Ægir - 01.04.2015, Side 38
38
„Fyrirtækin verða rekin áfram
undir sömu nöfnum en með
þessu munum við sérhæfa þau
hvort á sínu sviði og efla um
leið,“ segir Friðrik Sigurðsson,
eigandi Tækni ehf. í Reykjavík
sem nýverið keypti fyrirtækið
Bæti ehf. sem rekið hefur verið
í um 30 ár. Hið síðarnefnda er
þekkt fyrir viðhalds- og við-
gerðarþjónustu véla, sem og
innflutning og sölu varahluta í
vélar. Tækni ehf. hefur undan-
farin ár bæði rekið hliðstæða
þjónustu við vélbúnað, auk
þess að að reka málmsmíða-
deild. Stór hluti verkefna
beggja fyrirtækjanna snýr að
sjávarútveginum en í kjölfar
breytts eignarhalds verða véla-
deildirnar sameinaðar undir
merkjum Bætis en Tækni mun
einbeita sér að málsmíðinni.
Meiri þekking á einum stað
Friðrik starfaði til sjós sem vél-
stjóri til ársins 2006 að hann
kom í land og stofnaði fyrirtæki
sem þjónustaði báta og skip. Í
framhaldi af því festi hann kaup
á Tækni ehf. m.a. til að svara
aukinni eftirspurn eftir þjón-
ustu hans við sjávarútveginn og
til að nýta samlegðaráhrif úr
rekstri málmsmiðju og véla-
þjónustu.
„Bætir ehf. hefur um árabil
annast þjónustu við stór og
þekkt merki í vélbúnaði skipa
og má þar nefna t.d. Caterpillar,
Cummins, Perkins, Deutz og
Mitsubishi. Nú bætist við þekk-
ing starfsmanna Tækni ehf. í
þjónustu við Yanmar vélarnar
þannig að við erum að leggja
saman krafta okkar og þekk-
ingu til að veita enn betri þjón-
ustu,“ segir Friðrik sem gerir ráð
fyrir að starfsmenn í heild verði
fyrst um sinn 13-14. Hann segir
stóran hluta verkefna fyrirtækis-
ins unninn um borð í skipum
og bátum en þegar svo ber
undir eru vélar teknar á verk-
stæði Bætis við Smiðshöfða í
Reykjavík.
Auk viðhalds og viðgerða-
þjónustunnar hjá Bæti flytur
fyrirtækið inn og selur varahluti
frá Caterpillar, Komatsu og De-
troit Diesel, mæla frá Isspro,
hosur, síur fyrir vélar frá Baldw-
in og fleira mætti telja.
Þörf á fleiri
málmiðnaðarmönnum
Eftir sem áður framleiðir Tækni
ehf. ýmsar vörur úr áli og stáli.
„Af búnaði sem við framleiðum
og eigum jafnan á lager má
nefna t.d. línustokka, hífibúnað
fyrir bretti, brettaklafa, bretta-
gálga og ýmislegt fleira. Með
þessari hagræðingu verður
rýmra um smíðina hjá okkur í
Súðarvogi en innan fyrirtækis-
ins er mikil þekking í málm-
smíði fyrir sjavarútveginn og
aðrar atvinnugreinar.
Ég tel þetta því farsælt skref
og óttast ekki að skortur verði á
verkefnum. Hjá okkur og öðr-
um fyrirtækjum í málmiðnaði er
áhyggjuefnið miklu fremur að
fá starfsmenn því það er mikil
þörf á að fleiri mennti sig í
greininni. Launin hafa verið of
lág í málmiðnaði um árabil og
mikil þörf er á að atvinnurek-
endur og fagfélög í greininni
ásamt skólunum og öðrum
hagsmunaaðilum leggist á eitt
að snúa þessari þróun við,“ seg-
ir Friðrik.
Gleðilega sjómannadagshátíð!
Tækni og Bætir verða
systurfyrirtæki
Gunnar Gunnarsson, forstjóri og eigandi Bætis ehf. og Friðrik Sigurðsson, eigandi Tækni ehf. handsala kaup þess síðarnefnda á Bæti.
Þ
jón
su
ta
s