Ægir - 01.04.2015, Side 28
28
Ker Umbúðamiðlunar eru
eingöngu ætluð til leigu
undir matvæli.
„Við hjá HB Granda höfum lagt
mikla áherslu á gæðamál og
Venus er stórt skref til betri
gæða. Öflugra kælikerfi, betri
tankar, meiri ganghraði og
dæling afla úr poka frá skut í
stað þess að dæla frá síðu skips-
ins eru allt atriði sem stuðla að
betri gæðum,“ sagði Vilhjálmur
Vilhjálmsson, forstjóri HB
Granda í ræðu við formlega
móttöku Venusar NS á Vopna-
firði. Fjöldi gesta kom til
Vopnafjarðar af þessu tilefni og
m.a. Sigurður Ingi Jóhannsson,
sjávarútvegsráðherra, sem
ávarpaði gesti. Birna Loftsdótt-
ir gaf skipinu formlega nafn við
þetta tækifæri, sr. Stefán Már
Gunnlaugsson, sóknarprestur
Vopnfirðinga blessaði skipið og
loks söng Karlakór Vopnafjarð-
ar.
Óhjákvæmileg fækkun sjómanna
Vilhjálmur vakti athygli á þeirri
þróun sem orðið hefði í upp-
sjávarflota Norðmanna á síð-
ustu árum þar sem öflugri skip
hafi leyst þau eldri af hólmi;
skip með meiri ganghraða og
betri búnaði til aflameðferðar.
Samhliða hafi fækkun orðið í
áhöfnum skipanna. Þessa braut
hafi íslenskar útgerðir verið að
feta sig að undanförnu en í stað
13 manna áhafnar á Ingunni AK
verði 7-8 á togveiðum á Venusi.
Venus NS og Víkingur munu
leysa af hólmi þrjú skip fyrir-
tækisins, Ingunni, Faxa og
Lundey og Vilhjálmur sagði
vissulega eftirsjá í 10-12 góðum
sjómönnum sem hverfi úr
starfsmannahópi fyrirtækisins
við þessar breytingar.
Vilhjálmur segir hvað
stærstu breytinguna fyrir
þrautvana áhafnarmeðlimi á
Venusi felast í vinnuaðstöðunni
en ólíku verði saman að jafna
við þá aðstöðu sem þekkst hafi
þegar skipin eru fulllestuð og
liggja neðarlega í sjó. Slíku
verði ekki til að dreifa á hinu
stóra og öfluga skipi, Venusi.
Vilhjálmur vakti athygli á að
Vopnfirðingar fögnuðu síðast
nýsmíði árið 1983 þegar tog-
báturinn Eyvindur Vopni kom í
fyrsta sinn til heimahafnar og
10 árum áður kom skuttogarinn
Brettingur nýr til Vopnafjarðar.
Bæði eru þessi skip enn í notk-
un.
Farsælt skipsnafn
Skipsnafnið Venus er gróið í ís-
lenskri útgerðarsögu og í sögu
HB Granda en afi Vilhjálms og
nafni, Vilhjálmur Árnason, skip-
stjóri, stofnaði árið 1936 til út-
gerðar á togaranum Venusi GK.
Netabátur í eigu sama félags
bar síðan þetta nafn og síðan
var frystitogari með Venusar-
nafninu í eigu Hvals hf. og síðar
HB Granda hf. „Farsæld hefur
fylgt og mun fylgja nafninu,“
sagði Vilhjálmur.
Stórt skref í átt til betri gæða
- segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda ávarpar gesti við mót-
tökuathöfnina á Vopnafirði.
Það eru jafnan mikil tímamót þegar nýtt skip bætist í flota landsmanna.
Frá vinstri: Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, Sigurður
Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, Ólafur Áki Ragnarsson, sveitar-
stjóri Vopnafjarðarhrepps og Guðjón Jónsson, skipstjóri.