Öldrun - 01.11.2004, Síða 31
31ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004 www.oldrun.net
Ilmkjarnaolíur
En hvað skyldi svo ilmkjarnaolía vera? Einfaldasta
svarið er e.t.v. fituuppleysanlegur jurtavökvi. Það er
auðvitað mismunandi hvað fólki finnst vera góð lykt;
orðið ilmur hefur jú jákvæða merkingu. Einhverjum
finnst hrein og klár ólykt af sumum olíunum og oft er ég
sammála. Reyndar ber að hafa það í huga, að ilmur og
gæði olíunnar fara eftir aðstæðum þar sem jurtin vex,
svo sem veðurfari, landslagi, jarðvegi og hæð yfir sjáv-
armáli.
Margur kann að spyrja af hverju sé talað um olíu
þegar jurtavökvinn er ekki feitur eins og olía. Ég get
einungis svarað því að hér er leiðinlegur misskilningur
á ferð og verður hann tæplega hrakinn til föðurhúsanna
héðan af. Á ensku er talað um „essential oils“ og á Norð-
urlöndunum „eterisk olje“. Hins vegar er ilmkjarnaol-
íunni yfirleitt blandað í feitar olíur fyrir notkun og alltaf
þegar um nudd er að ræða. Algengast er að nota þrúg-
ukjarnaolíu.
Margir hafa velt því fyrir sér hvar í plöntunni ilm-
kjarnaolían sé. Hún er í allri plöntunni, en efnasamsetn-
ing mismunandi eftir því hvort um er að ræða krónu-
blöð, stilk, fræ, blöð, ber, börk, barrnálar eða rót.
Tvær vinnsluaðferðir eru viðurkenndar í dag. Í
fyrsta lagi gufueiming og í öðru lagi pressun. Við eim-
ingu og pressun rofna þeir kirtlar sem innihalda olíuna
og hún skilst frá, tilbúin til notkunar. Mjög mismunandi
er hve mikla olíu hver jurt inniheldur.
• 100 kíló af eucalyptus gefa u.þ.b. 10 lítra af ilm-
kjarnaolíu
• 100 kíló af lavender gefa u.þ.b. 3 lítra af ilmkjarnaolíu
• 100 kíló af krónublöðum rósa gefa tæpa 2 millilítra af
ilmkjarnaolíu.
Ilmkjarnaolíur eru flestar frekar dýrar, mismunandi
þó og skýrist það af því að vinnsluaðferðirnar eru kostn-
aðarsamar og hve mikla olíu hver jurt inniheldur eins
og sjá má hér að framan.
Meðferðarform
Í aromaþerapy er algengasta meðferðarformið nudd
og virðist henta flestum. Nuddið er þægilegt, róandi og
veitir góða slökun. En sú aðferð hentar þó ekki öllum,
ræður þar líkamlegt og andlegt ástand hvers og eins.
Önnur meðferð getur falist í samtali og ráðleggingum
um heimameðferð. Bornar eru á líkamann eða líkams-
svæði ilmkjarnaolíur og/eða krem, unnið er með svæði
undir iljum og kenndar aðferðir til betri heilsu. Þetta
getur átt við um t.d. líkamsbeitingu, mataræði og
ábendingar um svefn og svefnvenjur. Böð og fótaböð
með ilmkjarnaolíum henta einnig mörgum.
Aldraðir og aromaþerapy
Nú kunna einhverjir að spyrja hvort aromaþerapy sé
nokkuð fyrir aldraða. Ilmkjarnaolíur eru mjög virk efni
sem ber að umgangast með varúð og virðingu. Sýnt
hefur verið fram á virkni þeirra af virtum erlendum vís-
indamönnum og stofnunum.
Víða í hinum vestræna heimi t.d. Englandi er aroma-
þerapy stunduð með góðum árangri jafnt á einkaheim-
ilum sem og á stofnunum fyrir aldraða. Þess eru dæmi
að aromaþerapy hafi í raun reynst sú aðferð sem skilað
hefur bestum varanlegum árangri. Þekktust eru dæmi
um legusár þar sem aromaþerapy var besta úrræðið.
Því miður er þó ekki á ferðinni einhver kraftaverka-
lækning, en meðferðin eykur alltaf lífsgæði þess sem
hana þiggur auk þess sem reynslan hefur sýnt að góðs
árangurs má vænta þegar læknar, hjúkrunarfólk og
aðrir meðferðaraðilar vinna saman. Aromaþerapy er
alltaf sérsniðin að þörfum hvers og eins. Aldraðir þurfa
næði, tíma og sveigjanleika, t.d. er nuddbekkur ekki
nauðsynlegur en það reynist mörgum erfitt að liggja
lengi á nuddbekk þótt hraustir séu. Aromaþerapy-með-
ferð er án hjáverkana, veitir góða hvíld og slökun, sem
kemur sér oft vel ef um er að ræða sjúkdóma sem t.a.m.
herja á stoðkerfi og húð. Sömuleiðis gagnast ilmkjarna-
olíur vel þar sem kvíði og/eða svefnröskun er til staðar.
Viðkomandi er venjulega einn með meðferðaraðila og
veitir það ákveðna nærveru og öryggi.
Fyrir hundruðum og þúsundum ára voru konungar
meðhöndlaðir með ilmkjarnaolíum. Í dag eru þær
aðgengilegar öllum og henta öldruðum sérstaklega vel.
Sjúklingum á sjúkradeildum L-1 og L-4, deildum fyrir
minnissjúka, á Landakoti hefur nú um nokkurt skeið
verið boðið upp á aromaþerapy með góðum árangri
sem hefur m.a. sýnt sig með bættum svefni, minni kvíða
og slökun.
Já, AROMAÞERAPY er fyrir aldraða því þeir eiga
aðeins skilið það besta.
Heimildir:
Fosstvedt, G. (1998). Naturens Duftende Apotek. Oslo: Gröndahl og
Dreyers Forlag
Price, S. (1999). Practical Aromatherapy. London: Thorsons.
Þorsteinn Guðmundsson. Aromatherapy.is
Ítarefni:
http://www.aromacaring.co.uk
http://www.stopgettingsick.com
http://www.alzheimers.org.uk
http://www.blackwell-synergi.com