Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 51
49
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
hugrænnar kenningar Beck (1967, 1979) um að
tilfinningar og hegðun einstaklings ákvarðist
að miklu leyti af hugsunum hans um sjálfan
sig og umheiminn. Hugræn meðferð gengur
út á að bera kennsl á hamlandi hugsanir og
skemu sem liggja að baki þessum hugsunum
og leiðrétta þær. Einstaklingurinn lærir þannig
að leysa vanda og takast á við aðstæður með
því að endurmeta og leiðrétta þankagang sinn
(Beck, 1979).
Kjarni CIP-kenningarinnar er settur fram
sem pýramídi um úrvinnslu upplýsinga
sem tengjast ákvörðunum um nám og störf
(Pyramid of information processing domains)
og er þar byggt á kenningu Sternberg (1985)
um úrvinnslu upplýsinga (e. triarchic theory
of information processing). Pýramídinn er í
þremur lögum (sjá 1. mynd.): Neðst eru svið
þekkingar (e. knowledge domains) sem skiptast
í sjálfsþekkingu (e. self-knowledge), sem aflað
er t.d. með áhugakönnunum, og þekkingu á
störfum (e. occupational knowledge) (Peterson
o.fl., 1991; Sampson o.fl., 2004).
Svið ákvarðanatöku (e. decision skills
domain) er í miðjum pýramídanum. Innan þess
sviðs er CASVE-hringurinn sem sýnir fimm
stig ákvarðanatöku (sjá 2. mynd.): Boðskipti
(Communication), greiningu (Analysis),
samantekt (Synthesis), mat (Valuing) og
framkvæmd (Execution) (Peterson o.fl., 1991;
Sampson o.fl., 2004).
Sé að lokum litið aftur á pýramídann sést að
efst í honum er svið framkvæmdar og úrvinnslu
(e. executive processing domain) sem vísar til
þekkingar einstaklingsins á eigin hugsunum (e.
metacognitions) og samanstendur af þremur
þáttum sjálfstali (e. self-talk); sjálfsvitund
(e. self-awareness); eftirliti og stjórnun (e.
monitoring and control). Færni á þessu sviði
hefur áhrif á það hvernig einstaklingurinn
hugsar (jákvætt og neikvætt) og í framhaldinu
ber sig að við að leysa vandamál sem koma
upp við leit að námi og starfi (Peterson o.fl.,
1991). Jákvætt sjálfstal stuðlar til að mynda að
því að einstaklingurinn afli sér nauðsynlegra
upplýsinga um störf til að taka ákvörðun og
fylgi ákvörðuninni eftir með aðgerðaáætlun en
neikvætt sjálfstal gerir það að verkum að hann
verður síður virkur í ákvarðanatökuferlinu
(Sampson o.fl. ,2004). Pýramídinn lýsir
Meta- Executive
cognitions processing domain
Generic
information Decision
processing skills skills domain
(CASVE)
Self Occupational Knowledge
knowledge knowledge domains
1. mynd. Pýramídi um úrvinnslu upplýsinga (Pyramid of information processing domains).
Úr Peterson / Sampson, Jr. / Reardon. Career Development and Services, 1E. © 1991 Wadsworth,
hluti af Cengage Learning, Inc. Endurprentað með leyfi. www.cengage.com/permissions.
Íslensk þýðing og þáttabygging CTI