Ægir - 01.04.2015, Page 48
48
Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður
Sími 422 2442 - GSM 899 7807 - Fax 467 1203
endur er langt í frá boðlegur og
eitthvað verður að fara að ger-
ast,“ segir Þorsteinn sem lengi
hefur átt sæti í samninganefnd
Sjómannasambandsins. Sá
samningur sem síðast var gerð-
ur við sjómenn segir hann hafa
verið eins konar friðþægingu,
„og það er mitt mat að sjómenn
hafi gengið með skarðan hlut
frá borði í þeim samningi,
menn eru að sjá það eftir á. Það
hefur gengið vel undanfarin ár,
afli verið góður og fyrir hann
fengist gott verð þannig að sjó-
menn hafa verið með ágætis
tekjur. Það má hins vegar ekk-
ert bregða út af, ef aðstæður
breytast og hlutirnir ganga ekki
að óskum detta sjómenn fljótt
niður í tekjum.“
Má ekki sofna á verðinum
Öryggismálin eru einnig ávallt í
brennidepli og þegar að þeim
kemur má ekki sofna á verðin-
um . „Þau mál eru í góðu horfi,
fyrst og fremst fyrir tilstuðlan
Slysavarnaskóla sjómanna, sem
þjálfað hefur íslenska sjómenn í
áraraðir með góðum árangri. Í
því sambandi má nefna að ekk-
ert banaslys varð á Íslandsmið-
um á liðnu ári og slysum á sjó-
mönnum hefur fækkað mjög
með hverju árinu sem líður,“
segir Þorsteinn. Jötunn hefur í
hyggju að færa Sæbjargar-
mönnum veglega gjöf af því til-
efni.
Öflugt félag
Jötunn í Vestmannaeyjum
fagnaði 80 ára afmæli sínu á
síðasta ári og var haldið veglegt
hóf af því tilefni skömmu fyrir
áramót. „Félagið er öflugt,
félagsmenn eru vel á þriðja
hundraðið auk þess sem inn í
það koma menn sem starfa
tímabundið við afleysingar hér í
Eyjum. Fyrst og fremst erum við
að gæta hagsmuna okkar
félagsmanna, það er okkar hlut-
verk, en að auki hefur félagið
töluverða umsýslu í tengslum
við rekstur samkomuhússins
okkar, Alþýðuhússins sem og
skrifstofunnar. Þá á félagið tvær
orlofsíbúðir í Reykjavík sem eru
vinsælar meðal okkar félaga,“
segir Þorsteinn.
Sjómannadagurinn er fram-
undan og jafnan er mikið um
dýrðir í Vestmannaeyjum á
þessum helsta hátíðisdegi ís-
lenskra sjómanna. „Við eigum
okkar stórhátíðir hér í Eyjum,
sjómannadagurinn og þjóðhá-
tíð, þetta eru okkar helstu há-
tíðisdagar. Það er ávallt mikið
um að vera hjá okkur á sjó-
mannadaginn og þátttaka í há-
tíðarhöldum góð, hér sýna
menn sjómönnum samstöðu,
enda er þetta okkar helsta lifi-
brauð, sjávarútveginn, útgerð
og fiskvinnsla og fjöldi heimila
á allt sitt undir að vel gangi á
þeim vettvangi,“ segir Þor-
steinn. Sjómannafélagið Jötunn
í samvinnu við VM- vélstjóra og
málmiðnaðarmenn og Skip-
stjóra- og stýrimannafélagið
Verðanda hafa veg og vanda að
hátíðarhöldum Sjómannadags-
ins í Vestmannaeyjum. „Það er
okkur mikilvægt að halda veg-
lega upp á sjómannadaginn, að
koma saman og gera sér glaðan
dag í tilefni af honum er samfé-
lagi eins og Vestmannaeyjum
nauðsynlegt.
Nokkrir félagsmenn í Jötni voru gerðir að heiðursfélögum á afmælishá-
tíð félagsins í lok liðins árs. Frá vinstri eru Páll Grétarsson kokkur á
Huginn VE, Elías Björnsson formaður Jötuns 1975-2008, Valmundur
Valmundsson, fyrrverandi formaður Jötuns og Ólafur Ragnarsson, fv.
skipstjóri. Á myndina vantar Jóhann Hjartarson fv. matsvein.