Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Side 12
12 Erlent 10. október 2012 Miðvikudagur
M
yndirnar þeirra vinna ekki
Óskarsverðlaun og kom-
ast ekki á lista yfir að-
sóknarmestu kvikmyndirn-
ar í Hollywood. Þrátt fyrir það skapa
þær tekjur fyrir framleiðslufyrirtæk-
ið – og það miklar tekjur. Hér er átt
við bandaríska kvikmyndafyrirtækið
The Asylum sem oft er nefnt „rusla-
kista“ bandarískrar kvikmyndagerð-
ar. Fyrirtækið var stofnað árið 1997
og er þekktast fyrir að búa til kvik-
myndir sem svipar til stórmynda í
Hollywood (e. blockbusters). Með-
al þeirra má nefna myndirnar The
Terminators, The Da Vinci Treasure,
Transmorphers og Pirates of Trea-
sure Island sem eins og nöfnin gefa
til kynna eru skrumskælingar á vin-
sælum stórmyndum. The Da Vinci
Treasure er skrumskæling á The Da
Vinci Code, Transmorphers á Trans-
formers og Pirates of Treasure Island
á Pirates of the Caribbean.
Gerum þetta sjálfir
Bandaríska blaðið The Forbes fjall-
aði um þetta athyglisverða fyrirtæki
á dögunum. Stofnendur fyrirtækis-
ins og eigendur eru David Latt, Dav-
id Rimawi og Paul Bales sem allir eru
komnir fast að fimmtugu. Rimawi
missti vinnuna hjá ástralska kvik-
myndaverinu Village Roadshow árið
1996 og settist í kjölfarið að samn-
ingaborðinu með David Latt. Þeir
ákváðu að stofna kvikmyndafyr-
irtæki og búa til svokallaðar „art-
house“-kvikmyndir. Eftirspurnin eft-
ir slíkum myndum var lítil og gekk
litlum fyrir tækjum í hryllingsmynda-
og gamanmyndgeiranum mun bet-
ur. „Þegar þessar myndir voru góðar
voru þær keyptar af fyrirtækjum eins
og Lionsgate eða öðrum fyrirtækjum
sem höfðu efni á að borga vel fyrir.
Við spurðum okkur: Af hverju gerum
við þetta ekki bara sjálfir?“ segir Latt.
Höfðu rangt fyrir sér
Árið 2004 voru Latt og Rimawi að
vinna að gerð stórmyndar sem var
byggð á sögu H.G. Wells, The War of
the Worlds, þegar þeir fréttu að Para-
mount var að vinna að sama verk-
efni með Steven Spielberg og Tom
Cruise. Rimawi segir að fulltrúar
Paramount hafi verið kokhraust-
ir og fullyrt að enginn hefði áhuga
á ódýrri kvikmynd þegar 130 millj-
óna dala stórmynd stæði til boða.
„Þeir höfðu rangt fyrir sér,“ seg-
ir Rimawi. Mynd þeirra fór beint á
myndbandaleigur og gekk það vel
að þeir ákváðu að endurtaka leik-
inn með myndinni King of the Lost
World (skrumskæling á King Kong)
og The Da Vinci Treasures (skrum-
skæling á The Da Vinci Code).
Ágætur hagnaður
Óhætt er að segja að hjólin hafi far-
ið að snúast eftir þetta. Á þessu ári
ráðgera þremenningarnir að 28
kvikmyndir undir merkjum The
Asylum muni koma út. Í vor kom
út myndin Abraham Lincoln vs.
Zombies sem er skrumskæling
á myndinni Abraham Lincoln:
Vampire Hunter. Fyrrnefnda
myndin kostaði 250 þúsund dali
í framleiðslu, rúmar 30 milljón-
ir króna, en skilaði tekjum upp á
400 þúsund dali, rúmar 48 millj-
ónir króna. Hagnaður fyrirtæk-
isins síðustu tólf mánuði er 12
milljónir dala, eða tæpur einn og
hálfur milljarður króna. Fyrirtæk-
ið er með dreifingarsamninga við
Amazon, Xbox og Netflix sem gerir
það að verkum að myndir fyrirtæk-
isins eru aðgengilegar stórum hópi
viðskiptavina. Til marks um þessa
umdeildu velgengni má geta þess
að fyrirtækið hefur aldrei tapað á
kvikmynd sem það hefur framleitt.
Breyttu nafni myndar
Um það bil þriðjungur mynda The
Asylum eru skrumskælingar á stór-
myndum frá Hollywood. The Asyl-
um þykir umdeilt í meira lagi og
eru ekki allir áhugamenn um góða
kvikmyndagerð á eitt sáttir við fyr-
irtækið. Stóru kvikmyndaverin
hafa hótað málsóknum. Univer-
sal krafðist þess til dæmis að nafni
myndarinnar American Battleship
yrði breytt enda þótti það of líkt
nafni stórmyndarinnar Battleship
sem kom út á árinu. Forsvarsmenn
The Asylum urðu við kröfum Uni-
versal og breyttu nafninu í Americ-
an Warships.
Öll trixin í bókinni
Til að hagnast í kvikmyndabrans-
anum þurfa menn að vera snið-
ugir og forsvarsmenn The Asyl-
um kunna öll trixin í bókinni. Allar
myndir þeirra fara á svokallaðar
VOD-leigur (e. Video on Demand)
þar sem allir titlar birtast í staf-
rófsröð. Þetta nýtir fyrirtækið sér
og ber ein vinsælasta mynd þeirra
nafnið #1 Cheerleader Camp sem
gerir það að verkum að hún er
fremst í leigunni. Og í stað þess
að nefna aðra mynd Two-Headed
Shark Attack ákváðu þeir að nefna
hana 2-Headed Shark Attack.
Latt og Rimawi segja að á næstu
árum muni þeir fækka myndum
sínum og hætta að gera allt að
þrjár myndir í mánuði. Þeir ætli
sér að einblína á örlítið meiri gæði
sem líklega ætti að róa óánægða
aðdáendur góðra Hollywood-kvik-
mynda. n
n „Ruslakista“ bandarískrar kvikmyndagerðar gerir það gott – fjárhagslega
Hafa aldrei tapað
krónu á kvikmynd
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Þeir
höfðu
rangt fyrir sér
Þéna vel Rimawi og Latt
eru tveir af stofnendum
fyrirtækisins. Það hefur
grætt vel að undanförnu og
hagnast um rúman milljarð
síðastliðið ár.
Vafasamt The Da Vinci Treasure og The Da Vinci Code.
Sjóræningjar Hér sjást kápur myndanna
Pirates of Treasure Island og Pirates of the
Caribbean.
Skrumskæling Transmorphers og
Transformers.
Kókaín fyrir
stuðnings-
menn
Carme Cristina Lima, 32 ára kona
sem bauð sig fram til setu í bæj-
arráði Itacoatiara í Brasilíu, hefur
verið handtekin fyrir fíkniefnamis-
ferli. Carme ákvað að fara alla leið
þegar hún sóttist eftir stuðningi
bæjarbúa. Hún var handtekin á
dögunum – sama dag og kosn-
ingarnar fóru fram – en það vakti
athygli lögreglu þegar fjölmargir
flykktust að bifreið hennar þegar
hún kom á kjörstað. Reyndist hún
hafa dreift litlum pokum sem inni-
héldu kókaín til fólks á kjörstað
en með pokunum fylgdu einnig
leiðbeiningar um hvernig ætti að
kjósa hana.
Hættu við
fyrir hundinn
Nýgift hjón frá Wales hafa ákveðið
að hætta við rándýra brúðkaups-
ferð til Las Vegas og eyða pen-
ingunum sínum frekar í að borga
fyrir aðgerð sem hundur þeirra
þarf að gangast undir. Claire og
Ceri Morgan voru á leið í drauma-
ferð til Las Vegas þegar þau fengu
þær leiðinlegu fréttir að hundur-
inn þeirra, Teeto, hefði greinst með
krabbamein. Teeto þarf að gangast
undir dýra skurðaðgerð og gang-
ast undir lyfjameðferð til að halda
meininu í skefjum. „Við hikuð-
um aldrei. Teeto er mjög sérstakur
hundur og við gátum ekki annað
en notað peningana í að borga fyrir
meðferðina,“ segir Ceri Morgan.
Fjarlægja þurfti hægri fram-
löppina af Teeto en þrátt fyrir það
eru læknar bjartsýnir á að hann nái
bata.
Sandusky
fékk ævi-
langan dóm
Jerry Sandusky, fyrrverandi ruðn-
ingsþjálfari Penn State-háskól-
ans, hefur verið dæmdur í 30 til
60 ára fangelsi fyrir að misnota
börn. Sandusky var ákærður fyr-
ir að misnota tíu drengi á fimm-
tán ára tímabili en brotin framdi
hann meðal annars í húsakynn-
um skólans. Dómarinn í mál-
inu sagði áður en hann kvað upp
dóminn að Sandusky „yrði í fang-
elsi það sem eftir er“ og hann ætti
sér engar málsbætur. Verjandi
Sandusky sagði að dómnum yrði
áfrýjað. Málið vakti mikla athygli
þegar það kom upp en Penn State-
háskólanum var refsað fyrir að
koma ekki í veg fyrir brotin. Voru
allir sigrar skólans í ruðningi síð-
ustu fjórtán tímabil meðal annars
þurrkaðir út og skólinn sektaður
um 60 milljónir Bandaríkjadala,
eða 7,3 milljarða króna.