Gerðir kirkjuþings - 1997, Blaðsíða 19
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
eigi af ákvæðum laga eða starfsreglna sem kirkjuþing setur skv. 60. gr. Hið sama á
almennt við um sérstakt hæfi kirkjulegra stjómvalda til meðferðar einstakra mála.
26. gr.
Kirkjuráð í samráði við forseta kirkjuþings undirbýr fundi kirkjuþings og
fylgir eftir samþykktum þess.
Kirkjuráð undirbýr af hálíu þjóðkirkjunnar tillögur til fjárveitinga til hennar á
fjárlögum.
Kirkjuráð hefur á hendi yfirumsjá Kristnisjóðs, sbr. 23. gr. laga nr. 35/1970.
Jöfnunarsjóðs, sbr. II. kafla laga nr. 91/1987, kirkjumálasjóðs, sbr. lög nr. 138/1993,
og prestssetrasjóðs, sbr. 2.- 3. gr. laganr. 137/1993.
Kirkjuráð hefur yfirumsjón með ráðstöfun fjár sem veitt er af opinberri hálfu
til kirkjulegrar starfsemi.
Kirkjuráð hefur forræði og forsjá um Skálholtsstað, svo sem greinir í lögum
nr. 32/1963, og hefur þau afskipti af málefnum Skálholtsskóla er greinir í lögum nr.
22/1993.
6. Prestastefna
27. gr.
Biskup Islands boðar til almennrar prestastefnu og er forseti hennar.
Á prestastefnu eiga setu og atkvæðisrétt vígslubiskupar og allir starfandi
þjóðkirkjuprestar skv. 32. gr., svo og fastir kennarar guðfræðideildar Háskóla íslands
með guðfræðimenntun og guðfræðingar sem gegna föstum störfum á vegum
þjóðkirkjunnar. Aðrir prestar og guðfræðingar eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi
og tillögurétti enda séu þeir innan safnaða er starfa á játningargrundvelli evangelísk-
lútherskrar kirkju.
Á prestastefhu skal fjalla um málefni prestastéttarinnar, svo og önnur kirkjuleg
málefni. Prestastefna hefur tillögu- og umsagnarrétt um mál er varða kenningu
kirkjunnar og helgisiði og annars heyra undir biskup og kirkjuþing, sbr. 10., 11. og 19.
gr-
7. Prófastar.
Almennt.
28. gr.
Biskup Islands skipar prófasta úr hópi presta til fimm ára í senn. Nánari reglur
um skipan þeirra og störf skal setja í starfsreglur, sbr. 60. gr.
Prófastar eru fulltrúar biskups íslands í prófastsdæmum og trúnaðarmenn hans
og hafa í umboði hans almenna tilsjón með kirkjulegu starfi þar.
Biskup getur skipað prófasta til að hafa umsjón með tilteknum þáttum
kirkjulegrar þjónustu.
Héraðsfundir og héraðsnefndir.
29. gr.
Héraðsfundi skal halda í hveiju prófastsdæmi ár hvert. Héraðsfundur er
vettvangur prófastsdæmis til þess að ræða um sameiginleg málefni þjóðkirkjunnar í
prófastsdæminu og önnur þau málefni sem lög leggja til hans eða stjómvöld
kirkjumála vísa þangað til umfjöllunar, umsagnar eða úrlausnar eða safnaðarfundir,
sóknamefndir, sóknarprestar og starfsmenn sókna óska eftir að þar verði rædd.
13