Öldrun - 01.11.2004, Síða 21
21ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004 www.oldrun.net
á vefsíðu Landlæknisembættisins um dánarorsakir
landsmanna á aldrinum 80-89 ára árið 1998 (4).
Upplýsinga um dánarmein heimilismanna var aflað frá
Hagstofu Íslands og náðu þær frá árinu 1996 til loka
árs 2002.
Niðurstöður
Rannsóknin náði til allra heimilismanna, sem létust
á þessu 7 ára tímabili. Alls létust 177 heimilismenn, 52
karlar og 125 konur. Meðalaldur beggja kynja við andlát
var rúm 87 ár. Í samanburðarhópnum á aldrinum 80-89
ára voru samtals 600 karlar og konur.
Í töflu 2 er borin saman hlutfallsleg tíðni aðalflokka
dánarmeina fyrir Íslendinga á aldrinum 80-89 ára, sem
létust árið 1998, við heimilismenn á hjúkrunarheimil-
inu. Í ljós kemur að dánartíðni heimilismanna er hærri
í flokkum F00-F99, G00-G99 og e.t.v. J00-J99 en hlutfalls-
lega lægri í flokki C00-D48. Með öðrum orðum eru það
einkum sjúkdómar í geð-, tauga- og í öndunarkerfum
sem voru mun algengari en hins vegar fannst mun
lægri tíðni af krabbameinum meðal heimilismanna á
hjúkrunarheimilinu.
Hlutfallstíðni algengustu dánarmeina heimilis-
manna borið saman við aldraða Íslendinga er sýnd á
töflu 3. Heimilismenn virðast hafa helmingi lægri tíðni á
bráðu hjartadrepi en aðrir landar á svipuðum aldri. Hins
vegar kemst jafnræði á tölur þegar talin eru saman
algengustu blóðrásarsjúkdómarnir: brátt hjartadrep,
kransæðakölkun, hjarnafleygdrep og slag. Heimilis-
menn hafa hærri tölur fyrir heilabilunarsjúkdóma, Park-
insons-veiki, helftarlömun og lungnabólgu. Algengustu
dánarmeinin ná aðeins til 74,2% heimilismanna og til
54,2% aldraðra Íslendinga í samanburðarhópnum. Þetta
þýðir að dreifing sjúkdómsgreininganna er mun meiri
meðal hinna síðarnefndu.
Á töflu 4 eru sýndar allar dánarorsakir heimilis-
manna á hjúkrunarheimilinu. Alls eru þetta um 48 sjúk-
dómsgreiningar en í samanburðarhópnum teljast þær
yfir 80. Af þessum 48 dánarorsökum heimilismanna
koma 28 fyrir aðeins einu sinni. Af 21 flokki í töflu 1, rað-
ast dánarmein heimilismanna í 10 en í 13 flokka hjá
samanburðarhópnum. Heilabilunarsjúkdómar koma
fyrir í þremur ICD-kóðunarflokkum og eru samanlagt
22% af dánarmeinum heimilismanna.
Umræður
Það þarf ekki að koma á óvart að rannsóknin á dán-
armeinum heimilismanna á hjúkrunarheimilum sýni
lága tíðni krabbameina. Skýringin kann að vera sú að
krabbamein leiði sjaldan til svo langvinnrar færniskerð-
ingar að til vistunar á hjúkrunarheimili þurfi að koma.
Auk þess eru biðlistar langir og aðgengi takmarkað að
reykvískum hjúkrunarheimilum. Það kemur líka í ljós
að sjúkdómar, sem flokkast undir geð- og atferlisrask-
anir og sjúkdómar í taugakerfi eru mun algengari en í
samanburðarhópnum, sem býr að mestu leyti utan
hjúkrunarheimila. Það kemur hins vegar á óvart að
heilabilunarsjúkdómar skuli ekki vera algengari meðal
dánarmeina heimilismanna.
Tíðni heilabilunar í rannsóknarhópnum var við
komu á hjúkrunarheimilið um 46% (1). Hér er trúlega
um vanmat að ræða þar sem sjúkdómagreiningar við
komu á heimilið voru mestmegnis fengnar úr fyrirliggj-
andi læknaskýrslum, sem gátu verið hvaðanæva að
komnar. Rannsókn á Vistunarmati aldraðra í Reykjavík
árið 1992 sýndi að 78,5% metinna einstaklinga í þörf
fyrir hjúkrunarrými reyndist vera með heilabilun á ein-
hverju stigi (5). Í opinberri skýrslu um heilsufar og
hjúkrunarþörf íbúa á öldrunarstofnunum árið 1994 kom
fram að einungis 15% vistmanna í hjúkrunarrými töld-
ust vera sjálfstæðir hvað varðar vitræna getu til athafna
daglegs lífs (6).
Í dánarnótum í dagálum heimilismanna var heila-
bilun næstalgengasta sjúkdómsgreiningin á eftir
lungnabólgu (1). Tíðni heilabilunar telst mjög há á
íslenskum hjúkrunarheimilum og þó hún sé skrásett í
dagálum, þá ratar hún ekki alltaf á dánarvottorðin. Og
þótt greiningin skili sér á dánarvottorðið, þá kann
hennar ekki að vera getið sem megindánarorsakar eða
dánarmeins. Geta má rannsóknar á dánarvottorðum frá
úrtaki Íslendinga utan stofnana sem sýndi að heilabilun-
arsjúkdómar voru ritaðir á dánarvottorðin í um 30% til-
Kóðar og sjúkdómaflokkar ICD 10
Kóði Sjúkdómaflokkur
A00-B99 Tilteknir smit- og sníklasjúkdómar
C00-D48 Æxli
D50-D89 Sjúkdómar í blóði og
blóðmyndunarfærum og tilteknar
raskanir sem ná til ónæmiskerfisins
E00-E90 Innkirtla-, næringar- og
efnaskiptasjúkdómar
F00-F99 Geð- og atferlisraskanir
G00-G99 Sjúkdómar í taugakerfi
H00-H59 Sjúkdómar í auga og aukalíffærum
H60-95 Sjúkdómar í eyra og stikli
I00-I99 Sjúkdómar í blóðrásarkerfi
J00-J99 Sjúkdómar í öndunarfærum
K00-K93 Sjúkdómar í meltingarfærum
L00-L99 Sjúkdómar í húð og húðbeð
M00-M99 Sjúkdómar í vöðva- og beinakerfi og
í bandvef
N00-N99 Sjúkdómar í þvag- og kynfærum
O00-O99 Ungun, barnsburður og sængurlega
P00-P96 Tilteknir kvillar með upptök á
burðarmálsskeiði
Q00-Q99 Meðfæddar vanskapanir, aflaganir og
litningafrávik
R00-R99 Einkenni, teikn og afbrigðilegar
klíniskar og rannsóknarniðurstöður,
ekki flokkað annars staðar
S00-T98 Áverki, eitrun og aðrar tilteknar
afleiðingar ytri orsaka
Z00-Z99 Þættir sem hafa áhrif á
heilbrigðisástand og samskipti við
heilbrigðisþjónustu
V01-Y98 Ytri orsakir sjúkleika og dánarmeina
Tafla 1
Kóðar og sjúkdómaflokkar ICD-10