Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 54

Gerðir kirkjuþings - 1997, Page 54
1997 AUKA-KIRKJUÞIN G 1. mál Kirkjuþing kýs þingforseta úr röðum leikmanna til fjögurra ára. Kirkjuþing skal halda ár hvert. Oski þriðjungur kirkjuþingsmanna eftir er skylt að kalla kirkjuþing saman innan viku ffá því að krafa um slíkt var sett fram. Kirkjuþing setur nánari ákvæði um kjör til kirkjuþings og þingsköp í starfsreglur sbr. 60. gr. Fastanefndir kirkjunnar. 21. gr. Kirkjuþing kýs við upphaf hvers kjörtímabils fastanefndir kirkjunnar. skv. nánari reglum skv. 60. gr. Kirkjuleg stjórnvöld. 22. gr. Stjómvöld þjóðkirkjunnar og stofnana hennar fara með stjómsýslu í öllum efiium, þar með talda ráðningu og lausn starfsmanna, og bera áb\rrgð gagnvart kirkjuþingi. Kirkjuþing skal sjá til þess að reikningshald kirkjulegra embætta. stofhana og sjóðahljóti fullnægjandi endurskoðun. Kirkjuþing getur haft frumkvæði að ffumvörpum til laga um kirkjuleg málefhi og beint þeim tilmælum til ráðherra að þau verði flutt á Alþingi. Ráðherra leitar umsagnar og tillagna kirkjuþings um lagaffumvörp um kirkjuleg málefhi er hann hyggst flytja á Alþingi. 5. Kirkjuráð. Almennt. 23. gr. Kirkjuráð fer með ffamkvæmdarvald í málefnum þjóðkirkjunnar. Biskup Islands er forseti kirkjuráðs. Skipan kdrkjuráðs. 24. gr. Kirkjuráð er, auk biskups íslands, skipað fjórum mönnum, tveimur guðffæðingum og tveimur leikmönnum sem kirkjuþing kýs og skulu varamenn kosnir með sama hætti. Kosið skal í kirkjuráð á fýrsta kirkjuþingi að aflokinni kosningu. Kirkjuráðsmenn sitja þar til nýtt kirkjuráð hefur verið kjörið. Kirkjuráð kýs sér varaforseta en biskupsritari er ritari kirkjuráðs. Starfssvið kirkjuráðs. 25. gr. Kirkjuráð fer með ffamkvæmd sameiginlegra málefna þjóðkirkjunnar, þar á meðal verkefna sem lög og stjómvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess m.a. af hálfu kirkjuþings, prestastefnu, samtökum leikmanna, Alþingis og ráðherra. Akvörðunum kirkjulegra stjómvalda, sem heyra undir lögsögu kirkjuráðs, má skjóta til kirkjuráðs til endanlegrar úrlausnar. Undanskildar em ákvarðanir úrskurðar- og áffýjunamefhda skv. 11. og 12. gr., svo og ákvarðanir biskups skv. 11. gr. og um kenningu kirkjunnar, sbr. 10., 18., 19. og 27. gr. Varði málsskot ákvörðun biskups Islands er hann hefur áður tekið víkur hann sæti í kirkjuráði meðan það mál er til meðferðar þar og tekur þá sá vígslubiskup, sem eldri er að biskupsvígslu, sæti hans. 48

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.