Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Blaðsíða 27
DV Biá
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 27
Katrín Halldóra
Sigurðardóttir er
heldur betur virk í
leiklistarlífinu í
heimabæ sínum
Neskaupstað. Fyr-
ir utan að hafa
nýverið sett upp
leiksýningu fyrir
gagnfræðaskólann
leikur hún einnig í
árlegri sýningu
Norðfirðinga og er
formaður leiklist-
arfélagsins Djúps-
ins.
MJALLHVÍT
0G DANSARARNIR SJÖ
(hlutverki útvarpsþulunnar f sýningunni
Lög unga fólksins.
Pitthætturvlð
Brad Pitt hefur hætt við að leika í
stjórnmálatryllinum State of Play en
þar átti liann að leika aðalhlutverkið
gegn félaga sínum Edvvard Norton.
Myndin mun einnig skarta
stórleikurum eins og Helen Mirren,
Rachel McAdams, Jason Bateman og
Robin Wright Penn. Ástæðan er sögð
vera deilur vegna handrits en nú
stendur einmitt yfir verkfaU
handritshöfunda. Þeir leikarar sem
hafa verið orðaðir við hlutverkið í
stað Pitts eru Russell Crowe og
Johnny Depp.
Verri meðferð
enbarnaníð-
ingur
Heather Mills, fyrrverandi eiginkona
BíUlsins Pauls McCartney, heldur
sttíði sínu við fjölmiðla áfram.
Heather er sannfærð um að hún fái
verri meðferð en bamaníðingur í fjöl-
miðlum. „Ég held að ekkeit geti
undirbúið þig undir að fá verri
meðferð en morðingi og barnaníð-
ingur í fjölmiðlum þegar allt sem þú
hefur gert undanfarin 17 ár er að
vinna að góðgerðarmálum," sagði
Heather um málið.
„Það var bara haft samband við
mig um miðjan október því krakk-
arnir í níunda bekk hér í Neskaup-
stað voru að fara að setja upp sína
árlegu sýningu. Það er alítaf sett upp
fjáröflunarsýning til að safna pen-
ingum fyrir árlega níundu bekkjar
vorferð. Ég var sjálf ffæg fýrir það að
vera sjúk í að setja upp sýningar þeg-
ar ég var í skólanum og var alltaf að
bralla eitthvað með bekkjarfélögun-
um," segir hin átján ára Neskaup-
staðarmær Katrín Halldóra Sigurð-
ardóttir.
Katrín hefur vakið mikla athygli
í heimabæ sínum fyrir virkni sína í
leiklistarlífi bæjarins. En auk þess
að hafa nýverið skrifað og leikstýrt
leiksýningu gagnfræðaskólans er
hún formaður leikfélagsins Djúpsins
og leikur eitt aðalhlutverkið í árlegri
sýningu sem stendur yfir í Egilsbúð
um þessar mundir og nefnist Lög
unga fólksins.
„Krakkarnir sögðu mér bara frá
því sem þeir höfðu í huga og svo
saumaði ég eitthvað saman út frá
þeirra hugmyndum. Hingað til hafa
þetta verið mörg stutt atriði sett
saman í eina sýningu en ég ákvað
að breyta til og gera þetta að einni
samfelldri sögu. Ég bar þá undir þau
hugmyndina mína um að breyta æv-
intýrinu um Mjallhvít og dvergana
sjö og þau tóku bara vel í það, svo úr
varð leikritið Mjallhvít og dansararnir
sjö. Ég hafði þar af leiðandi ákveðna
hugmynd svo ég byggði leikritið upp
frá ákveðinni beinagrind og settí svo
bara kjöt á beinin. Fyrirvarinn var
stuttur svo ég vann dag og nótt í tvo
daga við að skrifa það og krakkarn-
ir fengu það svo sjóðheitt í hendurn-
ar og höfðu einungis tíu daga til að
æfa sig."
Fullt út úr dyrum í Egilsbúð
Katrín segir leikritið hafa heppn-
ast einstaklega vel og að leikhópur-
inn hafi staðið sig mjög vel. „Þetta
var rosalega flott hjá krökkunum og
alveg fullt út úr dyrum í Egilsbúð.
Það voru þrjú hundruð manns á sýn-
ingunni og biðröð niður fýrir hús.
Það er vanalega bara sett upp þessi
eina sýning en af því að það komust í
rauninni færri að en vildu ætlum við
að hafa eina aukasýningu núna 18.
desember sem að öllum líkindum
verður bæði fyrir börn og fullorðna."
Önnur árleg hefð þeirra Norðfirð-
inga er skemmtisýning sem einnig er
sett upp í Egilsbúð þar sem blandað
er saman borðhaldi og sýningu. „Tón-
listarfélagið Brjánn hefur alltaf staðið
fyrir sýningunum en nú var ákveðið
að yngja upp í hópnum. Eldri karl-
arnir voru látnir fara og inn var tek-
ið unga tónlistarfólkið og dansararn-
ir hérna í staðinn. Svo var ég sú eina
sem var að leika í sýningunni. Þem-
að var seventís diskó og við settum
upp sýninguna Lög unga fóiksins. Ég
er útvarpskona og kynni lögin og at-
riðin, sendi kveðjur til hlustenda og
skelli vínylplötum á fóninn. Þetta er
svona eins konar live-útsending á út-
varpsþætti," segir Katrín.
„Það eru oftast fimm tíl sex sýn-
ingar og átján ára aldurstakmark þar
sem þetta er einnig svona borðhald
og áfengi haft um hönd. Um leið og
fyrsti eftirréttardiskurinn er borinn
inn í sal fer sýningin í gang. Við ætl-
um hins vegar að vera með eina al-
menna sýningu núna 11. desember
þar sem er ekkert aldurstakmark. Svo
verður sýningin sett upp á Broadway
í Reykjavík í febrúar."
Hamingjusöm í
búningaherferð
Katrín segist hafa haft mikinn
áhuga á leiklist frá unga aldri og hafi
ekki verið hægt að halda svo mikið
sem saklaust matarboð í íjölskyld-
unni án þess að hún setti upp leik-
þátt. „Atriðin mín lögðust reyndar
misvel í fjölskyldumeðlimi. Ég dró
alltaf hin frændsystkinin með og yf-
irleitt voru eldri fjölskyldumeðlim-
irnir löngu farnir eitthvað annað eða
hættir að hlusta þegar við loksins
lukum við atriðið," segir Katrín hlæj-
andi.
Fram undan hjá þessari hressu
stúlku er ýmislegt tengt leiklist-
inni. „Við í Leikfélaginu Djúp-
inu, sem er leikfélag Verkmennta-
skóla Austurlands, vorum að setja
upp búningadeild í kjallaranum í
skólanum. Við fórum ásamt Berg-
sveini búningaverði í búningaher-
ferð í haust með góðum árangri.
Við fengum fullt af góðum búning-
um frá hamingjusömu fólki enda
er mottóið hans Bergsveins ham-
ingja. Svo setjum við upp sýningu í
vor en ég ætla að reyna að einbeita
mér að stúdentsprófunum í vor og
undirbúa mig fyrir inntökupróf í
leiklistarskóla," segir Katrín Hall-
dóra að lokum.
krista@dv.is
Óttaðistum
leikferllinn
Leikarian Owen Wilson óttaðist að
liann myndi aldrei nokkurn tímann
landa hlutverki í kvikmynd eftir að
hraunað var yfir frammistöðu hans í
myndinni Bottle Rocket af gagmýn-
endum. Wilson, sem auk þess
skrifaði handritið að myndinni í sam-
starfi við vin sinn Wes Ánderson, fékk
versm niðurstöður úr prufu-
frumsýningu hjá Columbia-Pictures
frá upphafi. Þó myndin sem sýnd var
árið 1996 hafi verið algjört flopp
hefur hún síðan orðið að vinsælli
költmynd. „Wilson var sannfærður
um að ferill hans væri ónýtur og við
værtim búnir að vera og þyrftum að
leita að hlutverki í auglýsingum,"
sagði Anderson.
íslenskir rithöfundar verða fyrir barðinu á torrent-deilisíðum:
ISLENSKAR HLJOÐBÆKUR ATHE PIRATE BAY
Eftír að vefsvæðinu torrent.is
var lokað hafa margir íslendingar
brugðið á það ráð að notfæra sér
sænsku heimasíðuna thepiratebay.
org til þess að nálgast torrent-skjöl.
The Pirate Bay er ein elsta torrent-
síða heimsins og sú allra stærsta.
Síðan er í 192. sæti yfir mest sóttu
síður alheimsins. Höfundarréttar-
brot af því tagi sem gerast inn á
torrent-vefjum snúa flestöll að
tónlist eða myndefni. Nú er hins
vegarspurningumhvortrithöfundar
þurfi að fara óttast torrent-heiminn.
Á The Pirate Bay er hægt að finna
hljóðbækur eftir tvo íslenska rithöf-
unda, þau Yrsu Sigurðardóttur
og Arnald Indriðason. Um er að
ræða stórar skrár þar sem sænskar
þýðingar á bókum eftir höfundana
eru lesnar upp í heild sinni. Tvær
bækur eftir Yrsu eru á thepiratebay.
org en það eru bækurnar Þriðja
táknið sem farið hefur sigurför um
heiminn undanfarið og bókin Sér
grefur gröf. En báðar bækurnar
komu út á hljóðbók í Svíþjóð árið
2006. Þrjár bækur eftir Arnald liggja
hins vegar inni á vefnum. Bækurnar
Mýrin, Vetrarborgin og Betty.
Bækurnar njóta töluverðra vinsælda
inni á vefnum en tugir manna voru
í miðjum klíðum við að sækja
bækurnar þegar fréttin er skrifuð.
Sænsk höfrmdarréttarsamtök hafa
lögsótt eigendur síðunnar í tvígang,
en í fýrra skiptíð voru þeir sýknaðir.
Nú hafa talsmenn samtakanna
fundið nýjan flöt á málinu og eru
vongóðir um að eigendur síðunnar
verði sakfelldir, en niðurstaða er
væntanleg skömmu eftir áramót.
Arnaldur Indriðason Þrjár
hljóðbækur þýddar á sænsku
eftir Arnald má finna á The
Pirate Bay sem er vinsælasta
torrent-heimaslða heims.