Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Blaðsíða 15
Partíin eru
endurvakin
Ég lít ekki á
mig sem feita Ég ann þessu landi
Jón Gunnar Geirdal ætlar að endurvekja Bond-partí með kampavíni og tilheyrandi. – DVYoko Ono er stödd hér á landi til að tendra friðarsúluna og veita friðarverðlaun. – DV.is
Fordómar, mismunun og transfólk
Spurningin
„Já, mig dreymdi um daginn að
ég væri að fá mér Coke og það
var í lit.“
Almar Örn Ívarsson
27 ára atvinnulaus
„Já, ég man það.“
Sandra Dögg Guðmundsdóttir
24 ára afgreiðsludama
„Nei, ekki í dag. Mig dreymdi þó í
lit áður fyrr.“
Egill Már Egilsson
24 ára matreiðslumaður
„Já, ég man vel eftir draumun-
um.“
Svanhildur Tekla Bryngeirsdóttir
16 ára nemi
„Já, mér finnst ég muna það.“
Alexander Svavarsson
17 ára nemi
Dreymir þig
í lit?
Í
vor samþykkti Alþingi ný lög um
réttarstöðu transfólks. Við vinnslu
frumvarpsins þurfti ég að horfast í
augu við mína eigin fordóma og það
var ekki þægilegt.
Við vinnslu málsins kom fjöldi
fólks á fund velferðarnefndar og þar á
meðal Anna Kristjánsdóttir. Ég hafði í
gegnum tíðina fylgst með henni í fjöl-
miðlum, lesið bloggpistlana hennar
og þótt þeir skemmtilegir. En þetta var
í fyrsta skipti sem ég hitti hana og það
var ekki auðvelt. Ég hafði áhyggjur af
því að horfa of mikið á hana, nota ekki
rétt kynorð og spyrja kannski of mikið.
Fundurinn var erfiður og óþægilegur.
Ég fann að ég var ekki ein um að
finnast það.
Fátt er nefnilega stærri hluti af okk-
ur en kyn okkar. Fyrsta spurningin
þegar við fæðumst er oftast hvort
við erum strákur eða stelpa, fötin og
snuðin eru í „réttum“ lit og uppeldi
okkar einkennist af líffræðilegu kyni.
Eftir samþykkt laganna sat þetta allt
saman í mér.
Ég hef talið mig frekar hleypidóma-
lausa manneskju og hef ekki oft þurft
að horfast í augu við mína eigin for-
dóma. Þó hef ég ætíð geymt með mér
frásögnina frá opnun Helfararsafnsins
í Washington DC, höfuðborg Banda-
ríkjanna. Þar hófst sýningin á því að
gestir urðu að velja á milli tveggja
hurða. Yfir annarri stóð „án fordóma“
og hin „með fordómum“. Þegar fólk
valdi hurðina merkt „án fordóma“ var
hún læst.
Þannig var fólk minnt á að enginn
er án fordóma. Ekki þú og svo sannar-
lega ekki ég.
Því spurði ég sjálfa mig: Ef þetta
voru mín „hleypidómalausu“ við-
brögð, hvernig ætli staðan sé almennt
varðandi mannréttindi transfólks? Ef-
laust hefði verið auðveldast að hrista
þetta af sér og sökkva sér í önnur við-
fangsefni. Leyfa þessu bara að liggja
og leyfa mér að hunsa þessi viðbrögð
mín.
Telja þau jafnvel eðlileg.
En ég gat það ekki. Ég hafði því
samband við Önnu og bað um að fá að
hitta hana og ræða hvað þyrfti að gera.
Hvað ég gæti gert? Hvað gæti Alþingi
Íslendinga gert?
Útskúfun, einelti og ofbeldi
Á síðustu áratugum hafa Íslendingar
tekið stór skref í átt að bættri réttar-
stöðu samkynhneigðra og tvíkyn-
hneigðra. Staða þessara hópa er orðin
með því besta sem þekkist í heimin-
um, en við eigum enn langt í land með
að bæta stöðu transfólks. Transfólk er
mun líklegra til að verða fyrir útskúfun,
einelti og ofbeldi en flestir aðrir þjóð-
félagshópar.
Einfaldlega fyrir að vera það sjálft.
Fáir hópar eru í jafn mikilli hættu
á að verða fyrir ofbeldi í heimin-
um og transfólk. Frá 1. janúar 2008
til 31. desember 2011 voru tilkynnt
816 morð á transfólki á heimsvísu.
Talið er að í Bandaríkjunum sé stór
hluti hatursmorða morð á transkon-
um. Eitt af nýrri dæmunum um mis-
þyrmingar á transfólki er frá Dan-
mörku. Þangað hafði 22 ára gömul
transkona frá Gvatemala flúið vegna
ótta við ofbeldis verk þarlendra stjórn-
valda. Þegar hún kom til Danmerkur
var henni vísað í flóttamannabúðir fyr-
ir einhleypa karla þar sem henni var
margsinnis nauðgað áður en dönsk
yfirvöld ákváðu að senda hana aftur til
heimalandsins þar sem hennar beið
ekkert nema dauðinn. Brottvísuninni
var afstýrt á síðustu stundu og mál
hennar tekið aftur upp. Nýlegt dæmi
hér á landi er þegar transmaður var
laminn á skemmtistað í Reykjavík fyrir
að fara á karlasalernið.
Þann 31. mars 2010 brást ráðherra-
nefnd Evrópuráðsins við með því að
gefa út tilmæli til aðildarríkja um að-
ferðir til að berjast gegn mismunun
á grundvelli kynhneigðar og kynvit-
undar. Þar er bent á að mannréttindi
samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og
transfólks þarfnist sérstakra aðgerða
eigi þau að vera virk.
Lagaleg vernd
Með samþykkt laga um réttarstöðu
fólks með kynáttunarvanda var ver-
ið að bregðast við áliti setts umboðs-
manns Alþingis. Í álitinu kom fram
að réttarbótar væri þörf til að tryggja
grundvallarmannréttindi transfólks
með vísan til 71. gr. stjórnarskrárinnar.
Nefndin sem samdi frumvarp það er
varð að lögum um réttarstöðu fólks
með kynáttunarvanda, nr. 57/2012,
vakti athygli á því við velferðarráðherra
og innanríkisráðherra að nauðsynlegt
væri að leggja til breytingar á ákvæð-
um almennra hegningarlaga er lúta
annars vegar að refsiverðri mismunun
í atvinnurekstri eða þjónustustarfsemi
og hins vegar að smánun annarrar
manneskju, vegna þjóðernis, litarhátt-
ar, kynþáttar, trúarbragða eða kyn-
hneigðar.
Því hef ég lagt fram frumvarp sem
tryggir réttarstöðu transfólks þannig
að refsivert verði fyrir aðila í atvinnu-
rekstri eða þjónustustarfsemi að neita
manneskju um vöru eða þjónustu
vegna kynvitundar hennar og að sama
skapi verði refsivert að ráðast opinber-
lega með háði, smánun, ógnun eða á
annan hátt á manneskju vegna kyn-
vitundar hennar. Með samþykkt þessa
frumvarps yrði vernd transfólks gegn
mismunun sambærileg og nú er vegna
mismununar á grundvelli þjóðernis,
litarháttar, kynþáttar, trúarbragða og
kynhneigðar.
Lagaleg vernd tekur þó aðeins á af-
leiðingum mismununar í garð trans-
fólks. Til að takast á við mismununina
sjálfa þurfum við, hvert og eitt, að horf-
ast í augu við eigin fordóma og taka á
þeim.
Friðarsinnar Yoko Ono veitti friðarverðlaun kennd við eiginmann sinn, John Lennon, í tónlistarhúsinu Hörpu á þriðjudag. Jón Gnarr borgarstjóri flutti ræðu við mikinn fögnuð
viðstaddra. Hér er hann ásamt Yoko Ono og Lady Gaga. Mynd Sigtryggur AriMyndin
Umræða 15Miðvikudagur 10. október 2012
Hann vildi ekki
sleppa mér
Lögreglumaður í Búlgaríu vildi ekki sleppa Ásdísi Rán nema hún gæfi honum símanúmerið sitt. – DV
„Transfólk er
mun líklegra
til að verða fyrir út-
skúfun, einelti og
ofbeldi en flestir
aðrir þjóðfélags-
hópar.
Aðsent
Eygló
Harðardóttir
1 Leigubílstjóri og lögregla á eftir Ásdísi Rán Vinsældir
fyrirsætunnar í Búlgaríu til trafala.
2 Fjarlægðu maga stúlku sem fékk drykk með fljótandi
köfnunarefni Varð andstutt og
fann fyrir miklum magaverkjum.
3 Fyrrverandi klappstýra gekkst við broti gegn nem-
anda Konan yfirgaf réttarsalinn með
nemandanum.
4 Framkvæmdastjórinn brást eftirlitsskyldu Fylgdist ekki
með fjármunum UMFÍ sem töpuðust
hjá VBS.
5 Á yfir höfði sér lífstíðarfang-elsi fyrir að misþyrma dóttur
sinni Límdi hendur hennar við vegg og
beitti hana barsmíðum.
6 Lady Gaga komin til Íslands Hitti aðdáanda við Hótel Borg og gaf
sig á tal við hann.
7 Lady Gaga hrærð yfir friðar-verðlaunaafhendingu „Ég er
ungur og óreyndur aktífisti,“ sagði
Lady Gaga hrærð þegar hún tók við
friðarverðlaunum LennonOno.
Mest lesið á DV.is