Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Síða 18
Njóttu meNNiNgar
á hagkvæmaN hátt
Sparar með því að sleppa þvotti
n Þvær fötin í sturtu n Notar vatn í stað klósettpappírs
Í
kreppunni hafa ef til vill margir
þurft að sníða sér stakk eftir
vexti. En hvar liggja mörkin
á milli þess að vera nirfill og
þess að vera sparsamur? Í þáttun-
um Extreme Cheapskates á sjón-
varpsstöðinni TLC er fylgst með
nokkrum sparsömum einstakling-
um og hvernig þeir lifa.
Í fyrsta þættinum var kynntur
til leiks New York-búinn Kay. Spar-
semi hennar hefur vakið gífurlega
mikla athygli en Kay hefur ekki
þvegið þvott á hefðbundinn máta í
heil þrjú ár og þá notar hún aldrei
pappírsþurrkur eða salernis-
pappír.
Kay notar ekki þvottavél eða
þurrkara. „Þegar ég þarf að þvo
óhrein föt, reyni ég að þvo þau
meðan ég er í sturtu,“ segir hún.
„Ég held að síðasta skipti sem ég
þvoði þvott á hefðbundinn máta
hafi mögulega verið fyrir þremur
árum.“
Svona fer Kay að: Hún þvær föt-
in með þvottaefni sem hún fær frítt
í formi prufa. Hún nuddar óhrein-
indin úr fötunum meðan hún sjálf
fer í sturtu og hengir þau svo til
þerris í sturtuklefanum.
Hún sér heldur enga þörf á að
nota pappír til hreinlætis og hefur
skipt út klósettpappírnum fyrir
vatnsbrúsa og segir vatnið duga
vel til þvotta eftir klósettferðirnar.
„Ég trúi ekki á það að eyða pen-
ingum í eitthvað sem þú hend-
ir hvort sem er, svo sem klósett-
pappír eða pappírsþurrkur,“ segir
hin sparsama Kay. n
kristjana@dv.is
18 Neytendur 10. október 2012 Miðvikudagur
Algengt verð 257,40 kr. 260,60 kr.
Algengt verð 257,20 kr. 260,40 kr.
Höfuðborgarsv. 257,10 kr. 260,30 kr.
Algengt verð 257,40 kr. 260,60 kr.
Algengt verð 259,60 kr. 260,60 kr.
Melabraut 257,20 kr. 260,40 kr.
Eldsneytisverð 9. okt.
BeNsíN Dísilolía
Miðla
viskunni
n Lofið að þessu sinni fær Reykja-
víkurborg fyrir framtak sitt
Heilahristing. Börn í grunnskól-
um Reykjavíkur geta sótt sér að-
stoð við heimanámið á þremur
bókasöfnum í borginni og fá að-
stoð eldri borgara og háskólanema.
Á Borgar bókasafni Reykjavíkur í
Tryggvagötu er tekið á móti börn-
um á þriðjudögum og fimmtudög-
um frá 15 til 17 og fá þau ávexti og
safa að til að sækja sér
orku. Lofsvert fram-
tak og góð hugmynd að
virkja eldri borgara til að
miðla visku sinni
til hinna yngri.
Heilahristing-
ur er í boði fyrir
fyrir nemendur í
5.–10. bekk.
Kreditkortið
ekki nóg
n Lastið að þessu sinni fær versl-
unin BT í Skeifunni. Viðskiptavin-
ur ætlaði að kaupa Playstation 3
leikjatölvu, leik og stýripinna í BT í
Skeifunni um daginn. Hann hugð-
ist gera raðgreiðslusamning með
kreditkortinu sínu og reiddi það
fram fyrir upphæðinni, sem nam
hátt í hundrað þúsund krónur, en
var þá krafinn um önnur skilríki;
ökuskírteini eða debetkort. Það
hafði hann ekki meðferðis en af-
greiðslumaðurinn stóð fastur á
sínu. „Ég fer þá bara yfir í ELKO
hérna í næsta húsi,“ sagði við-
skiptavinurinn við afgreiðslumann-
inn. Það gerði hann og verslaði þar
vörur fyrir rétt liðlega hundrað þús-
und krónur sem hann dreifði á rað-
greiðslusamning án vandkvæða.
DV hafði samband við verslunar-
stjóra í BT í Skeifunni og bar málið
undir hann. Sagði hann starfs-
menn ættu eingöngu
að biðja um önnur
skilríki ef viðskipta-
vinur væri að gera
raðgreiðslusamn-
ing. „Þetta er í
raun bara öryggi
korthafa og til að
koma í veg fyrir að kort séu
misnotuð og það kemur
til af dapurlegri reynslu að
þessi regla er sett.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Öfgafullur sparnaður Fylgst er með sparnaði Kay í þáttunum Extreme Cheapskates
sem sýndir eru á TLC-sjónvarpsstöðinni.
n Kauptu áskriftarkort í leikhús n Kynntu þér fríðindi kvikmyndahúsa
E
f þú sækir reglulega leiksýn-
ingar, ferð á sinfóníutón-
leika eða skellir þér í kvik-
myndahús er um að gera að
nýta þá afslætti og fríðindi
sem boðið er upp á. Miðaverð með
áskriftarkortum leikhúsanna getur
til að mynda verið þrjátíu prósent-
um lægra en ef keyptir eru miðar á
stakar sýningar. Þá bjóða sum kvik-
myndahúsanna upp á fríðindakort
sem veita töluverðan afslátt bæði af
miðaverði og veitingum.
Borgarleikhús
Áskriftarkort Borgarleikhússins tryggir
leikhúsgestum fjórar sýningar að eigin
vali á aðeins 12.900 krónur. Almennt
miðaverð á sýningar leikhússins er
4.400 krónur svo afslátturinn er um
þrjátíu prósent. Þeir sem eru yngri en
25 ára fá áskriftarkort á 8.900 krónur.
Kortin virka þannig að leikhús-
gestir velja þær sýningar sem þeir
vilja sjá og fá úthlutað sýningardög-
um. Nokkrum dögum fyrir sýningar
eru sendar áminningar með smá-
skilaboðum.
Ef dagsetningarnar henta ekki
hverju sinni skal hafa samband við
miðasölu þar sem starfsfólk aðstoðar
gesti eftir fremsta megni.
Þjóðleikhús
Áskriftarkort Þjóð-
leikhússins eru á
sama verði, eða
12.900 krónur. Al-
mennt miðaverð er
það sama, 4.400 krón-
ur, og því afslátturinn einnig sá sami.
Ungmennakortin, fyrir 25 ára og
yngri eru þó dýrari hjá Þjóðleikhús-
inu og kosta 9.900 krónur.
Innifalið í áskriftarkortinu eru
fjórar sýningar að eigin vali af allri
dagskrá vetrarins.
sinfóníuhljómsveit íslands
Áskrift af tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands veit-
ir tuttugu prósenta afslátt af
venjulegu miðaverði og er jafn-
framt hvatning til að sækja tón-
leika reglulega. Áskrifendur ganga
að sætum sínum vísum og eiga for-
kaupsrétt þegar áskrift er endurnýj-
uð. Þá fá áskrifendur tíu prósenta af-
slátt af viðbótarmiðum á alla tónleika.
Hægt er að kaupa mismunandi gerðir
áskriftarraða og er afslátturinn meiri
eftir því sem fleiri raðir eru keyptar.
Ef keyptar eru tvær áskriftarraðir er
veittur tuttugu og fimm prósenta
afsláttur en ef keyptar eru þrjár er af-
slátturinn þrjátíu prósent.
Bíó Paradís
Hægt er að kaupa árskort í Bíó Para-
dís á 10.900 krónur. Sé miðað við að
kortagestir sæki tólf sýningar á ári er
afslátturinn tuttugu og átta prósent.
Ýmis önnur fríðindi fylgja þó kortun-
um sem gera afsláttinn enn veglegri.
n Ein frí sýning í mánuði.
n Tveir fyrir einn á frumsýn-
ingar mynda á fyrsta almenna
sýningardegi.
n Fimmtán prósenta afsláttur
af almennu miðaverði (nemar,
eldri borgarar og öryrkjar fá tutt-
ugu og fimm prósenta afslátt).
n Mánaðarleg tilboð á almenningum
veitingum, þar með talið léttvín.
n Ýmiss konar sértilboð hjá sam-
starfsaðilum Bíó Paradísar sem
kynnt eru jafnóðum.
sambíóin
Fríðindakort Sambíóanna nefnist
Bíókortið. Um er ræða kort sem
hægt er að fylla á með mismun-
andi tilboðspökkum. Bæði er
um að ræða lægra miðaverð á
kvikmyndasýningar og ódýrari
veitingar. Hægt er að fylla á kortin
á netinu og í miðasölum Sambíó-
anna. Hægt er að nálgast bíókortin
í miðasölu Sambíóanna í Álfa-
bakka. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Menning Áskrift-
arkort leikhúsanna
veita allt að þrjátíu
prósenta afslátt af
leiksýningum.