Ægir - 01.04.2015, Blaðsíða 10
10
Strandgötu 1 Neskaupstað Sími:4700 800 Fax:4700 801
• Veiðarfæraþjónusta
• Gúmmíbátaþjónusta
• Fiskeldisþjónusta
Stöðug þróun veiðarfæra í samvinnu
við sjómenn og útgerðir.
Fjarðanet er aðili að Hampidjan Group
Neskaupstaður / Fjáskrúðsfjörður / Akureyri / Ísafjörður
www.fjardanet.is fjardanet@fjardanet.is
Víðtæk þekking og reynsla
í uppsetningu og gerð veiðarfæra
Alhliða veiðarfæraþjónusta í höndum fagmanna
landi? Ég velti til dæmis fyrir
mér, af hverju má ekki veiða um
helgar? Ég ímynda mér að það
sé vegna þess að menn hafi tal-
ið að þar með myndu koma inn
aðilar í þessar veiðar sem hefðu
þetta sem hobbý. En þá segi ég
á móti, hver á fiskinn í sjónum?
Eigum við hann ekki öll? Ég segi
bara, veriði velkomin í þessar
veiðar því við eigum öll þessa
auðlind. Í dag er það þannig að
veiðileyfið fyrir strandveiðarnar
kostar röskar sjötíu þúsund
krónur og síðan borgum við til
ríkisins í kringum 20 krónur af
hverju veiddu kílói. Ég tel að ef
mætti veiða fiskinn á sem hag-
kvæmastan hátt væri unnt að
greiða hærra gjald til ríkisins af
hverju kílói.“
Aldrei einmana á sjónum
Strandveiðarnar hófust 4. maí
sl. og þær standa út ágúst.
Veiðunum er skipt upp í fjögur
veiðisvæði og ákveðið afla-
magn er skilgreint fyrir hvert
svæði. Reynslan er sú að lítið
veiðist á norðursvæðinu í maí
og fyrripart júní en það er ekki
fyrr en komið er að lokum júní
og fram í júlí að sá guli fer að
gefa sig svo einhverju nemur á
norðursvæðinu.
Árni Ketill er með bátinn
sinn á Dalvík á meðan á strand-
veiðitímabilinu stendur og gerir
hann þaðan út. Ástæðan er ein-
föld, þaðan er styttra á miðin en
frá Akureyri. Raunar segir hann
að útilokað væri að stunda
strandveiðar frá Akureyri,
vegna þess hversu langt er það-
an á miðin. „Ég hef verið á þess-
um strandveiðum frá upphafi,
þessi vertíð er sú sjöunda í röð-
inni,“ segir Árni Ketill og játar
því að þó svo að hann telji
nokkra vankanta á strandveið-
unum séu þær skemmtilegar.
„Þetta getur vissulega verið
skemmtilegt og það er með
þetta eins og aðrar veiðar að
það hleypur í mann ákveðinn
keppnisandi, að standa sig vel
og gera betur í dag en í gær. Og
þó að ég sé einn á bátnum er
ég aldrei einmana því ég hlusta
Bátur Árna Ketils, Fleki EA-46, áður Siggi í Bót.