Ægir - 01.04.2015, Blaðsíða 16
16
„Sjómannadagurinn hefur gef-
ið eftir, ef svo má segja, á
nokkrum stöðum á landinu þar
sem sjávarútvegurinn var
sterkur en mikil samþjöppun
hefur breytt hlutunum. Hins
vegar er sjómannadagurinn
mikil og vaxandi hátíð á mörg-
um stöðum á landinu þar sem
útgerð stendur styrkum fótum.
Í því sambandi má nefna
Grindavík, Reykjavík, Vest-
mannaeyjar, Patreksfjörð,
Fjarðabyggð og Snæfellsnes. Í
Ólafsfirði hefur dagurinn sömu-
leiðis verið mikil hátíð og Akur-
eyri hefur verið að koma inn
aftur eftir töluverða lægð,“
segir Valmundur Valmundsson,
formaður Sjómannasambands
Íslands.
Valmundur var um árabil
formaður Sjómannafélagsins
Jötuns í Vestmannaeyjum en
hann var síðan kjörinn formað-
ur Sjómannasambandsins á
þingi þess í desember sl. Sem
formaður Jötuns lagði hann sín
lóð á vogarskálarnar í endur-
reisn sjómannadagsins í Eyjum
og þar er nú staðið að deginum
með myndarlegum hætti.
Í skötu til Árna Johnsen
Valmundur er þegar fluttur upp
á land frá Vestmannaeyjum en
engu að síður ætlar hann að
vera í Eyjum á sjómannadaginn
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, ætlar að fagna sjómannadeginum með Eyjamönnum, þar sem hann hann var lengi
formaður Sjómannafélagsins Jötuns. Mynd: Óskar P. Friðriksson.
Sjómannadagur
um ókomna tíð
Sjómannadagurinn er eðlilega mikill hátíðisdagur í því mikla og rótgróna útgerðarplássi sem Vestmannaeyjar
eru. Mynd: Óskar P. Friðriksson.
S
jóm
a
n
n
a
d
a
g
u
rin
n