Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Qupperneq 23
PV Sport
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 23
Valur sigraði Stjörnuna í Nl-deildinni 34-29. Valsmenn höfðu frumkvæðið mestallan
leikinn en náði ekki að hrista Stjörnuna af sér fyrr en í lokin.
Valur sigraði Stjörnuna 34-29 í
góðum handboltaleik í Vodafone-
höllinni. Hlíðarendapiltar voru betri í
leiknum þó Stjörnumenn væru ávallt
skammt undan. Valsmenn byrjuðu
leikinn mun betur og komust í 9-4.
Á þeim leikkafla fór Ernir Arnarsson
mikinn og setti fjögur mörk. Auk
þess var Pálmar Pétursson heitur í
markinu og varði vel en á sama tíma
lak flestallt inn hjá Roland Eradze í
marki Stjörnunnar. Hlynur Mortens
leysti hann af um miðjan hálfleikinn
og varði sex skot í fyrri hálfleik og 15
skot alls.
Stjörnumenn lögðu ekki
árar í bát heldur tóku leikhlé og
endurskipulögðu leik sinn. Á góðum
leikkafla minnkuðu þeir muninn
í 12-10. Á næstu mínútum var
leikurinn hraður og skemmtilegur
áhorfs og sóknarleikur liðanna gekk
vel. Úlafur Víðir Ólafsson og Heimir
Árnason komu inn í leik Stjörnunnar
og við það þurftu varnarmenn Vals
að sækja út í þá. Þar með losnaði um
hornamenn og línumann sem nýttu
færin betur en í upphafi. I hálfleik
stóðu leikar 15-14 heimamönnum
í vil í fínum handboltaleik. Stjörnu-
menn jöfnuðu leikinn í 16-16 í fyrsta
skipti síðan í stöðunni 1-1.
Stuttu síðar komust þeir yfir í 18-
17. Valsmenn spýttu í lófana eftir
þetta og náðu aftur frumkvæðinu í
leiknum. Vörnin styrktist um leið og
Ernir Arnarsson hélt áfram góðum
leik frá því í fyrri hálfleik. 26-23 fyrir
Vai þegar rúmar 12 mínútur voru
eftir. Það hafði ekki tilætluð áhrif
og Valsmenn náðu fjögurra marka
forystu 32-28 þegar sjö mínútur
lifðu leiks.
Vorum í erfiðleikum
að hrista þá af okkur
„Það var meiri vilji hjá okkur og
margir sem spiluðu vel. Ernir og
Elvar skutu og allt var inni auk þess
sem Pálmar var góður í markinu. Við
vorum að vísu í erfiðleikum með að
hrista þá af oklcur, svo náðum við að
komast ífjögurra marka forystu undir
lokin og mér fannst þetta vera öruggt
eftir það. Það var óþægilegt að missa
þá yfir í síðari hálfleik og gaman að
sjá hvernig við brugðumst við því.
Þeir hefðu getað komist tvö yfir en
það var þægilegt að ná að halda
þeim frá því. Ég er bara virkilega
sáttur og það voru margir góðir.
Hver leikur er úrslitaleikur og það
verður gaman að kljást við Akureyri
fýrir norðan í næsta leik." sagði Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Elvar
Friðriksson átti góðan leik fýrir Val
og skoraði 8 mörk og mörg hver voru
þau undir lok leiksins á mikilvægum
augnablikum. „Þetta var gaman, við
bara skutum og skutum en flestallt lá
inni. Ég var að vísu aðeins smeykur
þegar Stjörnumennirnir náðu okkur
í seinni hálfleik. En ég fann það
samt að þegar við settum áfram í
gírinn náðum við að valta yfir þá
aftur," sagði Elvar Friðriksson, sem
átti góðan leik í liði Vals. Heimir
Árnasson, leikmaður Stjörnunnar,
var ekki sáttur í leikslok. „Það
vantaði Jón Heiðar og hann er okkur
mikilvægur í vörninni. Við máttum
ekki við því. Eins vorum við stirðir
eftir langa pásu."
VIÐAR GUÐJÓNSSON
bladamciöur skrifar: vidar(ó<dv.is
ÚRSLITHELGARINNAR
N1-DEILD KARLA
Valur - Stjarnan 34-29
Mörk Vals: Ernir H. Arnarson 9, Elvar
Friðriksson 8, Baldvin Þorsteinsson 7,
Arnór Malmquist 6, Sigfús P. Sigfússon
2, Ingvar Árnason 1, Fannar Þ. Friðgeirs-
son 1.
Mörk Stjörnunnar: Ólafur V. Ólafsson 7,
HeimirÖ. Árnason 6, Björgvin Hólmgeirs-
son 4, Gunnar I. Jóhannsson 3, Volodmir
Kysil 3, Ragnar Helgason 2, Hermann
Björnsson 2, Guömundur Guðmundsson
1, Björn Friðriksson 1.
(BV - Afturelding 24-23
Mörk (BV: SergeyTrotsenko 8, Zilvinas
Grieze 7, Sindri Haraldsson 4, Grétar
Eyþórsson 4 og Leifur Jóhannesson 1.
Mörk Aftureldingar: Hilmar Stefánsson 6,
Daníel Jónsson 5, Reynir Ingi Árnason 4,
Alexandar Popov 3, Magnús Einarsson 2,
Asgeir Jónsson 1, Bjarki Sigurðsson 1 og
Jón Andri Helgason 1.
Haukar - Akureyri 25-25
Mörk Hauka (viti): Kári K. Kristjánsson
5, Arnar Jón Agnarsson 5, Sigurbergur
Sveinsson 4, Jón Karl Björnsson 4 (2), An-
dri Stefan 3, Freyr Brynjarsson 2, Þröstur
Þráinsson 1, Gunnar B. Viktorsson 1.
Varin skot (víti): Magnús Sigmundsson 22,
Gfsli Guðmundsson 1 (1).
Mörk Akureyrar (vlti): Andri S. Stefánsson
4, Goran Guslc 4 (1), Ásbjörn Friðriksson 4,
Jónatan Magnússon 3 (2), Nikolaj Janko-
vic 3, Björn Ó. Guðmundsson 2, Einar L.
Friðjónsson 2, Eirikur Jónasson t, Rúnar
Sigtryggsson 1, Magnús Stefánsson 1.
Varin skot (víti): Hörður F. Ólafsson 13.
Staðan
Lið L u J T M St
1. Haukar 11 7 3 1 312:266 17
2. HK 10 7 1 2 274:243 15
3. Fram 10 6 1 3 287:260 13
4. Stjarnan 10 6 1 3 303:271 13
5. Valur 9 4 2 3 231:217 10
6. Akureyri 11 2 2 7 287:307 6
7. Aftureld. 10 2 2 6 250:264 6
8. ÍBV 11 1 0 10 274:390 2
EFH-ÁKORENDAK. EVR.
Fram - Ankara II Özel 36-20
Mörk Fram (viti): Haraldur Þorvarðarson 6,
Guðjón Drengsson 5, Hjörtur Hinriks-
son 4, Einar I. Hrafnsson 4, Jóhann G.
Einarsson 4, Filip Kliszczyk4, Halldór J.
Sigfússon 4 (2), Zoltan Belanyi 2, Jón B.
Pétursson 2.
Varin skot (vfti): Magnús G. Erlendsson 15,
Björgvin P. Gústavsson 13 (2).
Mörk Ankara (víti): ömer Aslan 6(1),
Soner Genec 5, Murat Ölmez 3, Aydin
Aydinli 2, Rifat Shahin 1, Baris Orhonlu 1,
Mehmet Demirezen 1, Hamza Ciftci 1.
Varin skot (vfti): Cemal Bayrakci 4, Evren
Kuban 1.
EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSL.
FCK-HK 36-24
Markahaestir (liði HK: Augustas Strazdas
5, Gunnar S. Jónsson 4, Ólafur B. Ragnars-
son 4, Sergei Petraytis 4.
Varin skot: Egidijus Petkevicius 15.
- FCK vann samanlagt 62-48.
Fram vann Ankara II Özel 36-20 í gær og samanlagt 65^44 í EHF-áskorendakeppni Evrópu í handbolta:
Auðveldur sigur Framara gegn slökum Tyrkjum
Fram vann vægast sagt auðveld-
an sigur á tyrkneska liðinu Ankara II
Özel í síðari leik liðanna í EHF-áskor-
endakeppni Evrópu í handbolta.
Lokatölur urðu 36-20 og Fram vann
samanlagt 65-44.
Fram náði strax undirtökunum í
leiknum og tyrkneska liðið skoraði
aðeins þrjú mörk á fýrstu 20 mínút-
um leiksins. Staðan f hálfleik var 15-
6, Fram í vil, og aðeins spurning hve
stór sigur Framara yrði.
Mótlætið virtist fara í taugarn-
ar á leikmönnum tyrkneska liðsins
og þeir voru duglegir að beita bola-
brögðum, sérstaklega þegar dómar-
ar leiksins sáu ekki til.
Lokatölur urðu 36-20 og leikur-
inn var lítið meira en ágætis æfing
fyrir lið Fram. Vörn liðsins spilaði vel
og fýrir aftan hana vörðu þeir Magn-
ús Gunnar Erlendsson og Björgvin
Páll Gústavsson vel.
Halldór Jóhann Sigfússon, leik-
maður Fram, fékk að finna fýr-
ir fólskubrögðum Tykjanna og var
kýldur í kviðinn oftar en einu sinni í
leiknum.
„Við spiluðum hörkuvörn og feng-
um hraðaupphlaup. Við hefðum get-
að skorað 45 mörk í dag en við vorum
aðallega að reyna að komast heilir frá
þessum leik. Við eigum svolítið erfitt
prógram ffarn undan.
Það er allt í lagi að spila hart en
þeir eru svolítið blóðheitir og þegar
þeir sáu að þeir áttu ekld séns fóru
þeir að gefa olnbogaskot og kýla
menn í bringu og maga þegar bolt-
inn var farinn í burtu. Maður hefur
svo sem alveg lent í svona hlutum
áður," sagði Halldór Jóhann.
Haraldur Þorvarðarson, leik-
maður Fram, sagði að sigurinn
hafi aldrei verið í hættu. „Við viss-
um að við værum sterkari en þetta
lið. Þeir eru með þunnan hóp, við
erum með breiðan hóp og spiluð-
um á öllum leikmönnum og rúlluð-
um yfir þá," sagði Haraldur.
„Þeir eru ekki sterkir í hand-
bolta en eru líkamlega sterkir og
við fengum alveg að finna fyrir því.
En handboltalega séð áttu þeir ekki
mikla möguleika," sagði Haraldur
og bætti við að það hafi margt verið
jákvætt í Ieik Fram.
„Við fengum að rúlla okkar leik-
kerfum og slípa okkar leik. Allir
spiluðu og þetta var bara fín æfing."
dagur@dv.ls
Deilur Halldór Jóhann Sigfússon, númer 55, var ósáttur við meöferöina sem hann
fékk hjáTyrkjunum (gær.