Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Side 59
57
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
Umræður
Niðurstöður þessarar rannsóknar styðja
áreiðanleika og að hluta til réttmæti íslenskrar
útgáfu CTI-matslista um hamlandi hugsanir
sem tengjast ákvarðanatöku um nám og störf.
Áreiðanleiki kvarða reyndist sambærilegur við
upprunalega útgáfu (Sampson o.fl., 1996b)
og listinn greinir á milli ráðþega og almennra
stúdenta. Reyndust ráðþegar frekar þjást af
hamlandi hugsunum en stúdentar gera almennt.
Þáttabygging listans var aðeins að hluta til
sambærileg rannsóknum höfunda hans með
bandarískum háskólastúdentum.
Þó að ekki hafi verið hægt að endurtaka
niðurstöður þáttagreiningar reyndist innri
áreiðanleiki kvarða sambærilegur við
niðurstöður Sampson og félaga og viðunandi
því hann var aldrei undir 0,76 þó svo að
einn kvarðinn innihaldi aðeins fimm atriði.
Niðurstöður þáttagreiningar voru að mörgu
leyti hinar sömu og í rannsóknum höfunda
(Sampson o.fl., 1996b) þó einnig komi fram
nokkur munur á þáttalausnum landanna. Vert er
að nefna að fáar rannsóknir hafa verið gerðar á
þvermenningarlegu gildi CTI-listans. Notagildi
finnskrar þýðingar listans hefur þó verið
rannsakað og leiddi þáttagreining á svörum
finnskra háskólastúdenta í ljós svipaða þætti og
hjá bandarískum háskólastúdentum (Lerkkanen
o.fl., 2007). Í íslensku þáttagreiningunni
komu tveir af þremur undirkvörðunum
(skuldbindingarkvíði og, aðallega, ringulreið)
ekki skýrt fram sem tveir aðskildir þættir.
Atriði sem tilheyra skuldbindingarkvíða
hlaða hæst á einn þátt ásamt sex atriðum sem
tilheyra ringulreiðarkvarðanum og öðrum sex,
af nítján atriðum, sem ekki falla undir neinn af
undirkvörðunum samkvæmt höfundum listans.
Þau átta atriði sem eftir standa af fjórtán atriðum
ringulreiðarkvarðans virðast mynda sérstakan
þátt (þátt tvö) í íslensku gögnunum. Þegar
innihald þessara átta atriða er skoðað má segja
að þau snúi að innri einkennum einstaklingsins,
þ.e. sjálfsþekkingu hans og líðan, auk þess sem
öll atriðin tengjast bæði námi og starfi. Sex
af tíu atriðum skuldbindingarkvíða á þætti
eitt tengjast hins vegar aðeins störfum og ná
yfir bæði innri og ytri þætti, svo sem líðan,
vitneskju og val einstaklings. Ef merking atriða
sem hlaða hátt á skuldbindingarkvíða eru
skoðuð sést að fimm atriði af sex sem tilheyra
ringulreiðarkvarðanum tengjast störfum en eitt
starfi og námi. Flest þeirra tengjast ytri þáttum
eins og ákvarðanatökuferlinu og þekkingu
á störfum. Fjögur af atriðunum sex sem
tilheyra engum undirkvarða, en hlaða hátt á
skuldbindingarkvíða, tengjast störfum en tvö
námi og starfi. Þessi atriði snúa jafnframt að
ytri þáttum, svo sem ákvarðanatökuferlinu og
upplýsingum.
Fountaine (2001) hefur gagnrýnt höfunda
fyrir að hafa ekki rökstutt vel af hverju nítján
atriði sem ekki tilheyra neinum af
undirkvörðunum eru höfð í listanum. Sum
þessara atriða haga sér öðruvísi í íslensku
gögnunum en þeim bandarísku og gera
þáttalausnina erfiðari í túlkun. Fountaine
telur þó mögulegt að þau eigi að tryggja
innihaldsréttmæti heildarlista CTI þar sem
öll atriði hans eiga rætur að rekja til átta
innihaldssviða CIP-kenningarinnar. Þetta
gerir okkur erfiðara fyrir í túlkun íslensku
niðurstaðnanna þar sem ekki er hægt að
bera þær saman við skýr og vel afmörkuð
kenningaleg líkön um formgerð hamlandi
hugsana sem tengjast ákvarðanatöku.
Atriðin átta sem hlaða hæst á ringulreið
snúa öll að innri einkennum einstaklingsins og
tengjast bæði námi og starfi eins og þegar hefur
verið nefnt. Hins vegar tengjast flest atriðin sem
hlaða á skuldbindingarkvíða, óháð því hvaða
þætti þau eiga að tilheyra, ytri þáttum, svo sem
ákvarðanatökuferlinu, og ná aðeins til starfs.
Það vekur upp þá spurningu hvort íslenskum
háskólastúdentum finnist meiri skuldbinding
felast í því að velja sér framtíðarstarf en
háskólanám og í því sé menningarmunur á
milli íslenskra og bandarískra stúdenta meðal
annars fólginn. Á Íslandi hefur fólk hingað til
haft tiltölulega greiðan aðgang að háskólanámi,
íslenskir ríkisháskólar taka við öllum sem
uppfylla inntökuskilyrði og krefjast engra
skólagjalda af stúdentum á meðan erfiðara
Íslensk þýðing og þáttabygging CTI