Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Blaðsíða 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 19
Portsmouth vann góðan útisigur á Birmingham og heldur áfram að spila vel.
Portsmouth sótti Birmingham
heim á laugardaginn, Hermann
Hreiðarsson sat á varamannabekk
Portsmouth í leiknum en Ports-
mouth hefur verið á góðu skriði á
þessari leiktíð. Það voru leikmenn
Portsmouth sem skoruðu fyrsta
mark leiksins á 34. mínútu,
Benjani fékk boltann fyrir utan teig
Birmingham og setti boltann inn
fyrir vörnina þar sem Sulley Muntari
var og átti hann ekki í vandræðum
með að afgreiða knöttinn framhjá
Richard Kingston sem stóð í marki
Birmingham. StuttusíðarfékkMika-
el Forsell gott færi en David James
varði glæsilega.
Annað mark leiksins kom svo
þegar sex mínútur voru til leiksloka,
Portsmouth fengu aukaspyrnu fyrir
utan teig og það var Króatinn, Niko
Krancjarsemtókspyrnuna. Spyrnan
var góð og söng í fjærhorninu,
frábær spyrna frá Króatanum knáa.
Lokastaðan 0-2 og Portsmouth
heldur áfram að gera frábæra hluti.
James sá besti
Harry Redknapp, stjóri Ports-
mouth, var ánægður með sína menn
eftir sigurinn. „Það var erfitt að
brjóta okkur niður og vörnin okkar
spilaði frábærlega," sagði Redknapp
sem hrósaði David James í hástert
í leikslok. „Ég held að við séum
með besta markvörðinn í deildinni,
David James, og með vörnina okkar
er erfitt að brjóta okkur niður. Það
eina sem er neikvætt við leikinn er
að við hefðum getað stjórnað honum
en við gáfum boltann frá okkur
kæruleysislega á slæmum tímum,"
sagði Redknapp en hann hefur gert
frábæra hluti með Portsmouth á
þessari leiktíð
Leikmenn gerðu vel
Erick Black, sem stjórnar
Birmingham tímabundið eftir að
Steve Bruce hætti með liðið, var
vonsvikinn í leikslok. „Þú verður
að taka ákvarðanir og spila með
bestu leikmennina. Maik Taylor
spilaði með landsliðinu og Richard
Kingston hefur gert vel og átti skilið
að fá sitt tækifæri. Þetta var lélegt
Fagnað. Leikmenn Portsmouth
fagna marki Kranjcar
Dansað Campell og Kapo
berjast um knöttinn.
mark og enginn er svekktari en
hann, ef þetta hefði farið 0-0 hefðu
það ekki verið slæm úrslit. Það
verður samt að hrósa leikmönnum
sem gáfu allt í þetta, við tökum það
jákvæða en því miður engin stig,"
sagði Black.
Campell kallar eftir einbeitingu
Sol Campell, leikmaður
Portsmouth, vonast eftír því að hann
og liðsfélagar hans haldi áfram að
geravel. „Egvonaaðviðhöfumlært
ffá síðustu leiktíð þegar við misstum
af Evrópusætí. Þetta lítur vel út en
við verðum að halda einbeitíngu
og megum ekki verða kærulausir.
Við höfum haldið áfram frá síðustu
leiktíð og við verðum að halda áffam.
Við höfum ekki unnið neitt ennþá,
við verðum að vera vissir um að vera
á jörðinni og gefa okkur alla í þetta.
Við erum miklu sterkari í ár og með
meiri breidd," sagði Campell sem
hefur verið að leika gríðarlega vel á
þessari leiktíð. hsj
5 SKOTAÐMARKI 18 Kingson. Djourou, Kelly,
Ridgewell, Schmitz, De Ridder,
2 SKOTÁMARK 6 Kapo, McSheffrey (0'Connor 74.),
3 RANGSTÖÐUR 1 Muamba, Nafti, Foissell.
4 H0RNSPYRNUR 3
18 AUKASPYRNUR 21
3 GULSPJÖLD 2
0 RAUÐSPJÖLD 0
ÁHORFENDUR: 22.089
P0RTSM0UTH
James, Campbdl, Distin,
Johnson, Pamarot, Davis, Diop,
Kranjcar, Muntari, Utaka (Taylor
81.), Mwamwari.
wbbb*
MflDUR LEIKSINS
Sylvain Distin, Portsmouth
Benitez burt?
Ensku sunnudagsblöðin segja að
Rafael Benitez verði brátt rekinn frá
Liverpool vegna deilna við eigendur
félagsins.Jose
Mourinho er
sagður
liklegasturtil að
taka við af
Spánverjanum.
Deilur Benitez
við Tom Hicks,
annan
aðaleiganda
Liverpool, eru sagðarsnúast um
leikmannakaup, einkum framlengingu
samnings Javiers Mascherano.
Núverandi samningur Mascheranos
rennur út í janúar en Benitez hefur
fengið þau skilaboð að hann verði að
selja leikmenn áðuren nýir verði
keyptir. Auk Argentínumannsins er Ben-
itez sagður vilja miðvörð.„Ég er ekki að
tala um leikmenn sem kosta peninga.
Við verðum að ræða við umboðsmenn-
ina strax því leikmennirnir verða dýrari í
sumar. Það er Ijóst að Hicks vill félaginu
vel og ég líka. Við áttum uppbyggilegan
fund sama dag og við lékum gegn
Arsenal en síðan hefur eitthvað breyst.
Þeir hafa sagt mér að einbeita mér að
því að þjálfa liðið því Rick Parry sjái um
ieikmannakaup," sagði Benitez.
Allir vilja þjálfa landsliðið
Jose Mourinho, Jiirgen Klinsmann,
Fabio Capelio, Harry Redknapp og
Alan Shearer vilja allir þjálfa enska
landsliðið.The Observer segir að Jose
Mourinho hafi
komið áhuga
sínum á framfæri
í gegnum vini
sína og vilji að
málið verði
unnið hratt.
Sömu leið hefur
Klinsmann valið
og hann hefur
stuðning þýska
knattspyrnukeisarans Franz Becken-
bauer. Martin O'Neill vill ekki taka við
starfinu en mælir með Alan Shearer.
Capello hefur í viðtölum, bæði við
enska og ítalska fjölmiðla, lýst enska
landsliðinu sem spennandi áskorun. (
viðtali við SkySports sagði Harry
Redknapp það vera draum að þjálfa
landsliðið.
Ekki meira lasagna
Juande Ramos hefur sett mark sitt á
Tottenham - með því að breyta
mataræði leikmanna. Vorið 2006 horfðu
leikmenn liðsins með magakveisu á
eftir Meistaradeildarsæti til
erkifjendanna (Arsenal eftir að hafa
borðað vafasamt
lasagna. Ramos
hefur ráðið
Antonio
Escribano sem
notar
náttúrulegt
fæðubótarefni,
papilla, sem
unniðerúr
laufblöðum. Það
virkaði hjá Sevilla og Ramos vonasttil
að það virki líka hjáTottenham. Meðal
þeirra sem eiga að léttast eru
miðjumaðurinnTom Huddlestone.
r Jólin koma snemma I ár.... Ertu búinn aÓ €á þér jólafötin.
*
7 ' ? \
mm _______
Liverpool mini kit
Heima - vara og evrópubúningur
Kr. 4.990,-
Arsenal mini kit
Heima - vara og evrópubúningur
Kr. 6.490,-
Chelsea FC
Heima og varabúningur
Kr. 4.990,-
Kr. 4.990.-
nited
varabúningur
Kr. 6.490.-
Kr. 4.990,-
Ekki missa barnið
þitt í rangt lið!!
Aston ^lla
Kr. 6.490.-
Barcelona
Kr. 6,490.-
www.joiutherji.is Ármúla 36 - s. 588 1560 KNATTSPYRNUVERSLUN
Jói útherji