Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 13

Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 13
1997 AUKA-KIRKJUÞING 1. mál FRUMVARP til laga um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar. Flutt af kirkjuráði. Frsm. Þorsteinn Pálsson dóms- og kirkjumálaráðherra. Frumvarp til laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar DRÖG-20.1.1997 I. KAFLI Heiti og undirstaða. l.gr. Islenska þjóðkirkjan er sjálfstætt trúfélag á evangelísk-lútherskum grunni. Ríkisvaldinu ber að styðja og styrkja þjóðkirkjuna. Skím í nafni heilagrar þrenningar og skráning í þjóðskrá veitir aðild að þjóðkirkjunni. II. KAFLI Réttarstaða. 2. gr. Þjóðkirkjan nýtur sjálfræðis gagnvart ríkisvaldinu innan lögmæltra marka. Þjóðkirkjan, einstakar sóknir og stofnanir hennar njóta sjálfstæðrar eignhelgi og koma fram sem sjálfstæðir aðilar gagnvart almannavaldinu eftir því sem við getur átt. 3. gr. Islenska ríkið greiðir þjóðkirkjunni árlegt ffamlag sem miðist við að það nægi til reksturs hennar ásamt öðrum tekjustofnum hennar, lögbundnum sem ólögbundnum. Launagreiðslum til starfandi presta þjóðkirkjunnar og annarra starfsmanna hennar skal hagað skv. því sem greinir í 61. gr. 4. gr. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur með höndum tengsl við þjóðkirkjuna af hálfu ríkisvaldsins að því er varðar fjárlagagerð. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 7

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.