Gerðir kirkjuþings - 1997, Síða 36

Gerðir kirkjuþings - 1997, Síða 36
1997 AUKA-KIRKJUÞING 1. mál í frumvarpi því sem lagt var fram á 118. löggjafarþingi var farin önnur leið en hér er lögð til einkum varðandi tengslin milli þingsins og biskupsembættisins. Var þar sú hugmynd reifuð að aðskilja bæri valdsvið kirkjuþings annars vegar og biskups hins vegar með því að búa svo um hnútana að kirkjuþing yrði í sem fyllstum mæli sjálfstæð og lýðræðislega kjörin stoínun sem hefði sinn eigin forseta og nefndir sem störfuðu að einhverju leyti allt árið. Enn fremur að kirkjuþing hefði sína eigin stjómsýslu til þess að undirbúa störf þingsins og til þess að koma samþykktum þess í ffamkvæmd. Biskup Islands ætti að vísu sæti á kirkjuþingi en tæki þar eigi formlegan þátt í afgreiðslu mála. Honum væri hins vegar heimilt að taka til máls hvenær sem væri og þyrfti ekki að skrá sig á mælendaskrá. Enn ffemur hefði hann rétt til að tilnefna ákveðinn fjölda þingfúlltrúa. Með þessu yrði komið í veg fyrir að biskup yrði eins konar framkvæmdastjóri kirkjuþings sem lyti ákvörðunum og samþvkktum þess og gæti jafnvel orðið í minni hluta við atkvæðagreiðslur. Hann gæti þá fremur en nú er helgað sig andlegu leiðtogahlutverki biskups eins og það hefur víða mótast í lúterskri kirkjuhefð. Nefndin varð hins vegar ásátt um að bera þessa tillögu ekki ffarn í ffumvarpsformi heldur láta nægja að benda á hana og minna á að sú skipan mála væri viðtekin í lúterskum kirkjum í sumum grannlöndum okkar. Nefitd sú sem skipuð var af kirkjumálaráðherra í júlí 1996 ákvað að ganga að nokkru til móts við þau sjónarmið sem að ffaman eru reifúð. Lagt er til að biskup Islands verði ekki forseti kirkjuþings, og hafi einungis málffelsi og tillögurétt á kirkjuþingi. Kirkjuþing kjósi sér hins vegar sérstakan forseta, til fjögurra ára. Nefhdin taldi hins vegar ekki rétt að ganga lengra til að byrja með, en leyfa kirkjuþingi, í breyttri myndi, að móta starf sitt á næstu árum og gera því ekki ítarlegar tillögur í ffumvarpinu um einstaka starfsþætti þess. Um 21. gr. I greininni er gert ráð fyrir því að kirkjuþing kjósti við upphaf hvers kjörtímabils fastanefndir kirkjunnar. Um 22. gr. Af 2. mgr. greinarinnar leiðir að allir þeir kirkjulegu aðilar, sem hafi fjárreiður með höndum, verða að færa bókhald og gera reikningsskil sem hljóti fullnægjandi endurskoðun þar til bærra aðila. Skal kirkjuþing hafa yfirumsjón með því að þessarar skyldu sé gætt, en af eðli máls leiðir að önnur stjómvöld þjóðkirkjunnar hafa einnig, að sínu leyti, eftirlitsskyldur í þessu efni. Að öðru leyti þarfnast greinin ekki skýringar Um 23. gr. Greinin samsvarar að mestu efni 15. gr. laga nr. 48/1982. Um 24. gr. Greinin svarar til efnis 15. gr. laga nr. 48/1982. Um 25. og 26. gr. Ákvæði þessi samsvara um margt efhi 16. gr. laga nr. 48/1982, nema jafhffamt er kveðið á um stjómunarhlutverk kirkjuráðs í kjölfar nýmæla sem leitt hafa af nýlegum lögum. Þá er og lagt til í frumvarpinu að gerður verði aðskilnaður á valdsviðum kirkjuþings annars vegar og kirkjuráðs hins vegar, sbr. og 20. gr. frumvarpsins. Kveðið er á um að ákvörðunum kirkjulegra stjómvalda megi almennt 30
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.