Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007
Slöasten ekkisíst DV
TENGSL
Guðni Agústsson á það sameigin-
legt með Steingrími Hermannssyni
að Ijóstra upp leyndarmálum (
ævisögu sinni...
Steingrímur á það sameiginlegt með
Davíð Oddssyni að hafa orðið
seðlabankastjóri eftir stjórnmálaferil
sinn...
Davíð á það sameiginlegt með
Hrafni Gunnlaugssyni að hafa
haldið úti Útvarpi Matthildi...
Hrafn á það sameiginlegt með Birni
Inga Hrafnssyni að tala fyrir flugvelli
á Lönguskerjum...
Björn Ingi á það sameiginlegt með
Höllu Gunnarsdóttur að hafa verið
þingfréttaritari...
Halla á þaö sameiginlegt með
Steingrími J. Sigfússyni að hafa
tapað formannskjöri...
Steingrfmur J. á það sameiginlegt
með Guðna að tengjast landbúnaði
sterkum böndum.
ERÓHRÆDDURVIÐ
HEIMILISSTÖRFIN
Valtýr Sigurðsson,
forstjóri Fangelsismáiastofnun-
ar, hefur verið ráðinn í embætti
ríkissaksóknara. Hann segist
spenntur að takast á við ný
verkefni.
Hver er maðurinn?
„Valtýr Sigurðsson heiti ég."
Hver eru þín áhugamál?
„Þau eru margvísleg, tengjast
mörg útiveru eins og gönguferðum,
skíðum og sjósporti. Ég á bæði kajak
og skútu sem ég fer stundum á, svo
er ég í stjórn Ferðafélags fslands."
Eftirminnilegasta bók sem þú
hefur lesið?
„Heygðu mitt hjarta við undað
hné, sennilega vegna þess að ég hafði
gert mér svo ranga mynd af indíán-
um í gömlu kúrekamyndunum."
Á hvernig tónlist hlustar þú?
„Ég hlusta mikið á klassíska tón-
list, annars hef ég almennt gaman af
tónlist."
Hefur þú búið erlendis?
„Já, í Köln í Þýskalandi, þar var ég
í framhaldsnámi í réttarfari í eitt ár."
Uppáhaldsstaður?
„Hornstrandir og Siglufjörður, en
ég er einmitt ættaður ffá Siglufirði."
Besti matur?
„Ég er alæta, það er ekkert sem ég
vil gera upp á milli, frekar en upp á
milli barnanna minna."
Vaskar þú upp heima hjá þér?
„Já, já, það geri ég, ég óhræddur
við hússtörf."
Hver er staða fangelsismála á
fslandi?
„Hún er á mikilli hreyflngu og er
sífellt að batna."
Eru nægilegir fjármunir veittir í
fangelsismál?
„Það vilja allar stofnanir fá meira
fé og þar er Fangelsismálastofnun
engin undantekning."
Hefur þú setið inni?
„Nei, en ég hef að sjálfsögðu reynt
að setja mig í spor þeirra enda búinn
að veraíþessumgeirasíðan 1971. Ég
hef unnið sem dómari og margt fleira
og þar af leiðandi átt mikil samskipti
við fanga."
Hvernig leggst nýja starfið (þig?
„Það er bara spennandi að takast
á við ný verkefni, þetta er starf sem
ég ber mjög milda virðingu fyrir og ég
mun sinna því eins vel og ég get."
Hver er draumurinn?
Hver er þín fyrirmynd? „Fá að lifa hamingjusömu lífi
„Faðir minn sem er nýlátinn var láta gott af mér leiða."
mín stærsta fyrirmynd."
°g
SWDKOKV
■ Margir horfðu á myndarlega
pilta spreyta sig í keppninni
um herra ísland sem fram fór
á dögunum. í ljós kom að einn
eða fleiri keppendur hafa fjölgað
mannkyn-
inu og er allt
gott um það
að segja. Þeir
sem liins
vegar hafa
reynslu af
fegurðar-
samkeppn-
um eða hafa
fylgst með þeim að einhverju leyti
ættu að vita það að mjög strangar
reglur gilda um þær stúlkur sem
taka þátt í ungfrú Reykjavík og
ungffú ísland. Þær mega ekki eiga
böm, þekkt dæmi eru einnig um
það að sumar hverjar hafa verið
sviptar titli sínum fyrir það að
verða óléttar. Að margra mati öðl-
ast konur aukinn þokka og þroska
við það að eignast barn og er því
viss tímaskekkja að ungar, fallegar
mæður eigi ekki möguleika á að
taka þátt í fegurðarsamkeppni
árið 2007.
■ Nú em allir að velta því fýrir sér
hvort tónlistarmenn eigi að syngja
á íslensku eða ensku og sitt sýnist
hverjum. Dr. Gunni gerði þetta
að umræðu-
efni sínu í
bakþönkum
Fréttablaðs-
ins í síðustu
viku en hann
viilheyra
fleiri íslenskar
hljómsveit-
irsyngjaá
íslensku. Steinþór Helgi, blaða-
maður á Fréttablaðinu, svaraði
doktomum í pistli sínum daginn
eftir þar sem hann tekur upp
hanskann fyrir tónlistarmenn sem
syngja á ensku. Ritdeila virðist vera
komin af stað því stuttu síðar svar-
ar Dr. Gunni Steinþóri á blogginu
sínu og segir - með óbeinum hætti
- íslenska tónlistarmenn sem
syngja á ensku vera lata og metn-
aðarlausa.
■ Söngkonan Elíza gaf nýverið út
plötu sína Empire Fall í Bredandi.
í tílefni þess var haldið pam' þar
sem Elíza og félagar vom hrifin af
viskíi sem kallast Monkey Should-
er. Sala á diskinum hefúr farið vel
af stað og þeir dómar sem hingað
til hafa birst
verið mjög
jákvæðir.
Empire Fall
hefur fengið
þrjároghálfa
stjörnu í flest-
umdómum
' semverður
að teljast ein-
staklega gott á hinum harða Bret-
landsmarkaði.
NU GETUR ÞU LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr.á
mánuði