Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Side 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 21
Watford heldur forskoti sínu í Coca C
þrátt fyrir 3-2 tap gegn Barnsiey. Nc
Coventry í heimsókn.
i á Englandi eft:
. sjaldséðan sig
Enn á toppnum Tommy Smith og félagar
hans í Watford eru enn á toppi Coca Cola-
deildarinnar þrátt fyrir tap um helgina.
AÐGEFAEFTIR?
DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON
bladcimadur skrifar: dagurío'dv.is
Heil umferð fór fram í Coca Cola-
deildinni á Englandi um helgina.
Efsta lið deiídarinnar Watford
heimsótti Barnsley og varð að sætta
sig við sitt þriðja tap á leiktíðinni.
Lokatölur urðu 3-2 fýrir Barnsley.
Barnsley komst í 2-0 eftir 34
mínútur. Fyrst skoraði Brian Howard
á 31. mínútu og Martin Devaney
bætti öðru marki við þremur
mínútum síðar.
Watford náði að minnka muninn
á 36. mínútu þegar Dan Shittu skor-
aði. Skömmu fyrir leikhlé var Shittu
aftur á ferðinni þegar hann jafnaði
metin.
Það var svo Richard Lee,
markvörður Watford, sem skoraði
sjálfsmark á 66. mínútu og þar við
sat. 3-2 sigur Barnsley staðreynd og
annað tap Watford í síðustu fjórum
leikjum.
Adrian Boothroyd, stjóri Watford,
var mjög ósáttur við dómara leiksins,
Mike Pike. Boothroyd taldi að brotið
hefði verið á Richard Lee markverði
þegar hann skoraði sjálfsmarkið og
Boothroyd vildi einnig fá vítaspyrnu
undir lok leiksins þegar Marlon King
féll í vítateig Bamsley.
„Við áttum klárlega að fá víta-
spyrnu og aukaspyrnu þegar brotið
var á markverðinum og ég sagði það
við dómarann. Sumar ákvarðanirnar
í síðari hálfleiknum voru furðulegar.
Ég hef viðrað mínar skoðanir við
mína leikmenn og við vitum allir að
við áttum aldrei að lenda 2-0 undir.
Ég er vonsvikinn, við viljum aldrei fá
á okkur tvö mörk áður en við byrjum
að skora og við verðum að nýta okkar
tækifæri," sagði Boothroyd eftir
leikinn.
Fyrsti sigur Roeders
Norwich vann sinn fyrsta sigur
undir stjórn Glenns Roeder þegar
liðið fékk Coventry í heimsókn
á Carrow Road. Lokatölur urðu
2-0 fyrir Norwich þar sem Luke
Chadwick og Jamie Cureton skoruðu
mörkin. Norwich er þó enn í neðsta
sæti deildarinnar.
„Þessi sigur skiptir öllu máli. Ég
sagði fyrir leikinn að það skipti litíu
máli hvernig við myndum spila, svo
lengi sem við myndum vinna. En við
spiluðum frábæran fótbolta og unn-
um og frá mínum bæjardyrum séð
var þetta fullkominn dagur," sagði
Roeder eftir leikinn og hrósaði láns-
manninum Matty Pattison sérstak-
lega fyrir sinn leik.
„Ég er ánægður með alla mína
leikmenn, allir léku sitt hlutverk í
dag. Ég er mjög ánægður með Matty
og ekki hissa. Ég sá mikið til hans
þegar ég var með unglingalið New-
castíe og einnig þegar ég var stjóri
liðsins. Ég veit því hvað strákurinn
getur," bætti Roeder við.
Charlton gerði góða ferð til
Preston og fór með 2-0 sigur af hólmi.
Kínverjinn Zheng Zhi kom Chariton
á bragðið með marki skömmu fyrir
leikhlé og Luke Varney skoraði síðara
markið skömmu fyrir leikslok.
„Ef við ætíum að spila fótbolta í
þessari deild verðum við að aðlag-
ast baráttunni og hraðanum og ég tel
okkur hafa rétta efniviðinn til þess.
Ég er mjög ánægður með hugarfarið
í hópnum og leikmenn eru staðráðn-
ir í að eiga gott tímabil," sagði Alan
Pardew, stóri Charlton.
Leeds United tapaði 1-0 fyrir botnliði
Cheltenham:
ÓVÆNTTAP LEEDS
Leeds United tapaði óvænt fyrir
Cheltenham í ensku fýrstu deildinni.
Eftír mjög góða byrjun á leiktíðinni
hefur Leeds hikstað eftir að Gus Poy-
et gekk til liðs við Tottenham.
Fyrir leikinn var búist við auð-
veldum sigri Leeds enda liðið sýnt
bestu knattspyrnuna það sem af er
leiktíðinni að margra mati. Að auki
var Cheltenham á botni deildarinnar
fyrir leikinn. Leeds sótti mikið allan
leikinn en erfiðlega gekk fyrir sókn-
armenn liðsins að skora. f síðari hálf-
leik kom gamla brýnið Tore Andre
FIo inn á völlinn og var nálægt því
að skora ásamt Jamie Beckford. En
Leeds-menn gleymdu sér í sóknar-
leiknum og fjórum mínútum fyrir lok
venjulegs leiktíma skoruðu Chelten-
ham-menn sigurmarkið. Steven Gill-
espie skoraði með skoti af 25 metra
færi í boga og í markið. Leeds sótti
til ioka leiksins og minnstu munaði
að það næði að jafna í lokin en ekk-
ert gekk að klára færin frekar en fyrr
í leiknum.
Við sigurinn færist Cheltenham
af botni deildarinnar en Leeds get-
ur nagað sig í handarbökin þar sem
leikmenn liðsins áttu 21 tilraun að
marki.
Leeds er í fimmta sæti deildar-
innar eftir leikinn, fimm stigum á
eftir Leyton Orient, en hefur spilað
leik minna. Eins og frægt er orðið hóf
Leeds leiktíðina 15 stigum á eftir öðr-
um sökum fjármálamisferlis í stjórn
félagsins. Þannig að ef liðið heldur
svipuðum dampi og það hefur gert
á leiktíðinni hingað til ætti liðið að
geta komist upp í næstefstu deild.
vidar@dv.is
Tap hjá Leeds DennisWise,
framkvæmdastjóri Leeds, laut
í gras gegn Cheltenham.
f flHH
URSLITÍ ENSKA
Newcastle - Liverpool 0-3
0-1 (28.) Gerrard, 0-2 (46.) Kuyt, 0-3
(66.) Babel.
Arsenal - Wigan 2-0
1 -0 (83.) Gallas, 2-0 (85.) Rosicky.
Birmingham - Portsmouth 0-2
0-1 (34.) Muntari, 0-2 (82.) Kranjcar.
Bolton - Man. United 1 -0
1-0(11.) Anelka.
Everton - Sunderland 7-1
1-0(12.) Yakubu, 2-0 (17.) Cahill, 3-0
(43.) Pienaar, 3-1 (45.) Yorke,4-1 (62.)
Cahill, 5-1 (73.) Yakubu, 6-1 (80.)
Johnson, 7-1 (85.) Osman.
Man.City-Reading 2-1
1-0 (11.) Petrov, 1-1 (43.) Harper, 2-1
(90.) Ireland.
Middlesbrough - AstonVilla 0-3
0-1 (45.) Carew, 0-2 (48.) Mellberg,
0-3 (58.) Agbonlahor.
Derby - Chelsea 0-2
0-1 (17.) Kalou, 0-2 (73.) Wright-Phil-
lips.
West Ham - Tottenham 1-1
1-0 (20.) Cole, 1-1 (67), Davenport
Fulham - Blackburn 2-2
1- 0 (51), Murphy, 1-1 (57) Emerton,
2- 1 (63) Kamara, 2-2 (79) Warnock.
Staflan
Liö L u j T M St
I.Arsenal 13 10 3 0 29:10 33
2. Man. Utd 14 9 3 2 23:7 30
3. Man. City 14 9 2 3 18:14 29
4. Chelsea 14 8 4 2 21:9 28
5. Liverpool 13 7 6 0 22:6 27
6. Portsmou. 14 7 5 2 25:13 26
7. AstonVilla13 7 3 3 21:14 24
8. Everton 14 7 2 5 26:16 23
9. Blackburn 13 6 5 2 17:13 23
lO.WestH. 12 5 3 4 18:10 18
11. Newcast. 13 5 3 5 19:21 18
12. Fulham 14 2 7 5 18:22 13
13. Reading 14 4 1 9 17:31 13
14.Tottenh. 13 2 5 6 23:24 11
15. Bolton 14 2 5 7 12:18 11
16. Birming. 14 3 2 9 13:22 11
17. Middles. 14 2 4 8 12:26 10
18. Sunderl. 14 2 4 8 14:29 10
19.Wigan 14 2 2 10 10:25 8
20. Derby 14 1 3 10 5:33 6
Markahæstu menn:
Leikmaður Liö Mörk
Benjani Mwaruwari Portsmouth 8
Emmanuel Adebayor Arsenal 7
Nicolas Anelka Bolton 7
ENSKA 1.DEILDIN
Cardiff - Ipswich 1 -0
Scunthorpe - Hull 1-2
Barnsley - Watford 3-2
Bristol City - Leicester 0-2
Burnley - Stoke 0-0
- Jóhannes Karl Guðjónsson lék
síðustu tíu mínúturnar (liði Burnley.
Colchester - Crystal Palace 1-2
Norwich - Coventry 2-0
Q.P.R.- Sheff.Wed. 0-0
Sheff. Utd - Plymouth 0-1
Southampton - Blackpool 1-0
Preston - Charlton 0-2
W.B.A. - Wolves 0-0
Staflan
Lið L U J T M St
1. Watford 17 11 3 3 31:21 36
2.W.B.A. 17 9 4 4 35:16 31
3. Charlton 17 9 4 4 24:15 31
4. Plymouth 17 7 6 4 23:18 27
5. Wolves 17 7 6 4 18:15 27
20. C.Palace 17 3 8 6 18:21 17
21.Blackp. 16 3 7 6 18:22 16
22.Q.P.R. 16 3 7 6 14:24 16
23. Preston 17 3 6 8 15:22 15
24. Norwich 17 3 3 11 12:26 12
ENSKA 2. DEILDIN
Bournemouth - Oldham 0-3
Brighton - Carlisle 2-2
Gillingham - Hartlepool 2-1
Huddersfield - L.Orient 0-1
Luton - Southend 1-0
Millwall-Yeovil 2-1
Northampton - Walsall 0-2
Nott. Forest - Crewe 2-0
Port Vale - Doncaster 1-3
Swindon - Bristol R. 1-0
Tranmere - Swansea 0-1
Cheltenham - ■Leeds 1-0
Staðan
Lið L U J T M St
1. L. Orient 17 9 4 4 26:26 31
2. N. Forest 16 8 6 2 27:9 30
3. Carlisle 16 8 5 3 25:13 29
4. Swansea 16 8 4 4 26:16 28
5. Leeds 17 13 2 2 31:13 26
20. Gillingh. 17 5 4 8 17:31 19
21. Chelten. 17 3 6 8 15:26 15
22. Bourne. 17 3 4 10 16:29 13
23. Luton 17 6 4 7 19:20 12
24. Port Vale 17 3 3 11 14:25 12