Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Side 9
DV Umræða
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 9
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm.
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór GuÖmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og (gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóörituð.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SANDKORN
■ Fólk í netheimum hefur nú
beint reiði sinni gegn mann-
lif.is, vef
tímaritsins
Mannlífs,
og Þórarni
Þórarins-
syni rit-
stjóra eft-
ir að þar
var vakin
athygli á
undirskriftalista sem hvatti
fólk til þess að lýsa frati á
SMÁÍS fyrir að beita sér fyrir
lokun netsíðunnar torrent.
is vegna ólöglegs niðurhals.
Reiðin er tilkomin vegna
þess að á vefnum er tekið
upp nýyrðið netlúði en fram
að þessu hefur gjarnan verið
talað um tölvunörda. Mann-
líf er aðeins eitt fórnarlamb
netlúðanna reiðu því alnafni
Snæbjörns Steingrímssonar,
framkvæmdastjóra SMÁÍS,
þurfti að kæra líflátshótanir
frá þeim sem nú beina spjót-
um sínum að mannlif.is.
■ össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra dregur
hvergi af sér á bloggi sínu
þegar
hann lýsir
klofningn-
um í sam-
starfsflokki
sínum,
Sjálfstæðis-
flokknum,
og
uppreisn-
inni gegn
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni,
fyrrverandi borgarstjóra, sem
kostað hafi Sjálfstæðisflokk-
inn borgina og borgarbúa
tugi milljarða í gróða af REI.
„Hvað er að þessu liði?" end-
ar ráðherra pistil sinn. Júlíus
Vífill Ingvarsson, borgarfull-
trúi og einn sexmenninganna
sem plottuðu gegn leiðtoga
sínum, er sagður hafa snúist
í REI-málinu og að hann vilji
í framtíðinni fara í gróða-
brall með fyrirtækið erlend-
is. Harka er hlaupin í málið
því Júlíus Vífill ýjaði að því í
fréttum RÚV að Óssur hefði
ekki verið með réttu ráði þeg-
ar hann skrifaði pistilinn.
■ Pist-
ill Össurar
Skarphéðins-
sonar þykir
vera vís-
bending um
að Sam-
fylking geti
hugsað sér
að losna við
Sjálfstæðisflokkinn úr rík-
isstjórn og taka upp sam-
starfvið stjórnarandstöðuna
í landsstjórninni. Verði sú
niðurstaðan að Sjálfstæðis-
flokkurinn hrökklist einnig
úr ríkisstjórn eru dagar Geirs
H. Haardc á formannsstóli
væntanlega taldir. Geir er leg-
ið á hálsi fyrir að taka ekki á
málum í flokknum og losa sig
við Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra sem af mörg-
um er talinn vera guðfaðir að
klúðrinu í borginni sem varð
til þess að flokkurinn hrökkl-
aðist frá völdum.
rt@dv.ls
Skref í rétta átt
LEIÐAKI
BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON FRÉTTASTJÓRISKRIFAR.
Sú ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heil-
brigðisráðherra að láta yfirfara og endur-
skoða hvernig staðið skuli að stækkun Land-
spítalans, sem eitt sinn var kölluð bygging
hátæknisjúkrahúss, gæti orðið ein besta ákvörðun
stjórnmálamanns á þessu kjörtímabili. Þess vegna
ber að fagna því að menn nemi staðar og hugsi sinn
gang frekar en að skammast út í að þeir láti ekki van-
hugsaðar hugmyndir og útfærslur forvera sinna ráða
för.
Guðlaugur Þór hefur lítið gefið út um hvernig hann
vilji sjá að niðurstaðan verði. Kannski hefur hann
ekki gefið sér fyrirfram hver hún eigi að verða. Orð
hans að undanförnu gefa hins vegar til kynna að hann
sé reiðubúinn að láta skoða almennilega hvað sé mikilvægast að
gera í uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu og með hvaða hætti.
Sá sem hér ritar hefur undanfarin ár rætt við marga sem hafa sótt
sér menntun og búa að mikilli þekkingu á heilbrigðiskerfinu. Af-
staða þeirra til framkominna hugmynda um sjúkrahússbyggingu
hefúr nokkuð skipst eftir því hvort þeir vinna á Landspítala eða
ekki. Þeir sem þar vinna hafa verið ánægðir með hugmyndirnar.
Þeir sem vinna utan hans segja hugmyndirnar of kostnaðarsam-
ar fyrir of lítinn ábata og taka meira mið af hag starfsmanna en
Þess vegna ber aö fagna því aö menn nemi stadar og hugsi sinn gang...
sjúklinga. Þetta er ekki svona klippt og skorið en gefur
næga ástæðu til að staldra við og hugsa sinn gang. Eitt
af því sem hefúr verið gagnrýnt er að áherslan er lögð á
dýrustu meðferðirnar meðan önnur úrræði og ódýrari
sitji á hakanum. önnur gagnrýni er sú að fyrirhugaðar
byggingar við Hringbraut henti ekki til spítalarekstiurs,
til þess séu þær of lágar og dreifðar. Við sáum í Komp-
ási fyrir nokkrum misserum hvernig stundum hef-
ur þurft að hlaupa með sjúklinga fram og aftur ganga
og upp og niður stiga. Þó slíkt heyri til undantekn-
inga er það ein sönnun þess að sjúkrahús á að byggja
hátt en ekki lágt og langt. Því er ástæða til að æda að
endurskoðunin á sjúkrahúsbyggingu kunni að verða
gæfúskref. Fyrstu hugmyndir um byggingu hátækni-
sjúkrahúss báru meiri keim af stjómmálamönnum að slá sig til
riddara en að þær byggðust á nákvæmu mati á þörfum og aðstæð-
um. Reyndar hefúr það stundum hvarflað að undirrituðum að
helsti varanlegi ávinningurinn af upphaflegum hugmyndum um
sjúkrahús og breytingu Hringbrautar hafi verið að festa flugvöll-
inn í sessi með síki (Hringbrautinni) og kastalaveggjum (nýjum
sjúkrahúsbyggingum) sem lokuðu á samgang milli Vatnsmýrar og
miðbæjar Reykjavíkur. Allavega hafa fræðin á bak við sjúkrahúsið
stundum virst sitja á hakanum.
KOSSflR RAÐHERRANS
SVARTHÖFÐI
Guðni Ágústsson frá Brúnastöð-
um er einn mesti snillingur
stjómmálasögunnar. Gullkorn
streyma af vörum hans við hvert tæki-
færi. Og það er þannig með Guðna að
flest sem hann gerir er fréttnæmt. Það
er vegna þess hvemig hann fer að því.
Hann kyssti kú austur í sveitum á vot-
ar granimar og gætti þess vandlega að
ljósmyndari væri viðstaddur. Myndin
birtist í dagblaði
ogvaktiþjóðar-
athygli. Þetta
varð til þess
að Guðni frá
Brúnastöðum
uppgötvaði það
aðkyssadýrvar
vænlegt til fjölmiðla-
athygli. En sú uppgötvun varð honum
öðrum þræði að falli því eftir belju-
kossinn notaði hann gjaman tæki-
færið til að kyssa dýr en gleymdi því
að til að uppskera þurfti hann að hafa
ljósmyndara í grennd. Og kossaflensið
kom Guðna í beinan háska þegar
hann hélt uppteknum hætti í Kína þar
sem strútur varð á vegi hans. Að sjálf-
sögðu fékk fuglinn koss á gogginn. En
það sem Guðni vissi ekki var að strút-
urinn var smitaður af salmonellu og
smitið barst í sjálfan landbúnaðarráð-
herrann sem veiktist illa.
Guðni er ekki aðeins einlægur
aðdáandi dýra. Hann er hrif-
næmur þegar stórmenni eiga í
hlut en með þó örfáum undantekning-
um. Castro Kúbuforseti er einn þeirra
sem drengurinn frá Brúnastöðum telur
vera einn mesta stjómsnilling vorra
tíma. Aðdáunin er ekki nýtilkomin
heldur hefur verið til staðar allar
götur fra því Guðni hjalaði við
mosató á Brúnastöðum.
Kominn á miðjan aldur og
orðinn sjóaður í embætti
landbúnaðarráðherra fékk
Guðni þá flugu í höfuðið
að rita Castro bréf og bjóða
honum sögustund í Hav-
ana, líklega hefur hann ætlað að
smella á hann kossi í leiðinni. í bréfinu
notaði Guðni tækifærið og lýsti með
óbeinum hætti andúð sinni á George
Bush Bandaríkjaforseta og bauð Castro
ráðgjöf í landbúnaðarmálum. Guðni
lét þó ógert að segja Castro að hann
hefði stutt innrásina í írak með setu
sinni í ríkisstjórn. Njósnarar íslensku
utanríkisþjónustunnar komust í
bréfið og HalldórÁsgrímsson
forsætisráðherra greip í taum-
ana. Guðni afturkallaði bréfið
en fór samt til Kúbu þar sem
hann smellti kossum á það
sem hreyfðist. En hann hitti
aldrei Castro.
Guðni hefur í lífssögu sinni
flett hulunni af mörgu
sem gerst hefur að tjalda-
baki þeirra ríkisstjóma sem hann
hefur setið í. Kossar hans hafa ekki
verið ætlaðir öllum. Ráðherrann sem
kyssti strút í Kína og belju á Suður-
landi smellti aldrei kossi á formann
sinn; þvert á móti notaði hann hvert
tækifæri til að lúskra á honum and-
lega. Harm er enn með kossa tilbúna
á vömm og einungis spurning um
hvar hann lætur næst til skarar skríða.
Kannski kyssir hann
Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladótt-
ur, formann
Samfylkingar-
innar, og kemst
aftur á ráðherra-
stól eftir sárs-
aukafullafjarveru.
DÓMSTÓLL GÖTUNIVAR
HVAÐ KEMUR ÞÉR í JÓLASKAP?
„Þegar ég var staddur f Danmörku (
vikunni fékkég mér einn jóla-Tuborg
og það kom mér í gott jólaskap.
Toppurinn á jólastemningunni er svo
þegar fjölskyldan gæðir sér á
jólamatnum og opnar pakkana."
Hörður Snævar Jónsson, 18 ára,
íþróttafréttamaður
„Það kemur mér í jólaskap þegar
jólalögin byrja að hljóma og þegar ég
fæ fyrstu jólasmákökurnar. Svo er
geggjað þegar Coca Cola-lestin keyrir
um götur borgarinnar."
Magnús Már Einarsson, 18 ára,
nemi
„Það sem kemur mér helst í gott
jólaskap er ilmandi rjúpnalykt, svo
koma börnin mln og konan mín mér I
mikið og gott hátíðarskap með
jólastemningunni sem þau skapa á
heimilinu."
Sverrir Konráðsson, 54 ára,
þýðandi
„Það kemur mér í rosalega mikiö
jólaskap þegar ég fer niður I bæ á
Þorláksmessukvöld. Ég hef oftspilað
niðri I bæ á Þorláksmessu með
málmblásturshópi sem ég er I og
þegar ég geri það veit ég að jólin eru
að koma."
Jón Ingi Stefánsson, 21 árs,
ritstjóri Film.is