Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
Kópavogurfær
vatnsveitu
Kópavogsbær hefur opnað
eigin vatnsveitu. í tilkynningu frá
Kópavogsbæ segir að vatnið sé
fengið úr vatnsbóli í Vatnsenda-
krikum í Heiðmörk. Hingað til
hefur Kópavogsbær keypt vatn
af Orkuveitu Reykjavíkur. Nýja
vatnsveitan mun auk þess veita
íbúum Garðabæjar vatn til næstu
40 ára. I tilefni opnunar vatns-
veitu hefur vatnsskattur í bænum
verið lækkaður um tíu prósent.
Síbrotamenn
ífangelsi
Þrír karlmenn voru á fimmtu-
dag í Hæstarétti dæmdir í fanga-
vist fyrirýmis hegningarlagabrot.
Sá sem hlaut lengsta dóminn, Ing-
þór Haraldsson, var dæmdur fyrir
að hafa selt úr sem voru þýfi úr
innbroti. Hann var einnig dæmd-
ur fyrir að hafa í vörslu sinni fíkni-
efni. Hann hefur margoft áður
verið dæmdur en hann framdi
vopnað rán í Laugarnesapóteki
árið 2005 þar sem hann var vopn-
aður hnffi. Hann fékk átján mán-
aða fangelsi. Sigurþór Amarsson
var dæmdur í fimm mánaða fang-
elsi og Sævar Már Indriðason fékk
átta mánaða dóm. Þeir voru báðir
sakfelldir fyrir rán og þjófnað.
Rigning og slydda
næstu daga
Búast má við vaxandi suðaust-
anátt og snjókomu eða slyddu
sunnan- og vestanlands sam-
kvæmt upplýsingum ffá Veður-
stofú íslands. Undir kvöld má svo
búastvið rigningu. Hægviðri, skýj-
að og kalt norðaustan til fram efdr
degi en hvessir með snjókomu í
kvöld. Á morgun mun hlýna sunn-
anlands og fara að rigna. Það léttir
til austanlands en seinnipartinn
má svo búast við slyddu og síðan
rigningu. Hiti í kringum frostmark
vestanlands.
Nanna Westerby-Jensen, 23 ára, hlaut nýverið kjör inn á danska þingið. Hún á ættir
sínar að rekja til íslands því amma hennar var íslensk og því á þingmaðurinn fjölda
ættingja hér á landi. Sem barn heimsótti hún landið reglulega og hún er í miklum
samskiptum við islensk frændsystkini sín. Sirri Westerby-Jensen, móðir Nönnu, er
virkilega stolt af uppruna sínum.
ÍSLENDINGUR SITUR Á
DANSKA ÞJÓÐÞINGINU
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadur skrifar: traustkj'dv.is
„Þetta er virkilega skemmtilegur
áfangi fyrir dóttur mína. Ég er
ofboðslega stolt af henni og við erum
stoltar af því að vera íslendingar,"
segir Sirri Westerby-Jensen, móðir
Nönnu Westerby-Jensen, á góðri
íslensku. Nanna, 23 ára, hlaut nýverið
kjör sem danskur þingmaður og
hefur tekið sæti á þinginu. Þar með
eignuðumst við íslendingar okkar
fulltrúa á danska þinginu því hún á
ættir sínar að rekja hingað til lands.
Amma Nönnu var íslensk og hét
Guðbjörg Jakobsdóttir, kölluð Dúa.
Faðir hennar var Jakob Lárusson,
prestur á Holti undir Eyjafjöllum.
Guðbjörg rak lengi vel hárgreiðslu-
stofu á Laugaveginum en í lok síðari
heimsstyrjaldar ákvað hún að halda
út í ævintýri. Á ieið sinni til Svíþjóðar,
þar sem hún ætlaði að fara að starfa
sem hárgreiðslukona í leikhúsi, hafði
hún viðkomu í Kaupmannahöfn. Þar
kynntist hún dönskum manni, sem
síðar varð eiginmaður hennar, og fór
hún því aldrei til Svíþjóðar eins og til
stóð.
Komu oft sem börn
Guðbjörg hélt ávallt miklum
tengsium við íslenska ættingja sína
og kom hingað reglulega í heimsókn-
ir. Aðspurð segir Sirri að mjög reglu-
leg samskipti séu milli hennar og ís-
lensku ættingjanna. „Ég var mjög
tengd móður minni og er mjög tengd
ættingjum mínum á Islandi. Við kom-
um oft í heimsóknir og hringjumst
alltaf reglulega á. Síðustu árin hefur
Nanna eiginlega verið meira á íslandi
heldur en ég og hún er í miklum sam-
skiptum við ffændsystkini sfn," segir
Sirri.
Thomas Westerby-Jensen, bróð-
ir Nönnu, er stoltur af árangri systur
sinnar að komast inn á þing. Hann er
einnig stoltur af tengslum sínum við
ísland og segir þau systkinin hafa oft
heimsótt landið sem börn. „Við eigum
fullt af ættingjum á fslandi. Ég kom
oft í heimsókn sem bam og Nanna
líka, en dregið hefur úr heimsóknun-
um í seinni tíð. f staðinn em ættingjar
okkar duglegir að koma í heimsókn til
okkar í Danmörku," segir Thomas.
Nanna Westerby-Jensen Hinn
(slenskættaði þingmaður Dana er í
reglulegum samskiptum við íslensk
frændsystkini s(n og er stolt af rótum
sínum.
Fallegt land
Nanna hefur ekki einvörðungu
tengsl til fslands og Danmerkur því
faðir hennar er norskur. Sirri segir
dóttur sína aftur á móti mun meira í
sambandi við íslenska ættingja sína
en þá norsku. „Það er svo skrítið að
„Það er svo skrítið að
hún hefur alltafverið
miklu tengdari við ís-
land heldur en Noreg.
Við erum mjög hrifin af
rótum okkar frá íslandi
og Nanna er mjög stolt
afþeim"
hún hefur alltaf verið miklu tengdari
við ísland heldur en Noreg. Við emm
mjög hrifin af rótum okkar ffá fslandi
og Nanna er mjög stolt af þeim," seg-
ir Sirri.
Aðspurður segist Thomas muna
vel eftir heimsóknum sínum til fs-
lands sem drengur. „Ég man vel eftir
heimsóknum okkar til fslands og ég
á fallegar minningar þaðan. ísland er
virkilega fallegt land," segir Thomas.
Nanna kemur úr grasrótarstarfl
og gegndi meðal annars stöðu for-
manns ungliðahreyfingar dönsku
jafnaðarmannahreyfingarinnar.
160 m2 Ibúðá tveimur hæðum (101 Reykjav(ktil leigu.
Efri hæð. Eldhús og stofa er eltt opið rými, innrétting
er svart háglans sprautulökkuð og granít borðpiata,
tæki með stáláferð, innbyggð uppþvottavél fylgir
með. Eikarparkett á gólfum. Salerni flisalagt I hólf
og gólf, handlaug og vegghengt klósett svört að llt,
stór spegill með flúorlýsingu. Neðri hæð: Hringstigi milli
hæða. Þrjú svefnherbergi annað með fataherbergi innaf.
Sjónvarpsými. Á gólfum er eikarparkett. Allar hurðar eru
háglans svart sprautulakkaöar. Stórt og rúmgott baöherbergi með Ijósum flisum á
veggjum og gólfi, hornbaökar og rúmgóöur sérsmlðaður sturtuklefi, góð innrétting,
handlaug á borði og spegill, halógenlýsing ofan við innréttingu, hiti (gólfi. Þvottahús
og geymsla meö fllsum á gólfi, hiti i gólfi. Húsgögn fýlgja Útg. (sameiginlegan garð.
Athugiö eingöngu leigt til fyrirtækja.
Upplýsingar e-mail agust.magnusson@gmail.com
Sveinbjörn Bjarkason varð bráðkvaddur á heimili sínu:
Baráttumaður látinn
Sveinbjörn Bjarkason varð bráð-
kvaddur á heimili sfnu í Fannarfelli
18. október. Hann var jarðsunginn á
föstudag í Bústaðakirkju.
Sveinbjörn tileinkaði síðustu ár
lífs síns baráttunni fýrir bættum hag
útigangsfóiks. Sjálfur bjó hann á
strætum borgarinnar í þrjú ár og fór
í fjölda meðferða. Hann náði sér á
strik fýrir um tveimur árum og lét til
sín taka í málefnum þeirra samborg-
ara okkar sem fæstir vilja af vita.
Sveinbjörn var í helgarviðtali í DV
í júní þar sem hann sagði ffá þeim
erfiðu aðstæðum sem við honum
blöstu þegar hann kom úr síðustu
meðferðinni en einnig gleðinni yfir
að hafa byrjað nýtt líf. Yfirskrift við-
talsins var: „Eymdin ríkir hjá þeim
sem hvergi býr" og fannst hon-
um þessi orð lýsandi fyrir aðstæður
heimilislausra.
Hann bjó á götunni fyrir meðferð
og þegar henni var lokið mætti hon-
um ekkert nema gatan. Þegar hann
loks fékk húsnæði yfirgaf hann ekki
sína gömlu félaga heldur hvatti þá
áfram í lífsbaráttunni og var ástríðu-
fullur talsmaður fyrir bættum að-
stæðum þeirra.
Sveinbjörn var gagnrýninn í
garð þeirra sem rakka heimilis-
lausa niður sem óþjóðalýð og sagði
í samtali við DV: „Mér finnst það
siðferðileg skylda okkar að rétta
út hjálparhönd þegar við getum.
Vonin er það eina sem þetta fólk á.
Mér finnst að þegar viðbrögð sem
þessi koma fram sé verið að hrækja
á vonina."
Hann var rómaður fyrir orðheppni
sína og átti þann draum að skrifa bók.
Lengi safnaði hann saman tilvitnun-
um, sögum og myndum sem veittu
honum innblástur og vildi koma efn-
inu á ff amfæri.
Sveinbjörn var þakklátur og
æðrulaus í fasi. Eftir að hann varð
edrú gerði hann sitt besta til að
hvetja gamla félaga sína til að hætta
neyslu. í samtali við DV í júní sagði
hann: „Hver dagur er sigur. Bestu ár
ævi minnar eru þau sem ég á eftir
ólifuð." erla@dv.ls