Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Page 18
18 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Sport PV
Ferguson vill framlenqja við
Tovoz
Sir Alex Ferguson vill framlengja
samning CarlosTevez við Manchester
United. Hann telurTevezvera tiltölulega
ódýran í rekstri ef
miðað er viðaðra
íliðinuogþvfvill
Ferguson breyta.
„Þaðerengin
spurning um það
að við viljum
halda honum í
langan tíma.
Tevez hefur
heillað alla hjá
félaginu. Hann hefur svo gaman af því
að spila fótþolta og það er eiginleiki sem
við viljum hafa hjá leikmanni," segir
Ferguson.Tevez er 23 ára.
Juando Ramos sogir
sóknarmenn liðsins moga fara
Juande Ramos hefur gefið það í skyn
að hann muni ekki standa í vegi fyrir
þeim leikmönnum sem vilji fara frá
félaginu. Ramos
vill taka til í
herbúðum
Tottenham og
heyrst hefur að
Dimitar
Berbatov og
Jermaine Defoe
vilji fara frá
félaginu.„Ég
myndi vilja halda
öllum sóknarmönnunum hjá félaginu
en ef það er einhver sem vill fara frá
félaginu get ég ekkert við því gert. Ég
held að þeir geti allir verið ánægðir hér
en þeir verða að taka ákvörðun um það
hvort það henti þeim að spila ekki alltaf,"
segir Ramos.
Rangt að láta Carson spila
David James hefur látið hafa eftir sér að
það hafi verið rangt að láta Scott
Carson spila á móti Króötum á
miðvikudaginn síðastliðinn. Hann telur
að það hafi verið
of mikil pressa
fyrirungan mann
að leika svo
mikilvægan leik.
„Scottyerfrábær
markvörðurog
hannmunán
vafa verða fyrsti
markvörður
Englands. En
hann var ekki tilbúinn í þennan leik sem
er af því að hann var ekki valinn í fyrra
þegar hann átti það skilið með Charlton.
En þar sem hann var ekki valinn fyrr var
ekki rétt að spila fýrir hann," segir James.
Vandamál Englendinga oru
sálfræðilog
Fabio Capello segir að vandamál
Englendinga hafi ekkert með tæknilega
getu leikmanna að gera. Hann telur
andlega þætti hrjá liðið og leikur liðsins
sé ekki nægilega stöðugur.„Við
þjálfararnir
spyrjum okkur
hvernig standi á
þviað
Englendingar
náðu ekki að
tryggja sér sæti á
EM 2008. Enska
liðið líkt og það
spænskavinnur
lítið þrátt fyrir að
ídeildarkeppnunum séu miklir
peningar. Ég hef séð nokkra leiki hjá
Englandi og það er mikill óstöðugleiki (
leik liðsins. Á móti Rússum vörðust þeir
á vltateig frá því þeir komust yfir 1-0 en
á móti Króötum ætluðu allir að sækja
þrátt fyrir að jafntefli hefði dugað þeim.
Það vantar aga í leikmenn og leik
liðsins."
57% M£0 B0LTANN 43%
16 SKOTAÐMARKI 9
4 SK0TÁMARK 4
1 RANGSTÖÐUR 3
11 H0RNSPYRNUR 6
16 AUKASPYRNUR 17
2 GUL SPJÖLD 1
0 RAUÐSPJÖLD 0
ÁH0RFENDUR: 23,900
MIDDLESBROUGH
Schwarzer, Young, Woodgate,
Wheater, Pogatetz, 0'Neil,
Cattermole (Rochemback 53.),
Boateng,Johnson,Aliadiere
(Hutchinson 75.), Downing.
AST0N VILLA
Carson, Mellberg, Knight, Laursen
(Davies 84.), Bouma, Petrov
(Gardner 79.), Reo-Coker, Barry,
Young, Carew (Maloney 74.),
Agbonlahor.
msm*
MADUR LEIKSINS
Gabriel Agbonlahor, Aston V.
Chelsea sækir að efstu liðunum en Derby grær fastar við botnsætið. Lundúnaliðið vann
0-2 í daufum leik á Pride Park um helgina. Löglegt mark var dæmt af Derby og Michael Essien
fékk rauða spjaldið. Stjóri Derby vonast eftir íjármunum til leikmannakaupa í janúar.
Vandræði Derby County aukast æ,
en liðið er með 28 mörk í mínus eftir
fjórtán leiki. Lokatölumar 0-2 gegn
Chelsea voru því viðeigandi. Eins og
víðar á enskum knattspymuvöllum
var baulað á ensku landsliðsmennina,
þá Wright-Philipps, Lampard og
John Terry. Derby hefur reyndar átt
slakari leild á þessari leiktíð. Eftir að
hafa haldið hreinu í rúmt korter kom
Salomon Kalou gestunum yfir eftir
gott spil. Heimamenn tóku sig saman
í andÚtinu og í upphafi síðari hálfleiks
skoraði Kenny MilJer mark íyrir Derby,
sem var ranglega dæmt af vegna
rangstöðu. Seinna mark Derby kom á
73. mínútu eftir að Andriy Shevchenko
vann boltann, að því er vrtist ólöglega,
af Giles Barnes, kom honum á Frank
Lampard sem skaut í stöng þaðan sem
boltinn féll fyrir fætur Shauns Wright-
Philipps sem þurfti ekki annað en ýta
boltanum yfir línuna. í uppbótartíma
var Michael Essien, sem kom inn á
sem varamaður, vikið af velli fyrir að
löðrunga Kenny Miller.
Vantar vasa á búningana
Akvörðun Andres Marriner dómara
ergði Avram Grant, stjóra Chelsea.
„Ég vil ekld gagnrýna dómara, ég hef
sjaldan gert það og ég vil ekki gera
það, sérstaklega ekki þar sem hann
er á fyrsta ári sínu í úrvalsdeildinni.
En ég hef ákveðna tilfinningu - og ég
var varaður við þessu áður en ég kom
til Chelsea og óttast að það sé rétt - að
við eigum auðvelt með að láta reka
okkur út af. Það gerðist gegn bæði
Manchester United og Fulham og
allir sögðu að það hefðu verið rangir
dómar og það sama má segja um
brottreksturinn í dag."
En ensldr blaðamenn settu ofan í
við Grant. 1 fyrsta lagi bentu þeir hon-
um á að Marriner væri á sínu þriðja ári
í úrvalsdeildinni og sjónvarpsmyndir
af atvikinu sýndu Essien líta upp áður
en hann slæmdi hendinni framan í
Miller. „Ég veit ekki hvort þið vitið það
en það eru engir vasar á búningunum.
Menn geta ekki sett hendurnar í vas-
ann. Mér finnst það ekki vera brott-
rekstrarsök þegar menn rétta hand-
legginn svona út,“ sagði Grant og sýndi
handarsveifluna.
Bíður eftir símtali frá stjórnarfor-
manninum Billy Davies, stjóri Derby,
segir liðið þurfa sex nýja leikmenn.
0:2
Kalou 17., Wright-Ptullips 73.
34% MEÐ B0LTANN 66%
7 SK0TAÐ MARKI 9
1 SKOTAMARK 4
1 RANGSTÖÐUR 1
3 H0RNSPYRNUR 2
8 AUKASPYRNUR 9
0 GULSPJÖLD 1
0 RAUÐ SPJÖLD 1
AHORFENDUR: 32,789
DERBY
Bywatef, Griffin, Davis, Moore,
Leacock, McEveley, Fagan
(Earnshaw 86.), Oakley (Feilhaber
84.), Jones, Miller, Barnes
(Howard75.).
CHELSEA
Cudicini, Belletti, Terry, Ben-
Haim, Ashley Cole, Obi, Lampard
(Pizarro 90.), Sidwell (Essien 75.),
Wright-Phillips, Shevchenko,
Kalou.
’grx MAÐUR LEIKSINS |
* r.8 f 7^9 S. Wright-Phillips, Chelsea
Bíður eftir stjórnarformanninum
Billy Davies, stjóri Derby, var held-
ur ekki hrifinn af dómgæslu Marriners.
„Ég er búinn að sjá upptöku af marki
Kennys Miller og hann er greinilega
réttstæður. Ég er búinn að sjá brot-
ið á Giles Bames og það er greinilegt
brot. En það er ekki aðalvandamál-
ið," sagði Davies. Fyrir honum er að-
alvandamálið leikmannahópurinn og
samskipti, eða skortur á samsldptum,
við nýja stjómarformanninn, Adam
Pearson, sem tók við af Peter Gadsby
í lok október. „Við verðum að fjárfesta
í nýjum leikmönnum. Ég finn til með
Óblíðar móttökur Giles Barnes,
leikmaður Derby, var tæklaður niður af
Steve Sidwell (seinna marki Chelsea. I1
stuðningsmönnunum því þeir blæða,
styðja félagið og leikmennina og vilja
sjá góða frammistöðu á vellinum og
hún verður að fara að sjást."
Davies notaði tækifærið í fjölmiðl-
um eftir leikinn til að koma boltanum
til Pearsons. „Ég hef hitt hann og rætt
við hann í síma en síðan eru þrjár vik-
ur. Mun ég hitta hann í þessari viku?
Það er stóra spumingin."
Davies er hreinskilinn og segir leik-
mannahóp Derby einfaldlega ekki
samkeppnishæfan í úrvalsdeildinni.
„Leikmennimir stóðu sig frábærlega
og komu liðinu í úrvalsdeildina en þá
skortir sjálfstraust og þeir verða að sjá
leikmenn í hópnum sem hafa þessa
einstöku tækni sem þarf í deildina.
Leikmennirnir hafa lagt sig alla fram
en munurinn milli deilda er svo gríð-
arlegur. Ég hef sagt að við þurfum sex
leikmenn og ég er búinn að finna þrjá
þeirra."
GG
Aston Villa sigraði Middlesbrough 0-3 á Riverside:
Góður útisigur Aston Villa
Scott Carson, markvörður
Aston Villa, mætti miklu mótlæti á
Riverside þegar Aston Villa kom í
heimsókn og mætti Middlesbrough.
Áhorfendur púuðu á hann en hann
yfirgaf leikvanginn sem sigurvegari
enda sigraði Aston Villa 0-3.
Aston Villa byrjaði leikinn mun
betur og Ashley Young var sprækur
framan af. Minnstu munaði að hann
næði að skora fyrsta markið en John-
athan Woodgate komst fyrir skotið á
síðustu stundu.
John Carew skoraði fýrsta mark
leiksins rétt fyrir lok fýrri hálfleiks
með fi'nu skoti eftir fyrirgjöf frá Gar-
eth Barry.
1 síðari hálfleik náðu Villa-menn
enn betri tökum á leiknum og Olaf
Mellberg skoraði sitt fyrsta mark síð-
an í ágúst árið 2006 þegar hann nýtti
sér varnarmistök Lees Cattermole.
Niðurlæging Middlesbrough var
fullkomnuð á 58. mínútu þegar Gabr-
iel Agbonahor skoraði þriðja mark
Aston Villa. Middlesbrough reyndi
hvað það gat að sækja undir lokin
en af veikum mætti og augljóslega
saknar liðið sóknarmanna á borð
við Mido sem er búinn að vera mikið
meiddur að undanförnu.
Scott Carson varði nokkrum sinn-
um vel í leiknum en hann líkt og Gar-
eth Barry fékk mikið baul á sig vegna
frammistöðu Englendinga á mið-
vikudaginn.
Martin O'Neill, framkvæmda-
stjóri Aston Villa, hrósaði Scott Car-
son eftir leildnn.„Þessi ffammistaða
hans sýnir hversu sterkur karakter
hann er. Ég hef aldrei efast um hæfni
hans sem markvarðar og við þurfum
á slíkum hæfileikamanni að halda."
Aðspurður hvort hann vildi taka
við enska landsliðinu sagði O'Neill
svo ekki vera. „Ég virkilega nýt þess
að vera hér og ég sé framtíð mína hjá
þessu félagi," segir O 'Neill
Gareth Southgate var að vonum
vonsvikinn eftir leikinn. „Þetta voru
gríðarleg vonbrigði. Það var ekkert
að gerast í leiknum í 45 mínútur en
svo fáum við mark á okkur við lok
fyrri hálfleiks og aftur í upphafi síðari
hálfleiks. Það drap niður leikinn og
við vorum aldrei nálægt því að kom-
ast aftur inn í leikinn," sagði South-
gate vidar@dv.is