Ægir - 01.04.2015, Page 26
26
Óskum HB Granda og áhöfn til
hamingju með glæsilegt skip
Klettur - Sala og þjónusta
Klettagörðum 8-10 - 104 Reykjavík
„Það liggur við að maður fái í
hnén að horfa á Venus hér fyrir
aftan okkur. Þetta er líkt og að
sjá fegurðardrottingu á sviði,“
sagði Ólafur Áki Ragnarsson,
sveitarstjóri Vopnafjarðar-
hrepps í ávarpi við móttöku
Venusar NS.
Ólafur Áki sagði það mikinn
heiður fyrir Vopnfirðinga að
Venus NS verði skráður með
sína heimahöfn á staðnum.
Hann sagði HB Granda hafa
byggt upp eina tæknivæddustu
og öflugustu fiskvinnslu lands-
ins á Vopnafirði á síðustu árum.
„Þar er um að ræða hátækni-
vinnslu í hæsta gæðaflokki og
mikil framþróun sem hefur orð-
ið á mjög stuttum tíma,“ sagði
hann.
Ólafur Áki boðaði hafnar-
framkvæmdir á Vopnafirði til að
mæta þjónustu við stærri og
öflugri skip. Á næstu tveimur
árum verður innsigling m.a.
breikkuð og fleira úrbætur
gerðar í höfninni en kostnaður
mun nema um 300 milljónum
króna. Efnt verður til útboðs
innan skamms og reiknar Ólaf-
ur Áki með að fyrstu fram-
kvæmdir geti hafist í haust.
„Stjórnendur sveitarfélagsins
eru meðvitaðir um að höfnin er
lífæð samfélagsins og um mikil-
vægi þess að hún sé sem best
úr garði gerð til að tryggja sem
öryggi sjófarenda,“ sagði Ólafur
Áki.
Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.
Heiður að skip-
ið sé skráð á
Vopnafirði