Gerðir kirkjuþings - 1997, Blaðsíða 25

Gerðir kirkjuþings - 1997, Blaðsíða 25
1997 AUKA-KIRKJUÞING 1. mál IV. KAFLI Starfsreglur. 60. gr. Um aðra starfsmenn þjóðkirkjunnar en þá sem fyrr hafa verið taldir fer eftir almennum reglum um starfshætti hennar er kirkjuþing setur og hafi að geyma nánari fyrirmæli um stjómun og starfshætti kirkjunnar á grundvelli laga þessara. í reglum þessum skal m.a. kveðið á um hlutverk starfsmanna þjóðkirkjunnar eftir því sem við getur átt. Kirkjuþing setur jafnframt nánari reglur um tiltekna þætti kirkjustarfsins sem eigi er fjallað um í hinum almenn reglum sem getið er um í 1. mgr. Þá staðfestir kirkjuþing stofnskrár og nánari reglur um stjóm og starfsemi stofnana er starfa á vegum þjóðkirkjunnar en kirkjuráð staðfestir endurskoðaða reikninga þeirra stofnana og birtir þá síðan í skýrslu sinni til kirkjuþings. Kirkjuráð gefur út reglur þær og stofnskrár er um ræðir í 1. og 2. mgr. ásamt breytingum sem kunna að vera gerðar á þeim. Skulu reglur og stofnskrár, sem og breytingar á þeim, birtast á prenti í síðasta lagi innan fjögurra vikna frá því að kirkjuþing samþykkti þær. Ber kirkjuráði að hafa eftirlit með því að eintök þeirra séu aðgengileg fyrir almenning frá þeim tíma, auk þess sem kirkjuráð annast dreifmgu þeirra og kynningu með tilhlýðilegum hætti. Hafi eigi verið á annan veg mælt í reglum þeim sem hér um ræðir öðlast þær, sem og breytingar, bindandi gildi á þrítugasta degi ffá útgáfudegi þeirra. Eftir þann tíma ber öllum starfsmönnum þjóðkirkjunnar sem og öðrum þeim sem reglunum er ætlað að binda að fara eftir þeim. V. KAFLI Launagreiðslur og réttarstaða starfsmanna. 61. gr. Rikið greiðir laun biskups Islands, vígslubiskupa, 138 starfandi presta og prófasta þjóðkirkjunnar og 18 starfsmanna biskupsstofu. Fjölgi skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000 miðað við þjóðskrá í árslok 1996 skal ríkið greiða laun 1 prests til viðbótar því sem greinir í 1. mgr. Sama á við um ffekari fjölgun. Fækki skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000 miðað við þjóðskrá í árslok 1996 lækkar tala starfandi presta í 1. mgr. um 1. Sama á við um ffekari fækkun. Fjölgi prestum um 10 sbr. það sem greinir í 2. mgr. skal ríkið greiða laun 1 starfsmanns á biskupsstofu til viðbótar því sem greinir í 1. mgr. Sama á við um frekari fjölgun. Fækki prestum um 10 sbr. það sem greinir í 3. mgr. lækkar tala starfsmanna á biskupsstofu í 1. mgr. um 1. Sama á við um frekari fækkun. Um greiðslu launa til ffamangreindra starfsmanna þjóðkirkjunnar fer eftir lögum um Kjaradóm og kjaranefnd, nr. 120/1992, með áorðnum breytingum, eða lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94/1986, með áorðnum breytingum, eftir því sem við getur átt. Launagreiðslur annarra starfsmanna þjóðkirkjunnar eru ríkinu óviðkomandi. 62. gr. Þeir starfsmenn þjóðkirkjunnar sem þiggja laun ffá ríkinu sbr. 61. gr. njóta réttinda og bera skyldur sem opinberir starfsmenn eftir því sem nánar er mælt fýrir um 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.