Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Blaðsíða 18
16
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
Mér finnst námið í skólanum áhuga- •
vert.
Mér finnst skemmtilegast að læra þegar •
námið fær mig til að hugsa.
Mér finnst gaman að læra stærðfræði.•
Annar þáttur skýrði um 16% dreifingarinnar
en honum tilheyrðu þrjár fullyrðingar um að
gaman væri að læra myndmennt, textílmennt
og hönnun og smíði. Þetta er því greinilega
list- og verkgreinaþáttur. Á þriðja þáttinn,
sem skýrði um 10% dreifingarinnar, féllu tvær
fullyrðingar, önnur um að gaman væri að læra
erlend tungumál og hin að gaman væri að læra
nýja hluti.
Skoðað var hvort marktækur munur væri
á þáttagildum (e. factor scores) eftir kyni og
aldri nemenda, þ.e. eftir því hvort þeir væru
í 6. eða 9. bekk. Munur var eftir kyni, stúlkur
voru áhugasamari á öllum þremur þáttum, þ.e.
almennum námsáhuga (F(1, 479) = 23,0, p <
0,001), list- og verkgreinaþættinum (F(1, 479)
= 66,46, p < 0,001) og þættinum sem mælir
áhuga á að læra nýja hluti og erlend tungumál
(F(1, 479) = 5,968, p < 0,05). Munur eftir aldri
kom fram á tveimur þáttum af þremur, verk- og
listgreinaþættinum (F(1, 479) = 131,97, p <
0,001) og þættinum um erlend tungumál og að
læra nýja hluti (F(1, 479) = 21,89, p < 0,001)
en þar mældist áhugi yngri nemenda meiri en
þeirra eldri. Á þættinum almennur námsáhugi
skoruðu 9. bekkingar lægra en 6. bekkingar
en munurinn var ekki marktækur (F(1, 479) =
1,49, p=0,22). Þetta bendir til þess að eitthvað
dragi úr áhuga nemenda frá 6. til 9. bekkjar.
Einnig var skoðuð samvirkni (e. interaction)
þáttanna kyns og aldurs á námsáhuga.
Samvirkni fannst eingöngu á einum þætti; að
læra nýja hluti og erlend tungumál (F(1, 479) =
7,19, p < 0,01). Á þessum þætti dregur meira úr
áhuga pilta en stúlkna milli 6. og 9. bekkjar.
Í 3. töflu er sýnt hlutfall nemenda sem
var mjög eða frekar sammála einstökum
3. tafla. Hlutfall nemenda sem eru sammála fullyrðingum, flokkað eftir bekk og kyni.
Fullyrðingar
Pi
lta
r
6.
b
St
úl
ku
r
6.
b
Pi
lta
r
9.
b
St
úl
ku
r
9.
b
Mér finnst gaman í skólanum 40,4 56,7 31,7 49,3
Mér finnst gaman að læra, líka þegar ég geri mistök 23,9 32,3 13,3 29,5
Ég hlakka til að fara í skólann að loknu sumarfríi 22,1 52,2 17,4 44,2
Mér finnst verkefnin í skólanum spennandi og skemmtileg 32,4 51,5 20,2 27,1
Mér finnst gaman að vinna heimaverkefnin 15,8 27,3 5,7 15,6
Mér finnst námið í skólanum áhugavert 37,9 48,5 16,4 34,8
Mér finnst skemmtilegast að læra þegar námið fær mig til að hugsa 46,6 48,9 27,0 42,3
Ég læri af því að mér finnst gaman að læra nýja hluti 53,0 64,2 30,6 55,0
Mér finnst gaman að læra myndmennt 46,3 68,4 23,6 42,9
Mér finnst gaman að læra textílmennt 36,3 83,6 4,1 47,9
Mér finnst gaman að læra hönnun og smíði 73,9 83,8 40,2 39,1
Mér finnst gaman að læra íslensku 33,8 54,9 17,7 34,0
Mér finnst gaman að læra stærðfræði 46,7 47,0 35,8 38,1
Mér finnst gaman að læra erlend tungumál 67,9 65,7 39,5 57,4
Amalía Björnsdóttir, Baldur Kristjánsson og Börkur Hansen