Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Blaðsíða 17
PV Sport
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 17
Liverpool hefði getað unnið Newcastle með tveggja stafa tölu en lét þrjú mörk duga. Eitthvað mikið er að hjá
Newcastle, liðið er heillum horfið og Sam Allardyce, stjóri liðsins, á erfiða tíma í vændum.
LÉTT HJÁ UVERPOOL
BENEDIKT BÓAS HINKRISSON
bladamaður skrifar: benni@dv.is
Liverpool vann auðveldan sigur á
Newcastle 3-0 íyrir framan ósátta
áhorfenduráSt.James’sPark. Steven
Gerrard skoraði gull af marki á 28.
mínútu úr aukaspyrnu. Lét Lukas
renna boltanum til stn og þrumaði
boltanum upp í samskeytin. Baulað
var á Gerrard allan leikinn en hann
lék við hvern sinn fingur og spilaði
frábærlega.
Eftir aðeins 57 sekúndna leik í
síðari hálfleik var staðan orðin 2-
0. Dirk Kuyt fékk þá boltann í hnéð
á sér eftir hornspyrnu og inn lak
boltinn. Niðurlægingin var síðan
fullkomnuð þegar Ryan Babel
skoraði þriðja markið eftir frábæra
sókn.
Mörkin hefðu hæglega getað
orðið fleiri ef Fernando Torres hefði
nýtt eitthvað af færunum sem hann
fékk í leiknum. Meðal annars skaut
hann í stöngina fyrir opnu marki í
fyrri hálfleik og lét Shay Given verja
frá sér þegar hann var sloppinn
einn í gegn. Given var í raun maður
leiksins, hann bjargaði liðinu trekk
í trekk með góðri markvörslu og
kom í veg fyrir að Liverpool vann
44% MEÐ BOLTANN 56%
7 SKOT AÐ MARKI 14
0 SKOTÁMARK 7
4 RANGSTÖÐUR 1
0 HORNSPYRNUR 8
14 AUKASPYRNUR 13
3 GULSPJÖLD 1
0 RAUÐ SPJÖLD 0
ÁHORFENDUR: 52.307
NEWCASTLE
Given, Geremi, Beye, Rozehnal,
Jose Enrique (Carr 78.), Smith,
Butt, Emre (Barton 51.), N’Zogbia
(Milner 59.), Viduka, Martins.
LIVERP00L
Reina, Finnan, Carragher, Hyypia,
Arbeloa, Gerrard (Crouch 80.),
Luas, Sissoko, Kewell (Babel
58.), Torres, Kuyt (Riise 76.).
MAÐUR LEIKSINS
Steven Gerrard, Liverpool
ekki leikinn 10-0. Þó má ekki ganga
framhjá Steven Gerrard sem var allt
í öllu hjá Liverpool. Gerrard hefur
verið töluvert gagnrýndur það sem
af er tímabilinu en hann sýndi og
sannaði í þessum leik að hann er
einn sá besti í heiminum. Reyndar
var mótherjinn Newcastle sem
virðist ekkert geta þessa dagana.
Sam Allardyce, stjóri liðsins, er
heldur ekki sá vinsælasti í borginni
en allar ákvarðanir hans eru um-
deildar og baulað var á skiptingarn-
ar hans. Hann lék 3-5-2 og var him-
inn og haf á milli varnar og miðju og
miðju og sóknar. Þeir voru nánast
alltaf undirmannaðir og Liverpool
átti ekki í vandræðum að spila fram-
hjá þeim. Til marks um hve New-
castle var slakt leit Momo Sissoko
íjandi vel út á miðju Liverpool.
Ekki reka Sam
„Sam gerir hlutina aðeins öðru-
vísi en aðrir stjórar og við verðum
að venjast því," sagði Obafemi Mart-
ins, sóknarmaður Newcastíe, um
stjóra sinn. „En það er allt í góðu,
okkur leikmönnunum líður vel und-
ir stjórn hans. Fólk verður að gefa
honum tíma, kannski tvö til þrjú ár.
Það er engin ástæða til að missa trú
á honum strax því hann mun ná því
besta úr liðinu eftir skamma stund."
Joey Barton hefur einnig veitt
stjóra sínum stuðning. „Við töpum
tveimur leikjum, gerum jafntefli
við Sunderland og fólk vill stjórann
burt. Það er hjákátlegt í besta falli.
Svona er breskt samfélag orðið, það
er einhver vilji hjá fólki að sjá hausa
fjúka.
Við látum vangaveltur blaðanna
sem vind um eyru þjóta og ef
fólk trúir öllu sem það les er það
hálfvitar. Allir leilcmenn styðja Sam
og hann á eftir að gera góða hluti
með þetta lið."
Eitthvað hefur breyst
Rafa Benitez, stjóri Liverpool,
virðist kominn upp á kant við
eigendur Liverpool, þá Tom Hicks
og George Gillett. Fréttir hafa borist
að þremenningunum sé ekki of vel
til vina og Benitez segir að eitthvað
hafi breyst.
„Það er ljóst að þeir vilja félaginu
það allra besta en það vil ég einnig.
Evrópski félagasldptamarkaðurinn
er ekki eins og í Bandaríkjunum.
Það er ekki hægt að velja leikmenn.
Við áttum fund fyrir Arsenal-leildnn
sem var jákvæður en eftir þann leik
hefur eitthvað breyst. Þeir sögðu
mér að einbeita mér að því að þjálfa
liðið því Rick Parry myndi ná í leik-
menn."
Sam Allardyce, stjóri Newcastle, sagði að áhorfendur væru í full-
um rétti að baula á liðið:
0LL SPJ0T A ALLARDYCE
Newcastle tapaði 3-0 fýrir
Liverpool þar sem liðið leit út
eins og byrjendur. Þetta er annar
heimaleikur liðsins þar sem það
bíður stóran ósigur. Ahorfendur létu
óánægju sína í ljós og bauluðu ekki
bara á Steven Gerrard, heldur einnig
á sitt eigið lið.
„Þetta var viðbúið og aðdáendur
eru í fullum rétti að sýna vanþóknun
sína. Ég bjóst við þessu og þetta sýnir
að það er metnaður innan þessa fé-
lags. Stuðningsmenn borga sig inn til
að koma og sjá fótboltaleik. Þeir eru
hjarta og sál félagsins og því mega
þeir alveg tjá sína skoðun.
Þetta fer samt allt eftir úrslitum.
Fyrir tveimur leikjum vorum við
frábærir og lífið var auðvelt. Núna
tveimur leikjum síðar er allt ómögu-
legt. En ég sé ljósið og veit að við
munum laga þetta." Allardyce segist
ætía að grafa djúpt til að finna lausn-
ir á vandamáli liðsins, ekki seinna
vænna enda liðið komið niður úr efri
hlutanum. „Ég hef í raun aldrei lent
í þessum aðstæðum fyrr. En ég hef
fengist við erfiðar aðstæður fyrr og ég
lít á þetta sem áskorun. Maður brett-
ir bara upp ermar og heldur áfram
sínu starfi, vonandi byrjar það strax
gegn Blackburn um næstu helgi."
Allardyce þrumaði yfir leikmönn-
um sínum í klukkutíma eftir leik-
inn. Hélt þeim í búningsherberginu
og að sögn enskra blaða fékk hár-
þurrkumeðferðin nýja merkingu.
Eftir að Ryan Babel skoraði þriðja
mark Liverpool sungu stuðnings-
menn: „You don’t know what you're
doing," sem myndi útíeggjast á góðri
íslensku: „Þú veist ekki hvað þú ert
að gera,"
Sá besti!
Sá flottasti!
Ný bók um
undrabarnið
Cristiano
Ronaldo
Þessa bók
verða allir
knattspyrnu-
fíklar að eiga!
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
benni@dv.is