Gerðir kirkjuþings - 1997, Síða 64
1997
AUKA-KIRKJUÞING
2. mál
Islenska ríkið og þjóðkirkjan gera með sér eftirfarandi
samkomulag
um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar:
1. gr.
Kirkjujarðir og aðrar kirkjueignir sem þeim fylgja, að frátöldum
prestssetrum og því sem þeim fylgir, eru eign íslenska ríkisins. Andvirði seldra
jarða rennur í ríkissjóð. Umsýsla og ráðstöfun umræddra eigna fer eftir gildandi
lögum á hverjum tíma.
2. gr.
íslenska ríkið skuldbindur sig til þess, á þeim grundvelli sem að ffaman
greinir, að greiða laun presta þjóðkirkjunnar og starfsmanna biskupsembættisins.
Þá skuldbindur ríkið sig til að setja reglur um umgengni á kirkjustöðum.
3. gr.
1. Ríkissjóður greiði laun:
a) Biskups Islands og vígslubiskupa.
b) 138 starfandi presta og prófasta þjóðkirkjunnar.
c) 18 starfsmanna biskupsembættisins.
2. Fjölgi skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000 miðað við íbúaskrá
þjóðskrár 1. desember 1996 skuldbindur ríkið sig til að greiða laun 1 prests til
viðbótar því sem greinir í b-lið 1. mgr. Sama á við um frekari fjölgun. Fækki
skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000 miðað við íbúaskrá þjóðskrár 1.
desember 1996 lækkar talan í b-lið 1. mgr. um 1. Sama á við um frekari fækkun.
3. Fjölgi prestum um 10 sbr. það sem greinir í 1. mgr. skuldbindur ríkið sig
til að greiða laun 1 starfsmanns biskupsstofu til viðbótar því sem greinir í c-lið 1.
mgr. Sama á við um frekari fjölgun. Fækki prestum um 10 sbr. það sem greinir í 2.
mgr. lækkar talan í c-lið 1. mgr. um 1. Sama á við um frekari fækkun.
4. Um ráðningar þeirra sem nefndir eru í 1. mgr. fer eftir gildandi lögum á
hverjum tíma.
5. Um greiðslu launa til framangreindra starfsmanna þjóðkirkjunnar fer
eftir lögum um Kjaradóm og kjaranefnd, nr. 120/1992, með áorðnum breytingum,
eða lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94/1986, með áorðnum
breytingum, eftir því sem við getur átt.
6. Greiðslur til Kristnisjóðs vegna seldra kirkjujarða falla niður. Þó skal
ríkissjóður greiða árlega, næstu 8 ár, upphæð er svarar til fastra árslauna 1
sóknarprests.
58