Gerðir kirkjuþings - 1997, Blaðsíða 21
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
3. Að kandídat hafi ekki gerst sekur um athæfi, sem ætla má að rýri álit hans og
sé ósamboðið manni í prestsstarfi.
Áður en kandídat hlýtur vígslu skal hann hafa hlotið starfsþjálfun eigi skemur
en tvo mánuði. Um ffamkvæmd þessarar starfsþjálfunar og eftirlit skal nánar kveðið á
í almennum starfsreglum, sbr. 60. gr.
Ráðherra skipar þriggja manna stöðunefnd til þriggja ára. í nefndinni eiga sæti
fulltrúi tilnefndur af Prestafélagi íslands, annar tilnefndur af guðfræðideild Háskóla
Islands og einn leikmaður tilnefndur af biskupi Islands úr röðum sóknamefndarfólks
og sé hann formaður nefndarinnar. Nefndin skal meta hæfni kandídata til
prestembætta að lokinni starfsþjálfun þeirra. Getur enginn kandídat hlotið vígslu hafi
stöðunefnd samdóma metið hann óhæfan, en þó má hann leita eftir vígslu að fimm
árum liðnum frá því að nefndin skilaði áliti sínu og verður hæfi hans þá metið að nýju.
Nefndin skal jafnffamt meta hverjir umsækjenda um prestsembætti teljist
hæfastir og raða þremur hæfustu umsækjendunum í röð þannig að í sæti 1 raðist sá
hæfasti og þannig koll af kolli, með hliðsjón af menntun umsækjenda, ffamhaldsnámi.
starfsferli og öðrum atriðum sem nefndin telur máli skipta.
Að öðru leyti verður kandídat að fullnægja almennum skilyrðum 6. gr. laga nr.
70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Val á presti
38. gr.
Þegar prestakall eða prestsstaða losnar eða nýtt prestakall er stofnað auglýsir
biskup Islands embættið með fjögurra vikna umsóknarfresti hið skemmsta.
Nánari reglur um val á sóknarpresti og presti skv. 34. gr. skal setja í
starfsreglur skv. 60. gr.
39. gr.
Ráðherra veitir þeim embætti sóknarprests sem hlotið hefur bindandi val en
ákvarðar að öðrum kosti veitingu, að fenginni tillögu biskups. Biskup íslands veitir
þeim embætti prests skv. 34. gr. sem hlotið hefur bindandi val en ákvarðar að öðrum
kosti veitingu.
Embætti sóknarprests og prest skv. 34. gr. skal veitt með setningu í eitt ár. Að
þeim tíma liðnum skal skipa viðkomandi í embættið ótímabundið, nema áður hafi
komið fram skrifleg ósk um að embættið verði auglýst laust til umsóknar frá fullum
þriðjungi atkvæðisbærra sóknarbama í prestakallinu.
40. gr.
Hafi enginn sótt um prestakall eða embætti er ráðherra heimilt að setja prest í
embættið í allt að eitt ár, skv. tillögu biskups. Prestakallið eða embættið skal auglýst
að nýju að setningartímanum liðnum.
Almennt um skyldur presta.
41. gr.
Skylt er sóknarpresti að taka við kalli sínu jafnskjótt og fong eru á eftir að
hann hefur hlotið skipun eða ráðningu. Biskup Islands getur þó veitt presti, er situr
jörð, frest til næstu fardaga til að taka við embættinu.
15