Öldrun - 01.11.2004, Side 5
5ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004 www.oldrun.net
eru sónarskoðanir vegna meðgöngu í samvinnu við
kvensjúkdómalækni, auk tilraunaverkefnis í fjarlækn-
ingum í samvinnu við LSH: upplýsingatæknideild,
barnadeild, skurðdeild og háls-, nef- og eyrnadeild.
Þessi búnaður hefur einnig sannað notagildi sitt hvað
varðar endurmenntun starfsmanna, sem geta nú m.a.
fylgst með fyrirlestrum og sótt námskeið og fundi, sem
annars hefði þurft að sækja annað.
Lionsklúbburinn á Seyðisfirði hefur í gegnum tíðina
styrkt stofnunina dyggilega með góðum gjöfum. Á síð-
ustu árum gaf klúbburinn stofnuninni m.a. tæki til
sjúkraþjálfunar, sjúkraþjálfunarbekk, öflugt nuddtæki,
en slíkt tæki hefur ekki verið til hér áður og hljóðbylgju-
tæki, sem leysir af hólmi gamalt tæki sem var nánast
orðið safngripur. Nýjasta gjöfin er svo 24 tíma blóð-
þrýstingsmælir sem Lionsklúbburinn mun afhenda
HSA á haustdögum.
Heilsugæslustöð
Upptökusvæði Heilbrigðisstofnunarinnar á Seyðis-
firði er vel afmarkað og er aðallega Seyðisfjörður, en
vaktsvæði nær einnig til Loðmundarfjarðar og upp á
Fjarðarheiði. Íbúafjöldi er um 800 manns.
Á heilsugæslusviði er rekin læknisþjónusta með
tveim læknum sem skipta með sér einni stöðu; hjúkrun-
arþjónusta með einum hjúkrunarfræðingi/ljósmóður
sem jafnframt er deildarstjóri; röntgen- og rannsóknar-
þjónusta með hálfri stöðu meinatæknis; ritaraþjónusta
með eina stöðu ritara og tannlæknaþjónusta, sem er
einkarekin. Samstarfið á heilsugæslunni og á stofnun-
inni allri er til fyrirmyndar og gott andrúmsloft á vinnu-
staðnum.
Læknisþjónusta sinnir almennum lækningum og
heilsugæslu ásamt slysamóttöku, sónarskoðunum og
vaktþjónustu. Læknastöður eru báðar mannaðar sér-
fræðingum í heimilislækningum. Í samstarfi við Heil-
brigðisstofnunina á Egilsstöðum er tekið á móti 5. árs
læknanemum í starfsnám og er hver þeirra viku í senn.
Hjúkrunarþjónusta sinnir almennri heilsuvernd,
ung/smábarna- og mæðravernd, slysa- skóla- og heima-
hjúkrun. Á undanförnum árum hefur sífellt meiri
áhersla verið lögð á heimahjúkrun og samvinnu við
félagsþjónustu Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Koma annarra sérfræðinga
Sérfræðingar s.s. háls- nef- og eyrnalæknir, augn-
læknir og barnalæknir koma reglulega til Seyðisfjarðar.
Öldrunarlæknir kemur einu sinni á ári í tengslum við
þjónustusamning við heilabilunardeildina, en sinnir
einnig eftirliti með skjólstæðingum heilsugæslunnar ef
þörf krefur. Iðjuþjálfi er starfandi hjá HSA og hefur
aðsetur á Egilsstöðum. Iðjuþjálfi vinnur eftir beiðnum
frá Seyðisfirði og hefur verið mikið leitað til hans vegna
skjólstæðinga okkar og einnig til að fá faglegar ráðlegg-
ingar í starfi deildanna.
Sjúkradeild
Sjúkrasvið skiptist í tvær deildir, alls 22 rúm.
Almenn sjúkradeild, Suðurhlíð, með þremur rúmum
fyrir bráðainnlagnir og ellefu rúmum fyrir öldrunar-
hjúkrunarsjúklinga, alls 14 rúm. Hin deildin, Norður-
hlíð, er átta rúma sérdeild fyrir minnisskerta sjúklinga.
Boðið er upp á dagvistun við deildina fyrir 5 einstak-
linga í senn. Einnig er boðið upp á matarsendingar í
heimahús. Hvíldarinnlagnir á sjúkradeildina eru líka
möguleiki, t.d. til endurhæfingar í samvinnu við sjúkra-
þjálfara sem og í öðrum tilgangi.
Lögð hefur verið áhersla á að auka samskipti og
samvinnu við aðstandendur sjúklinga sjúkradeildar-
innar. Notast er við sérstök upplýsingablöð um ævi og
lífshlaup einstaklinga til að fá upplýsingar um íbúann
sem geta skipt máli í hjúkruninni frá degi til dags.
Starfsfólk á námskeiði hjá
Nordic Lights.