Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Side 18

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Side 18
16 Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008 Mér finnst námið í skólanum áhuga- • vert. Mér finnst skemmtilegast að læra þegar • námið fær mig til að hugsa. Mér finnst gaman að læra stærðfræði.• Annar þáttur skýrði um 16% dreifingarinnar en honum tilheyrðu þrjár fullyrðingar um að gaman væri að læra myndmennt, textílmennt og hönnun og smíði. Þetta er því greinilega list- og verkgreinaþáttur. Á þriðja þáttinn, sem skýrði um 10% dreifingarinnar, féllu tvær fullyrðingar, önnur um að gaman væri að læra erlend tungumál og hin að gaman væri að læra nýja hluti. Skoðað var hvort marktækur munur væri á þáttagildum (e. factor scores) eftir kyni og aldri nemenda, þ.e. eftir því hvort þeir væru í 6. eða 9. bekk. Munur var eftir kyni, stúlkur voru áhugasamari á öllum þremur þáttum, þ.e. almennum námsáhuga (F(1, 479) = 23,0, p < 0,001), list- og verkgreinaþættinum (F(1, 479) = 66,46, p < 0,001) og þættinum sem mælir áhuga á að læra nýja hluti og erlend tungumál (F(1, 479) = 5,968, p < 0,05). Munur eftir aldri kom fram á tveimur þáttum af þremur, verk- og listgreinaþættinum (F(1, 479) = 131,97, p < 0,001) og þættinum um erlend tungumál og að læra nýja hluti (F(1, 479) = 21,89, p < 0,001) en þar mældist áhugi yngri nemenda meiri en þeirra eldri. Á þættinum almennur námsáhugi skoruðu 9. bekkingar lægra en 6. bekkingar en munurinn var ekki marktækur (F(1, 479) = 1,49, p=0,22). Þetta bendir til þess að eitthvað dragi úr áhuga nemenda frá 6. til 9. bekkjar. Einnig var skoðuð samvirkni (e. interaction) þáttanna kyns og aldurs á námsáhuga. Samvirkni fannst eingöngu á einum þætti; að læra nýja hluti og erlend tungumál (F(1, 479) = 7,19, p < 0,01). Á þessum þætti dregur meira úr áhuga pilta en stúlkna milli 6. og 9. bekkjar. Í 3. töflu er sýnt hlutfall nemenda sem var mjög eða frekar sammála einstökum 3. tafla. Hlutfall nemenda sem eru sammála fullyrðingum, flokkað eftir bekk og kyni. Fullyrðingar Pi lta r 6. b St úl ku r 6. b Pi lta r 9. b St úl ku r 9. b Mér finnst gaman í skólanum 40,4 56,7 31,7 49,3 Mér finnst gaman að læra, líka þegar ég geri mistök 23,9 32,3 13,3 29,5 Ég hlakka til að fara í skólann að loknu sumarfríi 22,1 52,2 17,4 44,2 Mér finnst verkefnin í skólanum spennandi og skemmtileg 32,4 51,5 20,2 27,1 Mér finnst gaman að vinna heimaverkefnin 15,8 27,3 5,7 15,6 Mér finnst námið í skólanum áhugavert 37,9 48,5 16,4 34,8 Mér finnst skemmtilegast að læra þegar námið fær mig til að hugsa 46,6 48,9 27,0 42,3 Ég læri af því að mér finnst gaman að læra nýja hluti 53,0 64,2 30,6 55,0 Mér finnst gaman að læra myndmennt 46,3 68,4 23,6 42,9 Mér finnst gaman að læra textílmennt 36,3 83,6 4,1 47,9 Mér finnst gaman að læra hönnun og smíði 73,9 83,8 40,2 39,1 Mér finnst gaman að læra íslensku 33,8 54,9 17,7 34,0 Mér finnst gaman að læra stærðfræði 46,7 47,0 35,8 38,1 Mér finnst gaman að læra erlend tungumál 67,9 65,7 39,5 57,4 Amalía Björnsdóttir, Baldur Kristjánsson og Börkur Hansen
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.