Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Side 120
118
Um höfunda
Atli Harðarson er með MA próf í heimspeki frá Brown University. Hann er aðstoðarskólameistari
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og starfaði áður sem kennari við þann skóla. Atli er
höfundur nokkurra heimspekirita auk kennslubóka í tölvufræði og fjölda tímaritsgreina um
heimspeki og menntamál. Upplýsingar um Atla og lista yfir útgefin rit hans má finna á vefnum
http://this.is/atli/. Netfang: atli@fva.is
Amalía Björnsdóttir er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk B.A.-prófi
í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1991, M.Sc.-prófi frá Univerisity of Oklahoma 1994 og
doktorsprófi frá sama skóla 1996. Hún hefur lagt stund á rannsóknir á sviði mælinga og
prófagerðar, lestrar og málþroskamælinga, skólastjórnunar og áhrifa félagslegra þátta á skólastarf.
Netfang: amaliabj@hi.is
Baldur Kristjánsson er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk B.A.-prófi
í uppeldisfræði og sálfræði frá Gautaborgarháskóla árið 1976, M.A.-prófi frá sama skóla árið
1982 og doktorsprófi frá Kennaraháskólanum í Stokkhólmi árið 2001. Rannsóknir hans hafa
einkum fjallað um hagi og aðbúnað ungra barna og foreldra í nútíma samfélagi hér á landi og á
Norðurlöndum. Netfang: baldurkr@hi.is
Börkur Hansen er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk B.A.-prófi í
uppeldis- og sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1982 og doktorsprófi frá Háskólanum í Alberta 1987
í stjórnun menntastofnana. Rannsóknir hans hafa einkum snúist um skólastjórnun, skólaþróun og
stjórnskipulag skóla. Netfang: borkur@hi.is
Gyða Jóhannsdóttir er dósent við Háskóla Íslands, Menntavísindasvið. Hún lauk M.Ed gráðu
(1982) í menntavísindum og þroskasálfræði frá Harvard Graduate School of Education og
doktorsprófi í menntavísindum frá Danmarks Pedagogiske Universitet (2002). Hún hefur stundað
rannsóknir á þróun æðri menntunar á Norðurlöndum með tilliti til bóknámsreks (bæði menntakerfa
og menntastofnana) en einnig með tilliti til fagvæðingar starfsstétta. Auk þess hefur hún rannsakað
þróun norrænnar kennaramenntunar (fyrir skyldunámsstigið) með tilliti til bóknámsreks og
fagvæðingar kennara. Netfang: gydaj@hi.is
Helga Rut Guðmundsdóttir er lektor í tónmennt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk
B.Ed. prófi með áherslu á tónmennt frá Kennaraháskóla Íslands 1992, M.A. prófi í menntunarfræði
tónlistar frá McGill háskóla í Montreal, Kanada, 1996 og doktorsprófi í sama fagi frá sama háskóla
2003. Helga Rut hefur starfað sem lektor í tónmennt frá árinu 2000. Fyrri rannsóknir hennar lúta
meðal annars að tónlistarþroska barna og nótnalæsi. Hafa má samband við Helgu Rut á netfanginu
helgarut@hi.is
Jónína Kárdal er náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands. Hún lauk B.Ed.-prófi frá
Kennaraháskóla Íslands árið 1990 og M.A.-prófi frá University of Minnesota 1999. Hennar
rannsóknaráhugi er á sviði starfsferilsþróunar, starfsþjálfunar og notkunar rafrænna upplýsingamiðla
í náms- og starfsráðgjöf. Netfang Jónínu er joninaka@hi.is.
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
Um höfunda