verið að ræða.
Eggert lánaði Flögu
Í stefnu Eggerts gegn eignarhalds-
félagi Boga, sem hann stofnaði gagn-
gert um að miðjan ágúst 2011 til að
eiga í viðskiptunum við Arion banka,
kemur fram að hann persónulega
veitti Flögu lánalínu að upphæð tvær
milljónir dollara þegar félagið var
í fjárhagslegri endurskipulagningu
eftir hrunið 2008. Flaga hafði feng-
ið 1,3 milljónir dollara að láni frá
eignarhaldsfélaginu Sleep Holdings
Finance sem Eggert stofnaði gagn-
gert til að veita lánið. Í stefnunni
kemur fram að þetta tveggja milljóna
lán frá Eggerti hafi verið liður í fjár-
hagslegri endurskipulagningu Flögu
en Arion banki hafði meðal annars
gert Flögu að endurfjármagna fé-
lagið um tvær milljónir dollara sem
fyrst. Þá segir í stefunni að Bogi hafi,
öfugt við Eggert, ekki lánað félaginu
neina peninga á þessum tíma.
Þá er það nefnt að Bogi hafi sjálf-
ur fengið 250 þúsund dollara árs-
laun, meira en 30 milljónir króna,
frá Flögu meðan á fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækisins
stóð en lánið frá Eggerti var með-
al annars notað til að standa straum
af rekstrarkostnaði Flögu á þessum
tíma. Lánið frá Eggerti var því með-
al annars notað til greiða laun Boga.
Eggert, og hinn stjórnarmaður Flögu,
fulltrúi Arion í stjórninni, fengu hins
vegar engin laun fyrir störf sín.
Teiknaði upp dökka mynd
Lögmaður Eggerts segir í stefnunni
að líkt og í tilfelli Arion banka hafi
Bogi Pálsson ekki veitt Eggerti nein-
ar upplýsingar um viðræðurnar við
Natus um kaupin á Emblu. Á stjórn-
arfundi Flögu í júní í fyrra dró fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, David
Baker, upp dökka mynd af möguleik-
unum á því að selja eitthvað af eign-
um félagsins. Þá þegar höfðu þeir
sett upp sérstaka FTP-heimasíðu
með gögnum með fjárhagsupplýs-
ingum um Emblu þrjú ár aftur í tí-
mann sem Natus hafði aðgang að.
Þetta var gert sem liður í áreiðan-
leikakönnun fyrir sölu fyrirtækisins.
Í stefnunni segir að Bogi og Baker
hafi veitt Natus þær upplýsingar að
aðrir hluthafar Flögu fylgdust „náið
með öllum viðræðum“ um söluna á
Emblu. Þetta var hins vegar ekki rétt
þar sem Eggert og Arion banki vissu
ekki um viðræðurnar við Natus.
Bauð Eggerti að vera með
Þann 7. júlí árið 2011 sendi Bogi
tölvupóst til Eggerts og bauð hon-
um að taka þátt í að kaupa skuldir
Flögu af Arion banka. Í stefnunni
segir að í bréfinu hafi Bogi sagt að
jafnvel þó að einhverjir aðilar væru
áhugasamir um að kaupa eignir
Flögu þá væri söluferli á eignun-
um ekki langt komið. Á sama tíma
stóðu viðræðurnar um kaupin á
Emblu yfir við Natus. Bogi gaf Egg-
erti auk þess einungis tvo daga til
að taka eða hafna tilboði hans.
Orðrétt stóð í tölvupóstinum:
„Ég held að í versta falli muni það
taka mörg ár að fá fjárfestinguna til
baka án vaxta […] Í besta falli mun-
um við endurheimta fjárfestinguna
og vexti af henni til fulls með sölu á
SleepTech og Emblu. […] Ég er alls
ekki að reyna að sannfæra neinn
[…] um að þessi fjárfesting […] sé
ekki áhættulaus.“ Í stefnunni er
bent á að ekkert í tölvupósti Boga
hafi bent til þess að Flaga væri í
þeirri stöðu að geta selt eignir sín-
ar með skömmum fyrirvara upp
í skuldirnar við Arion banka, líkt
og síðar átti eftir að koma í ljós. Þá
segir að Bogi hafi viljandi „gefið
skamman frest til að taka tilboðinu
til að koma í veg fyrir að það hlyti
hljómgrunn.“
Tveimur dögum seinna, þann
9. júlí 2011, greindi Natus fram-
kvæmdastjóra Flögu, David Ba-
ker, frá því skriflega að fyrirtæk-
ið vildi kaupa Emblu fyrir rúmlega
16 milljónir dollara. Bogi og Ba-
ker eru í stefnunni sagðir hafa rætt
um áhuga Natus þennan sama dag.
Viðræðurnar við Natus héldu áfram
allan júlí án þess að Bogi greindi
stjórn Flögu frá þeim. Í september,
eftir söluna til Natus, lá fyrir að fé-
lag Boga hafði hagnast um mörg
hundruð milljónir þvert á orð hans
sjálfs.
Vill Boga út
Í stefnunni eru kröfur Eggerts í
málinu raktar en meðal þeirra er
sú krafa að eignarhaldsfélag Boga
skili öllum hlutabréfum í Flögu,
nú Sleep Holdings, aftur til félags-
ins, að Boga verði bannað að ráð-
stafa eignum félagsins sem heldur
utan um hlutabréfin í fyrirtækinu
og hagnaðinn af sölunni til Nat-
us og að Eggert fái skaðabætur
frá Boga vegna viðskiptanna. Þá
er þess jafnframt krafist að Boga
verði meinað að koma að starf-
semi Flögu, nú Sleep Holdings, í
framtíðinni. Allar kröfur Eggerts
eru hins vegar í enn fleiri og ítar-
legri liðum.
Reiknað er að með að mál-
flutningur í máli Eggerts gegn
eignarhaldsfélagi Boga fari fram í
maí á næsta ári. n
Þjóðin eigi auðlindirnar
Fréttir 11Miðvikudagur 10. október 2012
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Eggert lánaði Flögu í nauð n Stefnir Boga í Denver n „Sársaukafullt“ mál
Sveik vin sinn
„Ég held að í versta
falli muni það taka
mörg ár að fá fjárfestinguna
til baka án vaxta
Teiknaði upp dökka mynd
Bogi teiknaði upp dökka mynd af
möguleikunum á því að selja eignir
Flögu með miklum hagnaði í tölvu-
pósti til Eggerts. Þeir voru vinir áður
en til viðskipta Boga kom.