Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Blaðsíða 16
Börkur Gunnarsson Nú
gengur það fjöllum hærra að
þú hafir lekið upplýsingum í
Kastljós um skýrsluna um kaup ríkisins á
fjárhags- og mannauðskerfi, inn leið ingu
þess og rekstur. Er eitthvað til í því?
Björn Valur Gíslason Nei, nei.
Langt í frá. Ég hafði engar upplýs-
ingar um málið sjálfur enda hefði
ég þá gert eitthvað í því ef svo
hefði verið.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Finnst þér að það eigi að leita
að og jafnvel ákæra þann sem
lak skýrslunni í Kastljós?
Björn Valur Ég skil þau viðbrögð
Ríkisendurskoðunar að vilja
tryggja starfsemi sína og kanna
hvernig gögn geti lekið þaðan út.
En ég sé enga ástæðu til að leita
þann aðila uppi til að ákæra hann.
Baldur Guðmundsson
Fyndist þér eðlilegt að
ríkisendurskoðandi segði af
sér í kjölfar Skýrr-hneykslisins?
Björn Valur Mér finnst eðilegt
að forsætisnefnd þingsins finni
viðeigandi lausn á þessu máli öllu,
Ég læt það í hendur þingsins að
leggja þá lausn fram.
Aðalsteinn Kjartansson
Hefur þú trú á að flokkurinn
þinn verði aftur í stjórn á
næsta kjörtímabili?
Björn Valur Já, ég hef fulla trú á
því og vinn að því hörðum hönd-
um. Hvers vegna ætti það ekki að
gerast?
Fundarstjóri Ef þú býður þig
fram fyrir kosningarnar í vor,
telurðu líklegt að þú munir
fara úr Norðausturkjördæmi og bjóða
þig fram annars staðar?
Björn Valur Nei, það verður
NA-kjördæmi eða ekki. Annars er
sókn í framboð í NA-kjördæmi slík
að ég myndi leggja til að landið
yrði sameinað í eitt kjördæmi, sem
væri þá NA-kjördæmi.
Guðgeir Kristmundsson
Telurðu að VG geti starfað
áfram með Samfylkingunni ef
þeir setja ESB-umsókn á oddinn eftir
næstu kosningar? Ef ekki, með
hverjum geta VG-liðar unnið með í
ríkisstjórn?
Björn Valur VG og kratar eiga
samleið í flestum málum. ESB-
málin skilja þessa flokka að en
ég sé ekki að það þurfi að leiða til
þess að við getum ekki starfað
saman enda reynslan góð síðustu
árin. ESB-málið er ofmetið í
íslenskri pólitík að mínu mati.
Fundarstjóri Ef þú yrðir
ráðherra einn daginn, hvaða
ráðuneyti værir þú helst til í
að taka að þér?
Björn Valur Ráðherrar eru í
yfirmati og fá allt of mikið vægi í
umræðunni. Það erum við þing-
menn sem ráðum ferðinni þegar
upp er staðið. Ef svo ólíklega vildi
til þá myndi ég væntanlega horfa
til atvinnumála.
Ebenezer Ásgeirsson Eiga
ráðherrar sem brjóta lög að
segja af sér? Einföld spurning,
einfalt svar takk.
Björn Valur Ráðherrar eru ekki
yfir lög hafnir frekar en aðrir. Ef
þeir brjóta vísvitandi lög þá eiga
þeir að fá sömu „hanteringu“ og
aðrir landsmenn. Það á við um
þingmenn líka.
Ebenezer Ásgeirsson Þetta
var ekki einfalt svar. Ég get
hvorki brotið jafnréttis- né
stjórnskipunar- og stjórnsýslulög. Er
það í lagi eins lengi og það er ekki gert
með ásetningi?
Björn Valur Viðbrögð dómstóla
við lögbrotum eru mismunandi
eftir eðli brota og ásetningi. Það
var það sem ég átti við. Almennt
sagt má hins vegar segja að skort
hafi á siðferði í íslenskum stjórn-
málum í áratugi.
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Af hverju er bara sjávarauð-
lind skattlögð en ekki t.d.
orkuauðlindir?
Björn Valur Góð spurning. Þjóðin
á auðvitað að heimta afgjald
af nýtingu allra sinna auðlinda
og þannig verður það í nánustu
framtíð. Tillögur þess efnis liggja
nú þegar fyrir.
Reynir Traustason Gríðarleg
sjálftaka á sér stað í
slita stjórnum og skilanefnd-
um. Sérðu leið til að láta nefndarmenn
sæta ábyrgð?
Björn Valur Þær verða að axla
ábyrgð á sínum störfum – ef ekki
með góðu þá illu. Því miður hafa
stjórnvöld litla sem enga stjórn á
greiðslum sem streyma til þessara
aðila frá kröfuhöfum bankanna.
Ari Brynjólfsson Þegar
niðurskurðartímum er lokið
og byrjað er að útdeila aftur,
hvar á að byrja og hvar á að enda?
Björn Valur Niðurskurðinum er
lokið sem betur fer. Líkt og lofað
var þá munu þeir sem veikast
standa njóta þess fyrst eins og
fram kemur í fjárlagafrumvarpi
næsta árs, barnafjölskyldur og
lágtekjufólk.
Sigurður Þorleifsson Af
hverju virka ekki dómarnir í
gengismálunum, eru Árna
Páls-lögin fyrirstaða?
Björn Valur Gengismálin eru
flóknari en svo að einn dómur
gangi jafnt yfir alla, því miður.
Lánasamningar voru ólíkrar gerðar
og ákvæði samninga sömuleiðis.
Það þurfa að falla fleiri dómar
áður en hægt verður að klára þessi
mál til enda. En þetta tekur of
langan tíma fyrir þá sem bíða.
Pétur Jónsson Ert þú til í að
koma með frumvarp strax á
næsta ári um afnám
verð tryggingar? T.d. með því að festa
vísitöluna við það sem hún verður á
þeim tíma?
Björn Valur Nei, ég er ekki til í það.
Verðtrygging verður ekki afnumin
í einu vetfangi. Þeir sem halda því
fram eru að blekkja. Það skapast
fyrst aðstæður til slíks þegar efna-
hagsmálin hafa verið í góðu lagi í
nokkuð mörg ár og trú verður á því
að þannig verði það til einhverrar
framtíðar. Við eigum enn talsvert
langt í land með það.
Fundarstjóri Hver eru hæstu
laun sem þú hefur fengið fyrir
einn túr sem skipstjóri á
Kleifaberginu?
Björn Valur 2,5 milljónir eftir
þriggja vikna góðan túr úr Barents-
hafinu og aftur svipuð upphæð
sumarið 2009, sem var minn
síðasti túr á því góða skipi.
Baldur Guðmundsson
Finnst þér niðurstaðan í
sjávarútvegsmálunum
ásættanleg í ljósi þess að lagt var af
stað með fyrningu aflaheimilda og
endurúthlutun kvóta?
Björn Valur Já, veiðigjaldalögin
voru gríðarlega mikilvæg í því
sambandi. Það er ekki komin
niðurstaða í hinu málinu sem mun
auðvitað taka mið af veiðigjöldun-
um. Við erum á góðri siglingu í
þessum málum.
Tómas Sigurðsson Telurðu
mögulegt að starfa með
sjálfstæðismönnum eftir
næstu kosningar?
Björn Valur Nei, ekki miðað við
málflutning þeirra í dag. Það væri
útlokað að starfa með flokki sem
hefur nú lofað því að endurtaka
hrunið fái hann tækifæri ti þess.
Sjálfstæðisflokkurinn er langt
frá því búinn að gera upp sín mál
gagnvart þjóðinni. Þangað til það
verður er hann ósamstarfshæfur.
Reynir Traustason
Guðlaugur Þór Þórðarsson
alþingismaður hótaði þér
meiðyrðamáli. Ertu búinn að fá stefnu?
Björn Valur Nei, hann virðist
hafa skipt um skoðun. Veit ekki af
hverju. Kannski hefur hann ekki
svo góðan málstað að verja að
hann vilji láta á það reyna?
Vésteinn Gauti Hauksson
Sæll. Ef þú værir ríkisendur-
skoðandi – myndir þú segja af
þér?
Björn Valur Ef ég hefði lent í þeirri
stöðu sem þú ert að vitna til í mínu
starfi, þá myndi ég draga mig í hlé
a.m.k. tímabundið á meðan mín
mál væru skoðuð. Vona að til þess
komi ekki.
Baldur Guðmundsson
Finnst þér laun þingmanna of
há, hæfileg eða of lág?
Björn Valur Hæfileg held ég að ég
geti sagt. Ég uni sáttur við mitt.
Ebenezer Ásgeirsson Telur
þú að lög um landsdóm séu
góð eins og þau eru? Ætti að
nota landsdóm oftar?
Björn Valur Þau má eflaust bæta.
Það á að auka ábyrgð ráðherra
með bættri lagasetningu þar um.
Landsdóm á að kalla saman við
stærstu tilefni líkt og gert var
gagnvart Geir Haarde. Það var góð
ákvörðun.
Aðalsteinn Agnarsson Ertu
hlynntur frjálsum
handfæraveiðum?
Björn Valur Á meðan fiski-
stofnarnir eru takmarkaðir þá
er ég ekki fylgjandi „frjálsum“
veiðum af nokkru tagi. Ég vil þvert
á móti hafa góða stjórn á nýtingu
auðlinda sjávar. Strandveiðarnar
voru ekki til fyrir þremur árum,
þær eru enn að þróast til þess sem
verða mun í framtíðinni. En svo eru
stjórnmálaflokkar sem lofa því að
afnema þær. Kannski verður þetta
þá allt til einskis unnið.
Guðrún Konný Pálmadóttir
Sæll Björn Valur, hvernig
ætlar þú greiða atkvæði á
Alþingi um aðildarsamning að ESB ef
meirihluti segir já í þjóðaratkvæða-
greiðslu?
Björn Valur Ef sá samningur sem
lagður verður fram á endanum
verður góður að mínu mati, þá mun
ég segja já. Ef ekki, þá nei. Ég verð
á endanum að eiga það við sjálfan
mig eins og við öll. Aðalatriðið er
að við fáum eitthvað í hendurna til
að gera upp hug okkar, þ.e. klára
málið til enda.
Pétur Jónsson Í framhaldi af
spurningu Guðrúnar. Getur
þingmaður haft samvisku til
að kjósa annað en það sem þjóðin vill
– eftir þjóðaratkvæðagreiðslu?
Björn Valur Já, það getur hann.
Ég er ekki frábrugðin öðrum hvað
það varðar að glíma við mína eigin
samvisku og reyndar bundinn af
því með lögum sem þingmaður.
Það mun reyna á þetta í vetur
varðandi breytingar á stjórnar-
skránni. Því skýrari sem afstaða
kosninga er, því líklegar er að
þingið fylgi þeirri niðurstöðu.
Guðmundur Þorsteinsson
Sæll vertu. Hvernig er hægt
að koma í veg fyrir að
stjórnmál snúist upp í vinsældakeppni
og loforðafyllerí fyrir kosningar?
Hvernig er hægt að breyta kerfinu svo
fólk þurfi að standa við loforðin?
Björn Valur Það verður ekki
hægt. Stjórnmálamenn eru eins og
margir aðrir veikir fyrir lýðskrumi
og loddaraskap enda virðist það
ganga ágætlega hjá þeim, sbr.
fylgisaukningu íhaldsins. Kjósend-
ur verða að vera fastir fyrir og láta
okkur standa fyrir okkar máli og
reyna þannig að skilja kjarnan frá
hisminu. Það er eina leiðin.
Baldur Guðmundsson
Hvaða einn núverandi
alþingismaður finnst þér
standa sig best, utan VG?
Björn Valur Komm on! Þetta
er ósanngjörn spurning. Sumir
standa sig ágætlega á einu sviði
og aðrir á öðru.
Gísli Bogason Sæll. Hver eiga
samningsmarkmið okkar að
vera í sjávarútvegsmálum í
þeim viðræðum sem standa yfir við
ESB?
Björn Valur Ótakmörkuð yfirráð
yfir fiskistofnunum og auðlindum
sjávar sem lúta okkar stjórn
varðandi nýtingu og ráðstöfun en
ekki annarra. Engin þjóð með svo
mikilvæga auðlind myndi gefa
hana frá sér.
Ebenezer Ásgeirsson Kemur
til greina að fella niður
auðlegðarskatt á þá sem eiga
bara húsið sitt en eru ekki tekjuháir?
Eins og eldri borgarar sem búa í
skuldlausu húsi.
Björn Valur Það þarf auðvitað að
skoða öll slík tilvik. En almennt séð
á auðlindaskatturinn fullan rétt
á sér hér eins og annars staðar og
hefur reynst okkur vel.
Finnbogi Vikar Hvað varð til
þess að Hafró varð ekki
undirstofnun umhverfisráðu-
neytisins eins og þú vildir gjarnan?
Björn Valur Veit ekki nákvæm-
lega hvernig á því stóð. Ég hefði
kosið að hafrannsóknir færu til
umhverfisráðuneytisins. Ég ræð
bara svo litlu – því miður.
Birgir Olgeirsson Gætir þú
hugsað þér að vinna með
Samfylkingunni ef Árni Páll
yrði formaður flokksins?
Björn Valur Já, auðvitað. Sam-
fylkingin hefur um það að velja
núna að halda sig vinstra megin á
vaktinni eða snúa aftur til hægri.
Miðað við afleiðingar af þeirri
vitleysu haustið 2008 óttast ég
ekki að þau endurtaki þann leik,
hver sem formaðurinn verður.
Hjartað slær vinstra megin hjá
Samfylkingunni.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Hvaða verkefni er
mikil vægast að klára á þessu
þingi?
Björn Valur Stjórnarskrá, ramma-
áætlun og stjórn fiskveiða. Þetta
eru stóru málin. Reyndar þegar ég
lít til baka furða ég mig á hverju við
höfum áorkað í mörgum stórum
málum miðað við aðstæður.
Reiknaði ekki með þessu.
Fundarstjóri Telurðu að
kominn sé tími á formanns-
skipti innan VG eða ertu
ánægður með Steingrím?
Björn Valur Steingrímur ber
höfuð og herðar yfir aðra íslenska
stjórnmálamenn. Hann hættir
sem formaður þegar hann kýs svo
að gera. Hins vegar rennur sá tími
alltaf upp í lífi sérhvers manns að
hans tími kemur og þegar sú stund
rennur upp efast ég ekki um að
Steingrímur mun skynja hana og
víkja af vettvangi. Þá veljum við
okkur nýjan formann.
Kristinn Steindórsson Áttu
þér eftirlætisbjór?
Björn Valur Kalda. Dökk-
an og ljósan. Besti bjór í heimi – er
mér sagt – enda úr NA-kjördæmi.
Ingi Ingason Sæll Björn
Valur. Kanntu að spila á
bassa?
Björn Valur Já, örlítið. Spilaði
aðeins á bassa í nokkrum lögum
hinnar ástsælu gleðisveitar
Roðlaust og beinlaust. Fékk
ekkert sérstaka dóma fyrir það en
sanngjarna þó.
„Mæli með því að
lögreglan tékki á
því hvort hann sé
ekki með fleiri börn föst inni í
undirhökunni.“
Bjarni Einarsson í athugasemd
við frétt DV.is um bandarískan
karlmann, Victor Espinoza, sem
var handtekinn fyrir að reyna að ræna
tíu ára dreng í Kaliforníu. Espinoza, sem
er auðþekkjanlegur á stórri og mikilli
undirhöku, á afbrotaferil að baki og er
meðlimur í glæpasamtökum.
„Ég er ekki ástfanginn
af skóm. Er ég þá
gagnkynhneigðasti
samkynhneigði karlmaður
á Íslandi? Það eru áberandi
fordómar í þessu Sölvi.“
Barði Guðmundsson við
frétt DV.is um þau orð Sölva
Tryggvasonar að hann hljóti að
vera samkynhneigðasti gagnkynhneigði
karlmaður á Íslandi þar sem hann á yfir
50 skópör.
„Hefði ekki verið
eðlilegra að hand-
taka pissukarlana
þrjá? Er það bara hið fínasta
mál að míga inn um annarra
manna glugga, og það þrír
saman í hóp? Og er nema
von að húsráðandi bregðist
ókvæða við til að verja eign
sína og helgi heimilisins?“
Ásgeir Ingvarsson við frétt
DV.is um karlmann sem stökk út
úr íbúð í miðborginni með sveðju
að næturlagi. Var maðurinn mjög ósáttur
við þrjá menn sem köstuðu af sér vatni inn
um glugga á heimili hans.
„Tek undir með
Birgittu. Í sögubók-
um framtíðarinnar
verður Hrunvaldur númer eitt,
skilgreindur sem afglapi sem
leiddi þjóð sína fram af bjarg-
brúninni með hörmulegum
afleiðingum. Og einnig hirðin
sem studdi hann með ráðum
og dáð í frjálshyggjubrjálæð-
inu, þar er Eimreiðarhraðlestin
nærtækasta dæmið.“
Leifur A. Benediktsson í
athugasemd við frétt um Birgittu
Jónsdóttur og það sem hún
kallar sögufölsun Björns Bjarnasonar og
Davíðs Oddssonar, fyrrverandi ráðherra
Sjálfstæðisflokksins. Héldu þeir því meðal
annars fram að búsáhaldabyltingin hefði
verið „þaulskipulögð múgárás“ á Alþingi
íslendinga.
„Jóhannes hefur
alltaf verið maður
fólksins þrátt fyrir
sín feilspor. Hann hefur sína
bresti eins og aðrir.“
Jóhanna G. frá Ströndum í
athugasemd við frétt DV um
Jóhannes Jónsson kaupmann.
Jóhannes var gestur í Sjálfstæðu fólki,
þætti Jóns Ársæls, á sunnudag þar sem
hann fór meðal annars yfir farinn veg í
viðskiptum.
„Ég er búinn að
kynna mér seðilinn
og ég er búinn að
lesa bæklinginn sem var
sendur á öll heimili í landinu.
Ég horfði á myndbandið og
þar með var það endanlega
ákveðið að ég ætla að kjósa.“
Jack Hrafnkell Daníelsson við
myndband sem birtist á DV.is. í
myndbandinu settu landsþekktir
einstaklingar sig í spor þeirra sem telja
stjórnarskrárkosningar ekki skipta máli.
16 Umræða 10. október 2012 Miðvikudagur
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
52
42
17
Nafn: Björn Valur Gíslason
Aldur: 52 ára
Menntun: Skipstjórnarpróf og
kennsluréttindi
Starf: Alþingismaður
M
Y
N
D
IR
S
IG
TR
Y
G
G
U
R
A
R
I
Mun ekki vinna með
Sjálfstæðisflokknum 61
19
Björn Valur Gíslason, þingmaður og formaður fjárlaganefndar Alþingis, var á Beinni línu DV.is á mánudag
11