Öldrun - 01.11.2004, Blaðsíða 36
36 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004
Aðalfundur Öldrunarfræðafélags Íslands (ÖFFÍ) varhaldinn 31. mars 2004 kl. 17-19 á Hjúkrunarheimil-
inu Eir. Formaður félagsins boðaði forföll, í hennar stað
setti Sigurveig H. Sigurðardóttir félagsráðgjafi fundinn.
Fundarstjóri var Sigurveig H. Sigurðardóttir og ritari
Marta Jónsdóttir. Í stjórn sitja einnig Ólafur Þór Gunn-
arsson gjaldkeri og Smári Pálsson ritstjóri Öldrunar. Í
varastjórn sitja Sigrún Guðjónsdóttir sjúkraþjálfari og
Sigrún Ingvarsdóttir félagsráðgjafi.
Ársskýrsla ÖFFÍ árið 2003
Í fjarveru formanns flutti Sigurveig ársskýrslu ÖFFÍ
fyrir árið 2003. Formaður tilkynnti að sérstakar árs-
skýrslur yrðu kynntar fyrir störf ritnefndar, fagtímarits-
ins Öldrunar, rekstrarreikning félagsins og vísindasjóð
ÖFFÍ.
Aðalstarf ÖFFÍ er námsstefnuhald í samvinnu við
Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.
Námsstefnan „Ofbeldi gegn öldruðum“ var haldin þ.
6. nóvember 2003. Sóttu um 100 manns þá námsstefnu.
Sökum dræmrar þátttöku var námsstefnan felld niður
sem halda átti 4. mars 2004 um „Rannsóknir á sviði öldr-
unarmála“ í samstarfi við Rannsóknarstofu Háskóla
Íslands og Landspítala-háskólasjúkrahúss í öldrunar-
fræðum.
Heiðursfélagar ÖFFÍ eru Alfreð Gíslason, Gísli Sig-
urbjörnsson, Þór Halldórsson, Ársæll Jónsson og Gunn-
hildur Sigurðardóttir.
Skýrsla um störf Vísindasjóðs ÖFFÍ
Formaður vísindasjóðs, Anna Birna Jensdóttir, til-
kynnti að engin umsókn um styrk hafi borist nefndinni.
En vegna tæknilegra vandamála hafi blaðið Öldrun ekki
komið út fyrir aðalfundinn. Þar af leiðandi hafi aug-
lýsingin frá vísindasjóði um styrk ekki náð út til félags-
manna fyrir fundinn.
Í stjórn vísindasjóðs eru auk Önnu Birnu Jensdóttur,
Guðný Bjarnadóttir og Ingibjörg Ásgeirsdóttir.
Skýrsla um störf ritnefndar Öldrunar 2003
Smári Pálsson kynnti störf ritnefndar. Einnig eiga
Soffía Egilsdóttir, Ólafur Samúelsson og Jóhanna Rósa
Kolbeins sæti í ritnefnd.
Skýrsla gjaldkera ÖFFÍ
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram endurskoðaða
reikninga félagsins og vísindasjóðs.
a. Rekstrar- og efnahagsreikningur félagsins var lagður
fram. Greiðsla frá Endurmenntun frá síðasta ári
hefur ekki borist.
Tekist hefur að ná inn 230 félagsgjöldum frá 300
félagsmönnum.
b. Reikningar vísindasjóðs voru lagðir fram. Inneign
vísindasjóðs er 5,4 milljónir.
Kosning stjórnar ÖFFÍ
Í stjórn sitja: Sigríður Jónsdóttir formaður, Marta
Jónsdóttir ritari. Ólafur Þór Gunnarsson gengur úr
stjórn og í stað hans kemur Ólafur Samúelsson í stöðu
gjaldkera. Meðstjórnendur eru Kristín Einarsdóttir iðju-
þjálfi sem er í barnseignarleyfi og í hennar stað situr
Hildur Þráinsdóttir iðjuþjálfi.
Varastjórn: Sigrún Guðjónsdóttir sjúkraþjálfari og
Sigrún Ingvarsdóttir félagsráðgjafi.
Ritnefnd: Jóhanna Rósa Kolbeins iðjuþjálfi gengur
úr ritnefnd. Í stað hennar kemur Berglind Indriðadóttir
iðjuþjálfi. Einnig eiga sæti í ritnefnd Soffía Egilsdóttir
félagsráðgjafi, Smári Pálsson sálfræðingur og Ólafur
Samúelsson öldrunarlæknir.
Vísindasjóður: Anna Birna Jensdóttir hjúkrunar-
forstjóri er formaður, Guðný Bjarnadóttir öldrunar-
læknir og Ingibjörg Ásgeirsdóttir félagsráðgjafi.
Endurskoðendur félagsins: Gunnhildur Sigurðar-
dóttir og Jónas Ragnarsson. Þau gefa kost á sér áfram.
Árgjald
Gjaldkeri lagði til að árgjaldið yrði áfram 1.750 kr.
Lagabreytingar
Engar tillögur lágu fyrir um lagabreytingar.
Önnur mál.
Marta Jónsdóttir, ritari
Aðalfundur
Öldrunarfræðafélags Íslands 2004
Styrkur
til umsóknar úr Vísindasjóði
Öldrunarfræðafélags Íslands
Sjá nánari upplýsingar á
www.oldrun.net
fyrir 31. janúar 2005.