Víkurfréttir - 17.12.2009, Blaðsíða 14
JÓLAAUGLÝSINGASÍMINN ER 421 000014 VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Salan fer fram í Húsasmiðjunni á Fitjum.
Jólatré–norðmannsþinur–fura–greni
jólatrésfætur–leiðiskrossar–skreyttar greinar
Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála
Jólatréssala
Opið virka daga kl. 16–21
og um helgar kl. 14–21
Jólasveinar verða á ferðinni milli
kl. 15:00 og 17:00 laugard. og sunnud.
Eftir lokun Húsasmiðjunnar er keyrt inn
í timburport Húsasmiðjunnar
Kiwanis
Hópsskóli, nýr og glæsilegur grunnskóli
Grindavíkur, var vígður í
liðinni viku við hátíðlega
athöfn. Tilkoma hans
verður bylting í skólastarfi
í Grindavík. Í Hópsskóla
flytjast 1. og 2. bekkur um
áramótin en skólinn verður
svo fyrir 1. til 4. bekk en
gamli grunnskólinn verður
fyrir 5. til 10. bekk. Um 200
manns mættu á vígsluna,
þar á meðal nemendurnir
sem hefja störf eftir
áramót og foreldrar þeirra.
Skólastarf hefst 4. janúar
samkvæmt stundaskrá.
Verktakafyrirtækið Grindin
í Grindavík sá um smíði
hússins. Fyrsta skóflustunga
var tekin 24. júní 2008.
Verktíminn var 17 mánuðir
en fyrsta steypan kom
í mót 29. júlí 2008.
Jóna Kristín, fyrrverandi
bæjarstjóri sem tók fyrstu
skóflustunguna á sínum
tíma, afhenti Maggý Hrönn
skófluna að gjöf sem notuð
var við þá athöfn á sínum tíma
og verður skóflunni fundin
góður staður í skólanum. Þá
var Hópsskóli blessaður og
sá séra Elínborg Gísladóttir
sóknarprestur og séra Jóna
Kristín um þá athöfn.
Maggý Hrönn Hermanns-
dóttir er skólastjóri hins
nýja Hópsskóla.
Hópsskóli tekinn í
notkun með viðhöfn
Bæjarbúar fjölmenntu í opnunarhátíð skólans.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Konukvöldin vinsæl
Blóma- og gjafavöruverslunin Blómaval í verslunar-
miðstöðinni á Fitjum hefur haldið tvö vinsæl konukvöld á
síðustu vikum. Hefur búðin hreinlega verið fyllt af konum
sem hafa notið góðrar skemmtunar og getað gert góð kaup á
sérstökum afslætti sem hefur verið þessi kvöld. Fleiri myndir
frá konukvöldum Blómavals á vef Víkurfrétta.