Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttlr
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 7
Jón Bjarki Magnússon tók sig til og flutti nær fyrirvaralaust til
Kína í haust. í Peking starfar hann viö enskukennslu og unir hag
sínum vel. Hann býr í gamaldags hverfi og leigir flögurra herbergja
íbúö fyrir 30 þúsund krónur. Hann sótti um hlutverk í kínverskum
bíómyndum en fékk ekki. Hann segir Peking breytast hratt, úr gömlu
kínversku ævintýri í stækkandi heimsborg.
Ani EKKIFYRIR
FLUGINU HEIM
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaöamaöur skrifar: valgeimdr.is
Jón Bjarki Magnússon, 23 ára Reyk-
víkingur fer ekki alltaf sömu leið í
lífinu og samferðamenn hans. í ág-
úst síðastliðnum ákvað Jón Bjarki að
fljúga nær fyrirvaralaust til Peking,
höfuðborgar Kína, og setjast þar að
næstu misseri. Jafnvel þó Jón Bjarki
talaði varla stakt orð í kínversku,
fékk hann vinnu í skóla við að kenna
börnum ensku. „Ég hafði hlaupið
um götur London deginum áður. Ég
kom til borgarinnar til þess að hitta
gamlan vin frá Ástralíu en eins og svo
oft áður höfðu plönin breyst. Ég vildi
ekki vera í Englandi þennan vetur-
inn það var dýrt og óspennandi og
allt svipað og í okkar heimalandi. En
Kína var eitthvað annað, þar gátum
við fengið vinnu við að kenna ensku,
þar var lífið einfaldara. Við flugum
til Kfna án þess að eiga pening fyrir
flugi til baka," segir hann.
Gamalt þorp í borg sem breytist
Jón leigir íbúð í þéttbýlu hverfi í
þessari stóru borg, hverfið nefnist
Hutong og er í raun lítið þorp inni í
borginni. Hutong er allur heimurinn
í augum íbúa þess. Alls staðar er fólk.
Litlir fjölskyldureknir veitingastaðir
og óteljandi litlar matvöruverslanir.
Innan hverfisins er allt sem íbúarnir
þurfa og þeir fara sjaldan út fyrir það.
Það er óvenjuleg upplifun fýrir ljós-
hærðan íslending að aðlaga sig þess-
um aðstæðum.
„Kínversku táknin minna mig á
að ég er útlendingur, að ég viti ekki
neitt," segir Jón og heldur áfram:
„Hutong Peking-borgar hefur breyst
lítið í gegnum aldanna rás, út um alla
borg má sjá litla stíga leiða fólk af að-
albrautunum og inn í þessi gömlu
hverfi. Gatan okkar er kínverkst æv-
intýri í útrýmingarhættu, framtíðin
er óljós, hagvöxtur síðustu ára hef-
ur teygt Peking hærra og hærra upp
til himins. Það gamla er rifið og ný-
tískuleg og glansandi háhýsi rísa upp
í staðinn."
Allir vilja læra ensku
Aðlögunin að lífinu í Peking gekk
hratt fyrir sig. í Wudaokou-hverf-
inu í borginni er urmull útlendinga
sem komnir eru til Kína til þess að
læra tungumálið. Neon-skiltin skína
skært og „orka hnattvæðingarinn-
ar leikur lausum hala", eins og Jón
Bjarki kemst að orði. Fyrstu dagana
ýttu háleitir draumar honum til að
sækja um hlutverk sem aukaleik-
ari í kínverskum kvikmyndum. „Ég
lét mig dreyma um framtíð frægðar.
Ég gæti verið þekktur sem ljóshærði
konungur kvikmyndanna. En það
gekk ekki upp og ég leitaði því á önn-
ur mið."
Hnattvæðingin hefur leitt til þess
að IQ'nverjar vilja ólmir læra betri
ensku og það tók innan við viku að fá
vinnu við að kenna ensku. „Ég kenni
fjögurra til sjö ára börnum í leikskóla
ensku. Ég keyri á kínverska mótor-
hjólinu mínu í vinnuna, kenni börn-
unum í fimm klukkustundir á dag.
Þau yngstu skilja lítið sem ekki neitt
en innan tíðar verða börnin mín fær
í flestan sjó."
Lítill heimur
Það hefur sína kosti og galla að
búa í Peking. Stundum er mengun-
in svo mikil að ekki sést á milli húsa.
Jón lætur vel af lífinu í Kína. „Ég sem
hafði ætlað að finna mér vinnu í Eng-
landi fyrir skítalaun þar sem ég hefði
þurft að búa í einhverri rottuholu.
En er í staðinn kominn til Kína þar
sem ég fæ fínar tekjur fyrir kennslu.
Leigan er mun lægri en annars stað-
ar, fyrir fjögurra herbergja íbúð borg-
ar maður 30 þúsund krónur. Máltíð
á veitingastað er í kringum hundrað
krónur og hér er lífið gott," segir Jón.
Þó fjarlægðin til Peking sé mikil
var Jón nýlega minntur á að heimur-
inn er lítill. „Ég stóð og horfði á hús-
in í borginni þegar pikkað var aftan
í hausinn á mér. Þegar ég leit við sá
ég vin minn ffá íslandi. Hann spurði
mig hvað í ósköpunum ég væri að
gera í Peking. Það fyrsta sem mér
datt í hug var: Af hverju ekki?"
Gott til
endurvinnslu
Minnistöflur
www.birkiaska.is
„Abgengileg, falleg,
fróbleg og síbast en ekki
síst skemmtileg bók -
alvöru hvatning fyrir
hörbustu innlpúka tll ab
laumast út á svallr eba í
garbinn slnn og prófa ab
rækta eiglb grænmetl!"
Bryndfs Loftsdóttlr
Vörustjórl Eymwidsson
Bókabútf Máls vy mmnlnsar
Umboós- og söluaöili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
&
FOSFOSER
MEMORY
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
S UMARH0 S I Ð
fMGARDURINN
Sí&umúla 15, 108Reykjavík
Slml 586 8003, www.rlt.is
Bokautaata
www.tindur.is
tindur@tindur.is
Nýr bókaflokkur
fyrir stelpur á
aldrinum 8-14 ára.
Fyrsta bókin heitir
Horfin sporlaust.
Næsta bók kemur
í október og heitir
Mikil áhætta.
Spenna og fjör
fyrir börn og
unglinga.
Vertu með
frá byrjun!
Tindur