Ægir - 01.04.2015, Side 53
Saltkaup hf. • Cuxhavengata 1 • 220 Hafnarfjörður
Sími: 560 4300 • www.saltkaup.is
Þétt dagskrá er á Hátíð hafsins
sem haldin verður í Reykjavík
um sjómannadagshelgina. Há-
tíðarsvæðið nær frá Hörpu að
HB Granda og má segja að allt
svæði Gömlu hafnarinnar og
Grandagarðs iði af lífi meðan á
stendur. Hátíðin verður sett kl.
10 að morgni laugardagsins 6.
júní á Ægisgarði.
Meðal fjölmargra dagskrár-
atriða má nefna að franska
skútan Etoils verður til sýnis,
sem og færeyska skútan
Westward Ho. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar sýnir björgun úr sjó,
skemmtisigling fjölskyldunnar
verður í boði með Sæbjörginni
og fleiri aðilar bjóða upp á sigl-
ingar um sundin blá.
Á hátíðarsviði á Grandagarði
birtist Langsokkur skipstjóri og
sjóræningjagengi hans, Síldar-
stelpurnar, Bjartmar Guðlaugs-
son og hljómsveit skemmta,
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur,
Jogvan Hansen skemmtir,
Karlakór Reykjavíkur syngur og
fleira mætti nefna.
Dagskrá sjómannadagsins
sjálfs verður með hefðbundnu
sniði. Athöfn verður kl. 10 við
Minningaröldur sjómannadags-
ins og kl. 11 verður sjómanna-
messa í Dómkirkjunni.
Skemmtidagskrá hefst við HB
Granda kl. 13 og og hátíðardag-
skrá á sviðinu Grandagarði kl.
14 þar sem m.a. verða heiðraðir
sjómenn fyrir störf sín.
Hátíð hafsins er fjöl-
skylduhátíð sem leggur áherslu
á fróðleik um hafið og matar-
menningu hafsins í bland við
góða skemmtun. Að henni
standa Faxaflóahafnir og Sjó-
mannadagsráð. Hátíðin fjallar
um allt sem viðkemur hafinu,
menningu tengda sjómennsku,
skip, sjómenn, fisk, ýmsan fróð-
leik og sjómannalög.
Líf og fjör á Hátíð hafsins
Færeyska skútan Westward Ho verður til sýnis á Hátíð hafsins. Myndir: hatidhafsins.is
Kappróður er ómissandi hluti hátíðarhaldanna. Mikið er lagt upp úr að skemmta yngstu kynslóðinni.
S
jóm
a
n
n
a
d
a
g
u
rin
n
53