Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Sport DV
Arsenal vann Wigan með tveimur mörkum á tveimur mínútum og er komið með þriggja stiga forystu.
TVO MÖRKÁ SÍÐUSTU MÍNÚTUNUM
Arsenal fékk Wigan í heimsókn á
Emirates um helgina og var Arsenal
án Cescs Fabregas, Alexanders Hleb
og Matthieus Flamini. Það voru leik-
menn Wigan sem tóku forystuna á
íimmtu mínútu þegar Marcus Bent
var einn á móti Manuel Almunia
og skoraði en Bent var rangstæður.
Leikmenn Arsenal áttu í miklu basli
í byrjun leiks og náðu ekki að taka
forystuna fyrr en það voru sjö mínút-
ur til leiksloka þegar William Gallas
skallaði, Bakari Sagna átti góða fyr-
irgjöf frá hægri vængnum sem Gallas
afgreiddi vel.
Það var svo einni mínútu síðar
sem Tomas Rosicky tryggði Arsen-
al sigurinn með góðu skoti, Nicklas
Bendtner fékk boltann á miðju vall-
arins og keyrði upp og gaf til hægri
á Rosicky sem var einn á auðum sjó
og átti ekki í vandræðum með að
skora. Lokastaðan á Emirates 2-0 íyr-
ir heimamenn sem eru komnir með
þriggja stiga forystu á Manchester
United og eiga leik til góða.
Gðllas 83., Roýdcy 85.
2:0
68% MEÐ BOLTANN 32%
16 SKOTAÐMARKI 9
3 SKOTÁMARK 1
6 RANGSTÖÐUR 3
6 HORNSPYRNUR 4
9 AUKASPYRNUR 17
1 GUL SPJÖLD 4
0 RAUÐ SPJÖLO 0
AHORFENDUR: 60.126
ARSENAL
Almunia, Sagna, Toure, Gallas,
Qichy, Eboue (Eduardo 68.),
Denilson, Diarra, Rosicky,
Adebayor, Walcott (Bendtner
79.).
WIGAN
Pollitt, Boyce, Granqvist,
Bramble, Kilbane, Brown,
Schamer (Skoko 90.), landzaat
Olembe (Heskey 68.), Koumas,
Bent (Sibierski 84.).
Tomas Rosid(yí Arsenal
Gallas er týndi framherjinn
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,,
var gríðarlega ánægður með William
Gallas í leikslok. „Ég held að hann
sé týndur framherji af því að hann er
alltaf á réttum stað í teignum. Þetta
var frábær skalli og enn og aftur var
hann á réttum stað í teignum, hann er
með frábæra hæfileika," sagði Weng-
er og var mjög ánægður með það að
næla í stigin þrjú. „Við byrjuðum svo-
lítið hægt. Ég er mjög ánægður af því
að miðjan okkar var breytt í dag. Við
pressuðum þá hátt og vorum nálægt
þeim og yflr allan leikinn er ég mjög
ánægður með þá," sagði Wenger.
Bruce gerði góða hluti
Frank Barlow, sem stjórnaði sín-
um síðasta leik hjá Wigan, segir að
Steve Bruce, sem tekur við liðinu í
dag, hafi gert strákana hungraða til
að sanna sig. „Stjórinn kom niður fyr-
ir leikinn og ég held að hann hafi náð
að lyfta þeim upp. Hvernig þeir byrj-
uðu leikinn var mjög jákvætt svo við
vonumst eftir því að geta byggt ofan
á þetta og náð í góð úrslit á komandi
vikum," sagði Barlow.
HSJ
Leyflshafi
F cródmdldslufu
Tveir stórleikir í vor
Úrval Utsýn býöur upp á tvær f lottar ferðir á Stamford Bridge, heimavöll Chelsea
í vor. Boðið er upp á f lug með lcelandair til London, gistingu á 4 stjörnu hóteli í
miðborginni og miða á leikina. ATH að við erum ekki með marga miða í boði á þessa
leiki, fyrstir koma fyrstir fá.
Chelsea v Arsenal 21 .-24. mars
§|\WlSU W'Nágrannaslagur af bestu gerð, sannkallaður risaslagur í baráttunni um London
níl0t)ll,Verð: 97.500 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði og miði á leikinn
SAMSUfl
mobi
Englandsmeistarar síðustu tveggja ára takast á í leik þar sem úrslit deildarinnar
gætu hreinlega ráðist
Glæsilegur VIP pakki í boði, 3 rétta máltíð á Stamford Bridge fyrir leik ásamt
drykkjum og sæti í West upper stúkunni
Verð: 105.000 kr á mann í tvíbýli
Innifalið: flug, skattar, gisting í 2 nætur með morgunverði og miði á leikinn (VIP
pakki) Nánari upplýsingar hjá Úrval Útsýn á www.uu.is eða í síma 585-4000
L°7/MLL