Öldrun - 01.11.2004, Side 4
4 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004
Á síðasta áratug 19. aldar vaknaði áhugi á að koma áfót fjórðungssjúkrahúsi á Austurlandi, jafnt fyrir
íbúa og sjómenn sem stunduðu veiðar á austfirskum
miðum, innlenda sem erlenda. Í kjölfarið var hafin
söfnun fyrir sjúkrahúsbyggingu á Seyðisfirði. Húsið var
flutt tilsniðið til Seyðisfjarðar frá Noregi, tilbúið árið
1898 og tekið í notkun árið 1901. Fyrsti héraðslæknir
sjúkrahússins var Kristján Kristjánsson og gegndi hann
því starfi þar til hann lést, árið 1927. Skurðlæknirinn
Egill Jónsson var næsti læknir við sjúkrahúsið, fram-
kvæmdi hann þar skurðaðgerðir þar til Fjórðungs-
sjúkrahúsið í Neskaupsstað var tekið í notkun árið 1957.
Á fyrri helmingi 20. aldarinnar voru sjúkrahúsin á
Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði einu sjúkrahúsin á Austur-
landi og sinntu þ.a.l. flestum sjúklingum fjórðungsins.
Mikil sjúkraþjónusta var við breska sjómenn og þann
mikla fólksfjölda sem dvaldi á Seyðisfirði á síldarár-
unum.
Árið 1977 var hafist handa við að byggja Heilsu-
gæslustöð á Seyðisfirði. Var hún tekin í notkun árið
1986 og sjúkradeildin árið 1992. Gamla sjúkrahúsið
þjónaði því Austfirðingum í rúm 90 ár. Heilabilunardeild
fyrir allt Austurland var opnuð árið 1998. Árið 1999 voru
allar ríkisreknar sjúkrastofnanir á Austurlandi samein-
aðar í Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA).
HSA - Heilbrigðisstofnunin á Seyðisfirði
HSA - Seyðisfirði skiptist í tvær megin þjónustuein-
ingar þ. e. heilsugæslusvið annars vegar og sjúkrasvið
hins vegar. Rekstrarstjóri, hjúkrunarstjóri og læknar
stöðvarinnar mynda saman framkvæmdaráð sem ber
ábyrgð á rekstri deildanna.
Húsnæði stofnunarinnar er á þremur hæðum. Á
annarri hæð eru rúmgóðar legudeildir með þjónustu-
kjarna ásamt borð- og setustofum. Á fyrstu hæð eru
heilsugæslustöð og skrifstofur og í kjallara er m.a.
aðstaða sjúkraþjálfunar, líkgeymsla og kapella.
Tækjabúnaður
Stofnunin er vel tækjum búin og síðustu ár hefur
töluvert bæst við af nýjum tækjum og gömul end-
urnýjuð. Á stofnuninni er fjarfundabúnaður sem hefur
nýst í samstarfi við sérfræðinga á Landspítala-háskóla-
sjúkrahúsi (LSH) við Hringbraut þar sem aðalverkefnin
Sigurveig Gísladóttir
hjúkrunardeildarstjóri
HSA Seyðisfirði/Heilsu-
gæslustöð
Sigrún Ólafsdóttir
hjúkrunarstjóri
HSA Seyðisfirði
HSA– Heilbrigðisstofnunin
á Seyðisfirði
Frá afhendingu á EKG-tæki.