Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Page 58
56
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
með hornskökkum snúningi nema atriði númer
29, 32 og 47 á skuldbindingarkvíða (CA)
(Sampson o.fl., 1996b). Meginþáttagreining með
hornskökkum snúningi í íslensku rannsókninni
staðfesti ekki heldur þriggja þátta lausn höfunda
CTI (Sampson o.fl., 1996b) (sjá 2. töflu).
Athygli vekur að sex atriði (númer 45, 40, 34,
48, 42 og 31) sem ekki tilheyra undirkvörðunum
samkvæmt höfundum CTI-listans hlaða hátt
á þátt eitt, skuldbindingarkvíða, í íslensku
gögnunum.
Mögulega eru íslensku niðurstöðurnar ekki
sambærilegar við þær bandarísku vegna þess
að fjöldi þátttakenda í úrtaki stúdenta er rétt
yfir ráðlögðu lágmarki (Einar Guðmundsson
og Árni Kristjánsson, 2005). Af þeim sökum
var þáttagreining endurtekin sameiginlega fyrir
úrtak stúdenta, ráðþega og einstaklinga sem
komu til NSHÍ en fengu ekki ráðgjöf varðandi
val á námi eða starfi (N = 467). Er það í
samræmi við það sem Sampson og félagar
(1996b) gerðu því þótt þeir leggi áherslu á að
birta niðurstöður sínar fyrir hvert úrtak fyrir sig
hafa þeir einnig þáttagreint niðurstöður allra
hópa saman og fengið út sambærilega þætti
eða undirkvarða. Niðurstöður þáttagreiningar
með hornréttum snúningi fyrir íslenska
hópinn í heild voru mjög sambærilegar við
niðurstöðurnar fyrir almenna íslenska stúdenta
þó að nokkur atriði séu frábrugðin. Öll tíu
atriði skuldbindingarkvíða hlaða hæst á þátt
eitt hjá hópi stúdenta en fyrir heildarhópinn
hlaða tvö af tíu atriðum skuldbindingarkvíða
hærra á þátt tvö, ringulreið. Hjá heildarhópnum
hlaða níu af fjórtán atriðum ringulreiðar hæst
á þátt tvö og öll fjórtán atriðin hafa 0,30
hleðslu eða hærri. Hjá stúdentum hafa tíu af
fjórtán atriðum ringulreiðar 0,30 hleðslu og
átta atriði hlaða hæst á eigin þátt. Öll atriði
togstreitukvarðans hlaða hins vegar hæst á þátt
þrjú hjá báðum hópum.
Til að kanna enn frekar hvort þáttabygging
CTI-listans, eins og hún kemur fram hjá
höfundum listans, kæmi fram í íslensku
gögnunum í heild sinni (N = 467) voru atriðin
29 sem tilheyra undirkvörðunum þremur
þáttagreind sérstaklega. Sú þáttagreining
staðfesti ekki þáttabyggingu CTI-listans
þótt sömu meginlínur kæmu fram og í
greiningunum hér að framan. Öll tíu atriði
skuldbindingarkvíða og fimm atriði togstreitu
hlóðu hæst á eigin þátt en sömu fjögur atriði
og áður á undirkvarðanum ringulreið (16, 20,
28, 36) hlóðu ekki á þann kvarða sem þau eiga
að tilheyra.
Viðmiðsbundið réttmæti (e. criterion related
validity) var að lokum metið með því að kanna
að hvaða marki CTI-spurningalistinn greinir
á milli einstaklinga sem leita sér ráðgjafar
og þeirra sem gera það ekki (Sampson, o.fl.,
1999b) og reyndust íslensku ráðþegarnir hærri
en almennir stúdentar á öllum kvörðum (sjá 3.
töflu.).
María Dóra Björnsdóttir, Sif Einarsdóttir og Jónína Kárdal
3. tafla. Samanburður á hamlandi hugsunum stúdenta og ráðþega á heildarkvarða CTI
og undirkvörðum hans
Stúdentara Ráðþegarb F-próf
Kvarði Meðaltal Staðalfrávik Meðaltal Staðalfrávik
CTI 40,40 19,82 56,51 20,31 46,84*
Ringulreið (DMC) 8,75 6,69 13,94 7,57 40,44*
Skuldbindingarkvíði (CA) 11,52 5,11 15,57 4,81 46,22*
Togstreita (EC) 2,88 2,44 4,15 2,85 17,95*
CTI = Career Thoughts Inventory; DMC = Decision Making Confusion; CA = Commitment
Anxiety; EC = External Conflict.
an = 314. bn = 93.
* < 0,001