Öldrun - 01.11.2004, Qupperneq 33
33ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004 www.oldrun.net
var hinsta ósk Péturs að þar yrði komið upp einhvers
konar heimili fyrir Alzheimers-sjúklinga.
Félagið tók þá ákvörðun að koma þar upp dagvist
fyrir minnissjúka. Á þeim tíma var, og er reyndar enn,
mikill skortur á slíkri starfsemi. Húsið er byggt árið
1954 og til að gera það nothæft fyrir slíka starfsemi
þurfti það mikilla endurbóta og lagfæringa við, sem
kostuðu ómælda fjármuni og vinnu af hendi margra
sem lögðu málinu lið. En draumurinn rættist. Í janúar
2001 tók dagvistin til starfa og rúmar fimmtán skjól-
stæðinga. Í húsinu er einnig skrifstofa FAAS. Dagvistin
hefur nú starfað í þrjú og hálft ár og gengur vel. Dag-
vistin nýtur daggjalda frá Tryggingastofnun ríkisins.
Stjórn FAAS er skipuð fimm einstaklingum og tveir
eiga sæti í varastjórn. Þessi sjö manna hópur ásamt fram-
kvæmdastjóra hittist einu sinni í mánuði eða oftar og
leggur á ráðin varðandi þau mál sem upp koma og efst
eru á baugi hverju sinni. Að sjálfsögðu hefur tekjuöflun
oft verið fyrirferðarmikill þáttur í því starfi. Einu föstu
tekjurnar sem félagið hefur eru félagsgjöldin. Sala minn-
ingarkorta gefur þó nokkrar tekjur.
Aðrar tekjur eru framlög einstaklinga
og fyrirtækja og það sem okkur tekst
að fá úr sjóðum hins opinbera. Fram-
kvæmdastjóri er sameiginlega hjá
félaginu og Fríðuhúsi í 50% starfi. Með
stjórninni starfar sex manna fagráð
staðsett á Landakoti. FAAS er í nánum
tengslum við ýmis önnur áhugamanna-
félög bæði hérlendis og erlendis. Við
eigum fulltrúa í stjórn ÖBÍ og fulltrúa-
ráði Eirar. Við erum félagar í Öldrunar-
ráði, Öldrunarfræðafélaginu, Banda-
lagi Evrópufélaganna og störfum náið
með samtökum norrænu Alzheimers-
félaganna.
Norrænu samtökin, sem saman-
standa af löndunum sjö, funda árlega
til skiptis í löndunum um málefni
minnissjúkra og aðstandenda þeirra. Á síðasta ári kom
út bæklingurinn Gæða skammtímavistun minnissjúkra.
Bætt lífsgæði. Hann var samvinnuverkefni þessara
félaga og var gefinn út á sex tungumálum. Nú vinna
félögin að bæklingi um dagvistir og gildi þeirra fyrir
minnissjúka.
Árið 2002 hóf félagið útgáfu á blaðinu FAAS-fréttir
og er áætlað að það komi út árlega fyrst um sinn.
Einnig var á því ári opnuð heimasíða FAAS sem er
www.alzheimer.is. Á næsta ári verður félagið 20 ára. Á
þeim tíma hefur margt áunnist í málefnum minnis-
sjúkra m.a. fyrir framgang félagsins. En betur má ef
duga skal. Það er mikið verk óunnið ekki síst á lands-
byggðinni. Í raun finnst mér sem við séum aðeins að
byrja. Það vantar svo margt upp á að þjónustan við
þennan þjóðfélagshóp sé ásættanleg í því velferðarþjóð-
félagi sem við búum í. Við heyrum gjarnan sagt á opin-
berum vettvangi: „Þjóðarhagur snýst um mannlega
vellíðan“.
Það hlýtur að eiga við um alla þjóðfélagshópa.
R E Y K J AV Í K – H A F N A R F I R Ð I
DVALARHEIMILIÐ
– ÁS –
HVERAGERÐI
Á fræðsludegi FAAS 18. september 2004. Frá vinstri: Jón Snædal öldrunarlæknir,
María Th. Jónsdóttir formaður FAAS og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra.