Ægir - 01.04.2015, Blaðsíða 34
34
Það er hraustlega tekið á því.
Sjóarinn síkáti í Grindavík:
Sjómannadagshátíðin
aldrei verið veglegri
Grindvíkingar blása að vanda
til mikillar hátíðar um sjó-
mannadagshelgina og sem fyrr
undir merkinu Sjóarinn síkáti.
Rjóminn af bestu skemmti-
kröftum landsins mætir til leiks
og er dagskráin metnaðarfull
og miðuð að öllum aldurshóp-
um. Fjörið hefst föstudaginn 5.
júní og stendur til sjómanna-
dagskvölds, 7. júní.
„Dagskráin hefur aldrei verið
glæsilegri en á meðal nýjunga í
ár má nefna Skonrokkstónleika
á laugardagskvöldinu, fiskasafn
með lifandi sjávardýrum í fiska-
búrum á bryggjukantinum við
hátíðarsviðið á sjómannadegin-
um, keppnin Sterkasti víkingur
heims með 8 útlenda keppend-
ur, körfuboltamót fyrir yngri
iðkendur, leiktæki verða nú
einnig á bryggjuballinu á föstu-
dagskvöldinu, Sjóara síkáta
hlaupið og síðdegistónleika á
hátíðarsviðinu. Þá verða Vísis-
systkinin með minningartón-
leika um Palla og Möggu í
Grindavíkurkirkju auk þess sem
í tilefni af 50 ára afmæli Vísis er
bæjarbúum og gestum Sjóar-
ans síkáta boðið að skoða fisk-
vinnslur fyrirtækisins undir leið-
sögn eigenda,“ segir í upplýs-
ingum um hátíðina frá Grinda-
víkurbæ.
Að vanda verður Sjómanna-
og vélstjórafélagið með mjög
veglega dagskrá á sjómanna-
deginum auk þess sem margt
annað skemmtilegt verður í
boði fyrir alla fjölskylduna í
Grindavík.
Sjóarinn síkáti er til heiðurs
sjómanninum og fjölskyldu
hans. Ítarlega dagskrá má finna
á heimasíðu hátíðarinnar, www.
sjoarinnsikati.is
Litskrúðugar grindvískar blómarósir.
F
réttir