Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Qupperneq 12
12 MANUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Sport DV
6-1 Andy Johnson skorar hér
sjötta mark Everton en hann
kom nýlega til baka eftir meiðsli.
1*'
r flri
Everton sigraöi Sunderland 7-1 í leik þar sem Spánverjinn Mikel Arteta var frábær i liði Everton:
SJÖFÖLD NIÐURLÆGING SUNDERLAND
VIOAH GUOJONSSON
bladamaðui skrifar: vidaríii'dv.ls
%
Everton rúllaði yfir Sunderland með
sjö mörkum gegn einu. Spánverjinn
knái Mikel Arteta var magnaður í
leiknum og var maðurinn á bak við
flestar sóknir Everton en skoraði ekki
sjálfur. Roy Keane, framkvæmda-
stjóri Sunderland, var ekki upplits-
djarfur eftir ieikinn en liðið er án
sigurs á útivelli í úrvalsdeildinni í 18
tilraunum.
Everton skoraði sfðast sjö mörk
í deildinni gegn Southampton fyrir
ellefu árum og liðið lítur vel út um
þessar mundir.
Fyrsta mark Everton kom á 12.
mínútu þegar Yakubu kom heima-
mönnum yfir. Skot hans fór af Danny
Higginbotham í jörðina og þaðan yfir
Dean Gordon sem stóð hjálparlaus í
einsids manns landi.
Þar með hófst orrahríð að marld
Sunderland-manna sem vissu ekki
hvaðan á sig stóð veðrið fyrr en Tim
Cahill og Steven Pienar höfðu komið
Everton í 3-0.
Dwight Yourke minnkaði muninn
rétt fyrir hálfleik og það reyndist það
eina jákvæða sem Sunderland gat
horft til í þessum leik þar sem Evert-
on átti 15 skot á markið gegn 5.
Hálfleiksræða Keanes
breytti engu
Roy Keane hefur væntanlega lát-
ið vel í sér heyra í hálfleik. Sunder-
land-menn áttu sinn besta leikkafla
á fyrsta korterinu í síðari hálfleik. En
sú mótspyrna var brotin á bak aftur
af Tim Cahill sem skoraði sitt fjórða
mark eftir sextíu metra stungusend-
ingu frá Joseph Yobo.
Þar með gafst Sunderland end-
anlega upp en Everton-menn voru
staðráðnir í að klára leikinn með
stæl. Yakubu skoraði annað mark
sitt í leiknum rétt áður en hann var
tekinn af leikvelli á 78. mínútu. Vara-
maðurinn Andy Johnson var ekki
búinn að vera lengi inni á vellinum
þegar hann skoraði sitt fyrsta mark
á U'mabilinu en hann er búinn að
vera meiddur í nokkurn tima. Leon
Osman skoraði síðasta markið í
leiknum á 84. mínútu.
Þar við sat og ef miðað er við
þessa frammistöðu er langur vetur
fram undan hjá Roy Keane og hans
mönnum í Sunderland. Liðið byrj-
aði leiku'ðina ágætlega en hefur ekki
unnið leik lengi í deildinni.
Everton er hins vegar á mik-
illi siglingu og hefur ekki tapað leik
í deildinni síðan í grannaslagnum
gegn Liverpool 20. október.
Besta frammistaðan
David Moyes, framkvæmdastjóri
Everton, var ekki frá því að þetta væri
besta frammistaða liðsins síðan hann
kom til félagsins. „Þegar maður sér
slíka frammistöðu langar mann að
setja hana í flösku og nota hana aftur
og aftur. Ég hafði það á tilfinningunni
að eitthvað þessu líkt væri á leiðinni.
Þegar allir eru orðnir heilir og enginn
er að spila landsleiki finnur maður
meðbyr. En þetta snýst einnig um þá
leikmenn sem sitja uppi í stúku. Þeg-
ar allir eru heilir er mikil samkeppni
um stöður í liðinu og við verðum að
halda uppi slíku umhverfi til þess að
færast ff am á við sem félag."
Moyes tiltók sérstaklega frammi-
stöðu Spánverjans klóka Mikel Art-
eta. „Þetta var besta frammistaða
liðsins síðan ég kom til félagsins og
þetta var hrein unun á að horfa.
Arteta var frábær í leiknum, sér-
staklega í fyrri hálfleik. Færin sem
hann skapaði voru mýmörg og það
er ótrúlegt að hann hafi verið að
koma til baka eftir meiðsli. Á góðum
degi er hann jafngóður og þeir bestu,
r
Yakubu 12..Cahill 17.,Pienaar Yoike45.
43., Cahill 62.. Yakubu 73.,
Johnson80.,ösman85.
45% MED BOLTANN 55% ____________________________
27 SKOTAÐMARKI 16 Howarf, Neville. Yobo (Jagielka
81.), Lescott NunoValente,
5 Arteta, Carsley, Osman, Pienaar,
1 Cahill (Ankhebe 74.), Yakubu
(Johnson 74.).
6
skotAmark
RANGSTÖÐUR
HORNSPVRNUR
AUKASPYRNUR
GUL SPJÖLD
RAUÐ SPJÖLD
AHORFENDUR: 38.594
SUNDERLAND
Gordon, Whitehead, Móhane,
Higginbotham, Harte, Edwards,
Etuhu (Wallace 46.), Yorke
(Collins46.), Leadbiner, Giopra
(Cole 67.), Jones.
MAÐUR LEIKSINS
l-r Mikel Arteta, Everton
hann er magnaður leikmaður," segir
David Moyes, framkvæmdastjóri Ev-
erton.
Hann er sáttur við að fá Andy
Johnson til baka en hann hefur verið
nokkuð frá. „Endurkoma Andys gerir
alveg heilmikið fyrir okkur því hann
er annars konar leikmaður en hin-
ir sem við höfum. Snerpa hans gef-
ur okkur aukna möguleika á því að
breyta leik okkar ef hlutirnir eru ekki
að ganga."
Roy Keane, framkvæmdastjóri
Sunderland, var niðurlútur í leiks-
lok. „Ég hef aldrei orðið fyrir slíkri út-
reið á ferli mínum. Vonandi var þetta
í fýrsta og eina skiptið sem ég lendi
í þessu. En mínar tilfinningar skipta
svo sem ekki mestu máli, aðalmálið
er að stuðningsmennirnir og félagið
í heild bregðist við með jákvæðum
hætti.
Ég vil ekki bara gagnrýna varnar-
mennina fjóra. Fleiri stóðu sig ekki
nógu vel í varnarleiknum. Everton
til hróss voru þeir líklegir til þess að
skora í hvert skipti sem þeir komu
fram á völlinn, það er góður eigin-
leiki," segir Roy Keane.
Maður leiKsins Mikel Ai teta var
fiabær í leiknum við Sunderland.