Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Side 8
8 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
SarkozyíKína
Nicolas Sarkozy Frakklands-
forseti er í opinberri heimsókn
í Kína. f íylgd með Sarkozy eru
margir frammámenn í viðskipta-
lífi Frakklands og er talið að lögð
verði áhersla á að efla viðskipta-
leg tengsl landanna auk þess sem
alþjóðamál verða rædd, til dæmis
deilan um kjamorkuáform frana.
Sarkozy hefur Iýst því yfir að það
sé með öllu óviðunandi að íran
komi sér upp kjamorkuvopnum
og hann muni þrýsta á kínversk
stjómvöld að tileinka sér harðari
afstöðu gegn stjómvöldum frans
vegna þess. Stjómvöld í Kína hafa
tekið illa í refsiaðgerðir gagnvart
íran vegna málsins.
Sharif snýr heim
Nawaz Sharif, tyrrverandi
forsætisráðherra Pakistan, er
snúinn heim eftir átta ára útlegð.
Pakistanskir embættismenn
heimiluðu heimkomu hans með
þeim skilyrðum að hann kæmist
að samkomulagi við Pervez
Musharraf, forseta landsins. í
viðtali við fréttastofu BBC sagði
Sharif að ekki væri mikið svigrúm
til slíks samkomulags. Hundmð
lögreglumanna grá fyrir járnum
voru stödd á flugvellinum við
komu Sharifs til landsins, en að
sögn fréttaritara var ekki eins mikil
spenna í loftinu nú óg í september,
en þá gerði Sharif misheppnaða
tilraun til að snúa heim úr útíegð.
Andstæðingar
Pútíns handteknir
Rússneska lögreglan handtók
um hundrað og fimmtíu manns
sem stóðu fyrir mótmælum í St.
Pétursborg í gær og var Boris
Nemtsov forsetaframbjóðandi þar
á meðal. Honum var sleppt síðar.
Á laugardaginn var fyrrverandi
heimsmeistari í skák, Garry Kasp-
arov, handtekinn við mótmæli
í Moskvu. Hann var dæmdur til
fimm daga fangelsisvistar fyrir að
standa fyrir ólöglegri kröfugöngu.
íbúar smábæjarins Dardenne Prairie í Missouri i Bandaríkjunum eru i uppnámi. Ástæð-
an er sú að fyrst nú eru að koma í ljós óhugnanlegar staðreyndir sem tengjast sjálfs-
morði ungrar stúlku þar fyrir ári.
Josh Evan var aldrei til.
Hann var tilbúningur Lori
Drew, móður einnar vin-
konu Megan, sem bjó í
fjögurra húsa fjarlægð frá
heimili Megan. J
Megan Meier
Fórnarlamb ofsókna
á vefsvæði MySpace
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaöamaöur ikrifar: kolbeinnwdv.is
Smábærinn Dardenne Prairie er að
flestu leyti eins og aðrir úthverfabæir
í Bandaríkjunum. fbúarnir eru lög-
hlýðnir borgarar og börn eru að leik
innan við snyrtilegar rimlagirðingar.
Hingað til hefúr lögregla þar um slóðir
ekki séð ástæðu til að stunda eftirlits-
akstur um götur bæjarins. Um helgina
varð þó breyting þar á.
Ástæðan var sú að ári eftir að þrett-
án ára stúlka, Megan Meier, framdi
sjálfsmorð, eru bæjarbúar að fá upp-
lýsingar um málavexti og um helgina
var haldin kertavaka fyrir utan heim-
ili foreldra hennar. Þar voru saman-
komin börn og foreldrar sem héldu á
spjöldum þar sem sagði „Réttlæti fyrir
Megan".
Fékk aðgang að MySpace
Megan Meier var viðkvæm, þybb-
in stúlka sem þjáðist af þunglyndi.
Hún var aðeins þrettán ára. Fyrir um
ári tókst henni að telja foreldra sína á
að leyfa henni að fá aðgang að netsíðu
MySpace. Þar komst Megan í kynni
við Josh Evans. Josh var sextán ára og
myndarlegur og hann sagði Megan að
hún væri falleg.
Sex vikum síðar komu foreldrar
Megan að henni þar sem hún hafði
hengt sig í loftbita í svefnherbergi sínu.
Eftir að hafa ausið Megan lofi og prís
svo vikum skipti hafði Josh skyndilega
breyst. Hann sagði hana vera illgjama
og að hann hefði heyrt að hún væri
andstyggileg við vini sína. Fyrr en
varði bættust fleiri í hópinn og henni
var úthúðað í netheimum; hún var feit
og hún var hóra. Að sögn Tinu, móður
Megan, varð þetta Megan um megn.
Hún hafði fyrir verið fómarlamb ein-
eltis og hafði í mörg ár reynt að fá
einhvem strák til að líka við sig. Höfri-
un Josh var meira en hún réð við.
Josh var aldrei til
Það var ekki fyrr en í síðustu viku
sem bæjarbúar fengu að vita sann-
leikann um Josh. Josh Evan var aldrei
til. Hann var tilbúningur Lori Drew,
móður einnar vinkonu Megan, sem
bjó í fjögurra húsa fjarlægð frá heim-
ili Megan.
Og þrátt fyrir rannsókn af hálfu
hvort tveggja lögreglu og alríldslög-
reglunnar, FBI, verður Drew ekki sótt
til saka því netheimar virðast ekki lúta
lögum og rétti. „Okkur hefur verið sagt
að engin Iög „passi" við þetta, þess
vegna er þessi vaka svo mikilvæg. Það
er ekki í mínu valdi að fá hana (Meg-
an) aftur. En það sem ég get gert er að
þrýsta á um breytingar" sagði Tina,
móðir Megan.
Foreldrar Megan héldu staðreynd-
um málsins leyndum í ár að ráði lög-
fræðings þeirra og það var eldd fyrr
en í síðustu viku sem þau rufu þögn-
ina. Saksóknarar segja málið snúið því
ekki sé með fullri vissu hægt að full-
yrða af hvaða sökum Megan framdi
sjálfsmorð, en öll sönnunargögn verði
endurskoðuð.
Sök bítur sekan
Á sama tíma og nágrannar sýna
hluttekningu sína heita foreldrar
Megan því að fara með málið fyr-
ir dómstóla. Almenningur í Banda-
ríkjunum er furðu lostinn og reiður
vegna málsatvika og skorts á aðgerð-
um. Refsiaðgerðir netheima hafa
dunið á Lori Drew og Curt, eigin-
manni hennar. Reiðir bloggarar hafa
birt á netinu upplýsingar um hjón-
in, heimilisfang þeirra, vinnustaði
þeirra og símanúmer.
Hjónin er eru fyrirlitin af bæjarbú-
um, það rigniryfir þau haturspósti og
múrsteinum hefur verið kastað inn
um glugga hjá þeim, þeim hefur jafn-
vel verið hótað lífláti. „Ég hef heyrt
að hún fái líflátshótanir og hún þori
ekki út úr húsi. En ég finn ekki til með
henni vegna þess sem hún verður fyr-
ir vegna gjörða sinna. Ég mun berjast
þar til yfir lýkur fyrir því að hún verði
ákærð," sagði Tina Meier.
Vináttusamband og útilegur
Móðir Megan sagði að Lori Drew
hefði átt að verða ljósar mögulegar
afleiðingar gerða sinna því Megan
hafi átt vináttusamband við dóttur
hennar, gist hjá henni og farið með
þeim í útilegur. Að sögn Tinu hefði
Lori Drew átt að vera fullkunnugt um
þau sálrænu vandamál sem Megan
glímdi við og var í meðferð vegna.
„Hún hefði allt eins getað haldið
byssu að höfði hennar. Henni fannst
þetta sniðugt, hún leit á þetta sem
leik. Ég vil fá þau á bak við lás og slá.
Hún er fullorðin og níddist á barni,
með því að þykjast vera sextán ára
drengur. Hún hóf hana upp og kast-
aði henni svo niður" sagði móðir
Megan.
FERÐALEIKUR
EBis
-hvað ar að frétta?