Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Síða 15
DV Sport
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 15
Bolton Wanderes lyfti sér upp af fallsvæðinu með fyrsta heimasigri sínum á Manchester United í tæp þrjátíu
ár. Nicolas Anelka skoraði eina markið í 1-0 sigrinum. Sir Alex Ferguson fékk rautt spjald fyrir að hella sér
yfir Mark Clattenburg dómara í hálfleik.
Bolton vann seinast úrvals-
deildarleik 25. ágúst þegar liðið lagði
Reading 3-0. Þá vann það seinast
Manchester United á heimavelli í
desember árið 1978 þótt liðið hafi
nokkrum sinnum strítt United sein-
ustu ár, sérstaklega á Old Trafford.
Sigurmarkið kom á 11. mínútu. Ivan
Campo lyfti boltanum úr aukaspyrnu
inn á teiginn, Gerard Pique fór í flug-
ferð og missti af boltanum og bolt-
inn féll fyrir Anelka sem potaði
honum í netið. Gary Megson lofaði
fyrir helgi baráttu frá Bolton-liðinu
og stóð við það þar sem heimaliðið
var mun betra en United í fyrri hálf-
leik. Til marks um máttleysi gest-
anna má nefna að þeir komu hvorki
skoti á rammann né fengu horn í
hálfleiknum. Bolton-menn gengu
líka hart fram í tæklingum og Kevin
Davies straujaði Patrice Evra tvisvar
sinnum. Harka Bolton ergði sir Alex
Ferguson sem hellti sér yfir Mark
Clattenburg í hálfleik og fékk fyrir
það rauða spjaldið.
United hresstist lítið fyrr en And-
erson kom inn fyrir Pique og seinni
hálfleikurvarrúmlegahálfnaðurþeg-
ar liðið fékk sína fyrstu alvöru mark-
tilraun þegar Jussi Jaskelainen varði
góða aukaspyrnu Owens Hargreav-
40% MEÐ BOLTANN 60%
7 SK0TAÐ MARKI 15
1 SKOTÁMARK 2
2 RANGSTÖÐUR 2
4 HORNSPYRNUR 6
17 AUKASPYRNUR 14
3 GULSPJÖLD 0
0 RAUÐSPJÖLD 0
AH0RFENDUR.-25.028
B0LT0N
Jaaskelainen, Hunt, Meite,
Andrew 0'Brien, Gardner, Campo,
Nolan (McCann 83.), Guthrie
(Wilhelmsson 74.), Davies (Speed
70.),Anelka, Diouf.
MAN.UNITED
Van der Sar, Brown (0'Shea 88.),
Pique (Anderson 59.), Ferdinand,
Evra, Nani, Carrick, Hargreaves,
Giggs,Saha,Tevez.
MADUR LEIKSINS
Ivan Campo, Bolton
es. Carlos Tevez klúðraði dauðafæri
þegar hann hitti ekJd markrammann
af markteig eftir fyrirgjöf frá vinstri.
Kvartar ekki undan baráttu
Gary Megson, stjóri Bolton, von-
ast til að sigurinn efli sjálfstraust
Bolton. „Þetta var frábær frammi-
staða því við vorum hungraðir og
duglegir. Við höfum verið með vind-
inn í fangið en ég hef aldrei efast um
að við kæmum okkur af fallsvæðinu.
Að vinna lið sem enginn reiknar með
að við vinnum veitir okkur þá trú að
við getum unnið hvaða lið sem er
á heimavelli. Við sköpuðum okkur
ekki mörg færi en mér fannst United,
með alla sína hæfileikamenn, ekki
gera það heldur. Það er alltaf lykilat-
riði að skora fyrst og halda hreinu,"
sagði Megson sem gaf lítið fyrir læt-
in í Ferguson. „Við vorum í fallsæti
svo ég bað leikmenn mína um að
láta finna fyrir sér. Verstu tækling-
una átti framherjinn (Davies) sem
tæklar ekki vel. Við verðum að berj-
ast. Ég gagnrýni ekki liðið mitt fyrir
það. Eg myndi gagnrýna liðið ef það
gerði það ekki. Dómarinn sá ekkert
athugavert. Hann rak engan út af."
Hreinskilinn við dómarann
Víst. Hann rak sir Alex Ferguson
út af. „Ég sagði dómaranum hvað
mér fyndist um frammistöðu hans.
Sumir dómarar kunna ekki við það,
þeir vilja ekki heyra sannleikann. Ég
sagði honum einfaldlega hversu lé-
legur hann hefði verið í fyrri hálfleik.
Ég veit að Bolton berst fyrir lífi sínu
en það var heldur aðgangshart og
tvær eða þrjár tæklingar í fyrri hálf-
leik voru frekar Ijótar. Maður von-
ast eftir að dómarinn sé nógu sterk-
ur til að taka á slíku en það var hann
ekki," sagði Ferguson og bætti við að
Patrice Evra hefði fengið sérstaklega
slæma meðferð hjá leikmönnum
Bolton. „Ég veit ekki hvort þeir ætl-
uðu sér að ná honum en hann var
fórnarlamb nokkurra afleitra tæk-
linga."
United var án Cristianos Ron-
aldo, sem er tognaður á læri og
Nemanjas Vidic, sem spilaði með
serbneska landsliðinu. „Við vorum
samt með nógu góða leikmenn til
að vinna leikinn. Við skópum okkur
ekki nógu mörg færi til að verðskulda
sigur. Mér fannst leikur okkar skána
í seinni hálfleik en það var erfitt að
opna vörn Bolton. Liðið er þekkt fyrir
föst leikatriði og fyrir leikinn sögðum
við að ef við verðumst þeim mynd-
um við bjarga okkur en það gerðum
við ekki."
GG
Manchester City er enn í Meistaradeildarsæti eftir 2-1 sigur á Reading á heimavelli um helgina:
IRELAND Á ELLEFTU STUNDU
Manchester City, undir stjórn
fyrrverandi Iandsliðsþjálfara
Englands, Sven-Göran Eriksson,
hefur unnið alla átta heimaleiki
sína á leiktíðinni. Útlitið var bjart
þegar Martin Petrov kom liðinu
yfir strax á tíundu mínútu eftir
atgang í vítateig Reading þar sem
bæði Emilie Mpenza og Elano
höfðu átt markskot. Gestirnir tóku
sig saman í andlitinu og James
Harper skoraði með fallegu skoti frá
vítateigsjaðrinum þremur mínútum
fyrir leikhlé.
City var sterkari aðilinn í seinni
hálfleik en virtist hafa klúðrað færinu
á að vinna þegar Geovanni skaut yfir
á lokamínútunni. Stephen Ireland var
ekki reiðubúinn að játa sig sigraðan
og öðru sinni í þremur leikjum
skoraði hann dramatískst sigurmark
þegar hann negldi boltanum upp í
nærhornið í uppbótartíma.
„Þetta var frábært mark frá
Stephen, sem spilar alltaf betur
og betur. Hann er ungur og
14 SKOTAÐMARKI 4 l«l«Mn, Corluka (Jihai 43.),
Richards, Dunne, Garrido, Gelson,
7 SKOTAMARK 1 Hamann, Irelund, Peirov, Elano
2 RANGSTÖÐUR 2
2 H0RNSPYRNUR 7
11 AUKASPYRNUR 15
0 GULSPJÖLD 2
0 RAUÐSPJÖLD 0
ÁHORFENÐUR: 43.813
(Geovanni 58.), Mpenm
(Samaras46.).
READING
Hahnemann, Murty, Sonko,
Ingimarsson, Shorey, Hunt,
Gunnarsson, Harper, Convey,
Doyle (Lortg 85.), Kitson.
MAÐUR LEIKSINS
Richard Dunne, Man. Qty
hæfileikaríkur og á langan feril
fyrir höndum," sagði Eriksson um
frammistöðu Irelands. „Ég átti ekki
von á marki, sérstaklega ekki þar
sem mínútu fyrr klúðraði Geovanni
mjög góðu færi en stundum þarf
smá heppni. Við erum með gott
lið og leikmennirnir voru duglegir
frá upphafi til enda. Við byrjuðum
leikinn vel en misstum taktinn svo
jöfnunarmark Reading kom mér
ekki á óvart. Reading gerði okkur
erfitt fyrir en við verðskulduðum að
vinna."
Steve Coppell, stjóri Reading, tók
ekki undir það. „Mér fannst við standa
okkur nógu vel til að ná jafntefli. Það
var sárt að fá þetta mark á okkur en
við börðumst betur en í mörgum
öðrum útileikjum. Við fórum í leikinn
með ákveðna leikaðferð sem mér
fannst virka ágædega en samt fórum
við heim tómhentir."